Vegna þeirrar umræðu sem orðið hefur á samskiptamiðlum eftir umfjöllun DV um grímuball Eyverja vill stjórn Eyverja koma eftirfarandi á framfæri: Grímuball Eyverja á sér um 40 ára hefð í Vestmannaeyjum. Að því standa ungir Sjálfstæðismenn í Vestmannaeyjum og er ballið er einn af mörgum föstum liðum í starfi félagsins. Enginn ágóði er af ballinu þrátt fyrir að Eyverjar gefi sína vinnu við ballið auk þess að njóta mikillar velvildar þjónustuaðila og húseigenda hvað verðlagningu varðar.