Herjólfur sigldi inn í Landeyjahöfn

Herjólfur var rétt í þessu að sigla inn til Landeyjahafnar. Brottför frá Landeyjahöfn verður kl 20:00 í kvöld. Ekki verða sigldar fleiri ferðir í dag. Þetta er í samræmi við áður útgefna vinnureglu að sigla eins og oft og mögulegt er til Landeyjahafnar þú stundum þurfi að tilkynna það með stuttum fyrirvara. Við biðjum farþega […]
Ronja Ræningjadóttir frumsýnd í dag
Leikfélag Vestmannaeyja frumsýnir í dag, laugardag, klukkan 17:00 fjölskylduleikritið um Ronju Ræningjadóttur. Það er Þröstur Guðbjartsson sem leikstýrir en alls taka 27 leikarar þátt í verkinu, frá 12 ára og upp úr. Aðalhlutverk er í höndum Söru Hlínar Sölvadóttur, sem leikur Ronju og Kristleifs Kristleifssonar, sem leikur Birki. Auk þess leika þau Zindri Freyr Ragnarsson […]
Hallgrímur les upp úr Konunni við 1000°

Hallgrímur Helgason, rithöfundur, kemur til Eyja í tengslum við safnahelgi og les upp úr nýjustu skáldsögu sinni í Surtseyjarstofu á laugardagskvöld. Konan við 1000° kom fyrst út á þýsku í tengslum við bókamessuna í Frankfurt þar sem Ísland var heiðursgestur og hefur fengið mikið lof gagnrýnenda. Hallgrímur hefur áður lesið í Vestmannaeyjum á Safnahelgi og […]
Eigum samleið �?? Lykillinn er Landeyjahöfn

Vestmannaeyingar eru kröftugt og skemmtilegt fólk. Hér í Eyjum er mikil og fjölbreytt þjónusta sem getur nýst margfalt fleira fólki en raun ber vitni, á sama hátt geta Vestmannaeyingar sótt fjölmargt hingað upp á land. Samvinna og samstarf er lykilorðið. (meira…)
Svavar verður með

Í fréttatilkynningu frá forráðamönnum B-liðs ÍBV er tekinn allur vafi af því hvort línumaðurinn öflugi, Svavar Vignisson muni leika með liðinu í Eimskipsbikarnum. Svavar verður að sjálfsögðu á sínum stað en leikmaðurinn hefur undirbúið sig af krafti í sumar, m.a. hlaupið eins og hauslaus hæna um alla eyjuna. Nú er svo komið að Svavar hefur […]
Kvennaleiknum hnikað til á morgun

Kvennalið ÍBV tekur á móti FH í 5. umferð N1 deildarinnar á morgun, laugardag. Leikurinn átti að hefjast klukkan 13:00 en þar sem Herjólfur siglir til Þorlákshafnar um helgina, hefur leiktímanum verið hnikiða til þannig að leikurinn hefst klukkan 18:00. (meira…)
Herjólfur siglir til �?orlákshafnar 5. til 7. nóvember

Vegna ölduspá næstu daga fyrir Landeyjahöfn mun Herjólfur sigla til Þorlákshafnar frá laugardeginum 5. nóvember til og með mánudagsins 7. nóvember. Ákvörðun um framhaldið þ.e. siglingar eftir 7. nóvember verður tekin eigi síðar kl 12 á sunnudag. Farþegar eru vinsamlega beðnir að fylgjast með fréttum á herjolfur.is, facebook síðu Herjófs og síðu 415 í Textavarpi. […]
Leiðin nokkuð greið í 8-liða úrslit

Laugardaginn 12. nóvember næstkomandi mun sannkallaður stórviðburður eiga sér stað í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja,en þá munu hinir mögnuðu liðsmenn ÍBV b taka á móti HK2 í Eimskipsbikarnum. Það má telja það næsta víst að leiðin í 8 liða úrslit sé klár fyrir lið ÍBV b. (meira…)
Vestmannaeyjabær vill taka yfir rekstur íþróttamannvirkja

Fjölskyldu og tómstundaráð Vestmannaeyja hefur falið framkvæmdastjóra ráðsins og íþróttafulltrúa að taka upp viðræður við ÍBV-íþróttafélag um hvort leysa beri félagið undan rekstrarsamningi um fasteignir og íþróttamannvirki. Félagið sendi bréf til ráðsins þar sem farið var yfir rekstrarsamning íþróttamannvirkja, sem hefur verið í umsjón ÍBV-íþróttafélags samkvæmd samningi við bæinn. Félagið telur það fjármagn sem bærinn […]
Ísfélagið stærst – Bergur-Huginn með hæstu meðallaunin

