Eyjamaðurinn Þorsteinn Gunnarsson hefur söðlað um og er nú orðinn aðstoðarþjálfari hjá HK í Kópavogi. Þorsteinn var hjá Grindavík þar til fyrir skömmu að hann hætti sem formaður knattspyrnudeildar félagsins og um leið sem markmannsþjálfari Grindvíkinga. Þetta kemur fram á mbl.is í dag.