Kvennalið ÍBV gerði góða ferð í Garðabæinn í kvöld þegar liðið mætti Stjörnunni. Leikurinn var afar mikilvægur þar sem liðin berjast um þriðja sæti deildarinnar ásamt HK. Skemmst er frá því að segja að ÍBV hafði betur 24:26 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 12:14.