Frábær sigur hjá stelpunum

Kvennalið ÍBV gerði góða ferð í Garðabæinn í kvöld þegar liðið mætti Stjörnunni. Leikurinn var afar mikilvægur þar sem liðin berjast um þriðja sæti deildarinnar ásamt HK. Skemmst er frá því að segja að ÍBV hafði betur 24:26 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 12:14. (meira…)

Grímuball Eyverja 40 ára hefð

Vegna þeirrar umræðu sem orðið hefur á samskiptamiðlum eftir umfjöllun DV um grímuball Eyverja vill stjórn Eyverja koma eftirfarandi á framfæri: Grímuball Eyverja á sér um 40 ára hefð í Vestmannaeyjum. Að því standa ungir Sjálfstæðismenn í Vestmannaeyjum og er ballið er einn af mörgum föstum liðum í starfi félagsins. Enginn ágóði er af ballinu […]

�?ú mátt eiga rjúpuna

Lögfræðingur nokkur frá Reykjavík ákvað að skreppa á rjúpu. Hann fór upp í Borgarfjörð og fann góðan stað nokkuð frá sveitabæ. Hann var búinn að veiða nokkrar rjúpur og var að enda við að skjóta eina í viðbót og er að sækja hana er bóndi kemur að honum. Þeir heilsast og tala saman en eftir […]

Íþróttaakademía fyrir 9. og 10. bekk Grunnskólans sett á stofn

Stýrihópur á vegum fræðslu- og menningarráðs leggur til að farið verði í þróunarverkefni á vorönn 2012, þar sem sett verður á fót íþróttaakademía við Grunnskólann, 9. og 10. bekk. Allir nemendur 9. og 10. bekkjar sem hafa íþróttir í vali munu eiga möguleika á að velja íþróttaakademíuna sem valgrein. Þeir nemendur sem innritast í íþróttaakademíuna […]

Hugur í byggingafyrirtækjum

Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í vikunni, lá fyrir umsókn frá Val Andersen fh. Geldungs ehf., um lóð og byggingaleyfi að Strandvegi 74 (vestan við Eyjabúð). Ráðið afgreiðir erindið að lokinni grenndarkynningu. Einnig lá fyrirspurn frá Magnúsi Sigurðssyni, fh. Steina og Olla ehf. um afstöðu ráðsins til fyrirætlana um byggingu fjölbýlishúss við Miðstræti 20. (þ.e. […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.