Nú bendir allt til þess að Erlingur Birgir Richarsson, lykilmaður í B-liði ÍBV í handbolta, muni ekki leika með liðinu gegn liði sínu HK. Fyrir þá sem ekki þekkja til, þá spilar Erlingur með B-liði ÍBV en þjálfar HK við annan mann. Hinn þjálfarinn er enginn annar en Kristinn Guðmundsson, sem einmitt þjálfaði ÍBV með Erlingi fyrir nokkrum árum. Kristinn hefur nú bannað Erlingi að spila gegn HK.