Í úttekt Frjálsrar verslunar sem kom út í vikunni, er birtur listi yfir stærstu fyrirtæki landsins og hæstu meðallaun sem þau greiddu á árinu 2010. Þar kemur fram að Ísfélag Vestmannaeyja er í þriðja sæti yfir stærstu sjávarútvegsfyrirtæki landsins með veltu uppá 15.5 milljarða króna. Ársverk í fyrirtækinu eru 270 talsins, meðallaunin eru 8.8 milljónir […]
Laugardagsfundur í Ásgarði á morgun

Formaður og varaformaður Sambands ungra Sjálfstæðismanna, þeir Davíð Þorláksson og eyjamaðurinn Helgi Ólafsson verða gestir á laugardagsfundi sjálfstæðisfélaganna, laugardaginn 5.nóvember. Fundurinn fer fram í Ásgarði og hefst kl. 11.00. (meira…)
Tekist á um fyrirkomulag

Reglur um starfslaun bæjarlistamanns voru rædd á síðasta fundi bæjarstjórnar. Áður hafði fræðslu- og menningarráð samþykkt breytingar á reglunum og vill veita verðlaun bæjarlistamanns til tveggja ára, annað hvert ár í stað þess að veita þau á hverju ári. (meira…)
Kenni fólki að lifa í núinu og nýta sér það besta úr lífinu

Sigríður Klingenberg verður með spennandi fyrirlestur í Alþýðuhúsinu í dag, föstudag en þar ætlar hún að kenna þátttakendum að breyta lífi sínu og færa til betri vegar. Sigríður hefur haldið fjölda námskeiða sem byggja á bók hennar, Orð eru álög, og miðar að því að þátttakendur nái betri tökum á lífi sínu og finni leiðina […]
Herjólfur í Landeyjahöfn í dag

Herjólfur í Landeyjahöfn í dag föstudag. Farþegar athugið! Brottför í fyrstu ferð frá Eyjum kl 8:00 í dag föstudag. Farþegar eru sem fyrr vinsamlega beðnir að fylgjast með fréttum á herjolfur.is, facebook síðu herjófs og síður 415 í textavarpi.�?� (meira…)
Eyjakvöld á Café Kró

Hin svokallaða Langa safnahelgi í Eyjum hefst í kvöld. Þar munu Obbó-síí og vinir slá upp Eyjakvöldi á Café Kró. Og hefst fjörið kl. 21.00. Þar verða Eyjalögin rifjuð u pp og öllum textum verður varpað á vegg, svo allir geta sungið með. Þá verður sögum af höfunum og ljóðum fléttað inn í dagskrána. (meira…)
Landspítali �??bráðasjúkrahús�??

Gísli Valtýsson skrifar grein í Fréttir 27. október: Réttlæti fyrir suma. Í þessari grein er talað um gæluverkefni og eitt af þeim er að hans mati hátæknisjúkrahús. Landspítali, spítali allra landsmanna, er vinnustaður minn til áratuga og þekki ég því vel ástæður þess að vilja flytja bráðadeildirnar undir eitt þak. (meira…)
Vill verja sjúkrahúsið

Á mánudaginn færði Bjarni Sighvatsson Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja (HV) ómtæki sem hann í samstarfi við marga aðila hefur safnað fyrir. Segir hann þetta lokapunktinn á tækjakaupum til stofnunarinnar sem hann hefur staðið fyrir á undanförnum árum. Í allt eru það 150 til 170 milljónir króna sem hann ásamt fjölskyldu sinni, fyrirtækjum í Vestmannaeyjum og Kvenfélaginu Líkn […]
Dýpkað í 1.192 stundir

Unnið hefur verið við sanddælingar í Landeyjahöfn í 1.192 stundir það sem af er ári. Þar er talinn saman sá tími sem unnið var á sanddæluskipinu Skandia og sanddæluskipinu Perlunni. Þetta kemur fram í svari innanríkisráðherra við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur, þingmanns Framsóknarflokks. Þá kemur fram að til ágústloka hafi verið dælt 176.336 rúmmetrum af sandi […]
Theodór valinn í lokahóp U-20

Theodór Sigurbjörnsson, handboltamaðurinn efnilegi hjá ÍBV, hefur verið valinn í lokahóp U-20 ára landsliðs Íslands. Liðið tekur þátt í Opna Evrópumótinu í Noregi en liðið leikur þar gegn Noregi, Tékkum og Svíþjóð um næstu helgi. Theodór hefur leikið vel með ÍBV í 1. deildinni en hann er örvhentur hornamaður sem hefur líka leikið sem skytta. […]
Fjórir frá ÍBV í yngri landsliðum

Fjórir ungir og efnilegir leikmenn ÍBV hafa verið valdir í yngri landslið Íslands í knattspyrnu. Þeir Brynjar Gauti Guðjónsson, Guðmundur Þórarinsson og Þórarinn Ingi Valdimarsson hafa allir verið valdir í landsliðshóp U-21 árs landsliðsins en liðið mætir Englandi ytra þann 10. nóvember. (meira…)