Þrettándinn er sannkölluð bæjarhátíð í Eyjum en hátíðahöldin hófust síðastliðinn fimmtudag. Þótt um sé að ræða fjögurra daga bæjarhátíð, þá náði hún hámarki sínu í gær, föstudag á hinum eiginlega þrettánda degi jóla þegar Þrettándagleði ÍBV fór fram. Hún hófst með blysför frá Hásteini eftir myndarlega flugeldasýningu og var gengið fylktu liðið upp á malarvöll við Löngulág þar sem jólasveinar, álfar og tröll heilsuðu upp á börn og fullorðna en á miðjum vellinum logaði myndarlegur bálköstur. Sjón er í raun sögu ríkari en með fréttinni fylgja bæði myndir og myndband.