Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í vikunni, lá fyrir umsókn frá Val Andersen fh. Geldungs ehf., um lóð og byggingaleyfi að Strandvegi 74 (vestan við Eyjabúð). Ráðið afgreiðir erindið að lokinni grenndarkynningu. Einnig lá fyrirspurn frá Magnúsi Sigurðssyni, fh. Steina og Olla ehf. um afstöðu ráðsins til fyrirætlana um byggingu fjölbýlishúss við Miðstræti 20. (þ.e. beint á móti Reynistað).