„Þetta var frábær byrjun hjá mér en það er mikil áskorun fyrir okkur að halda sætinu í deildinni. Við þurfum að byggja ofan á þennan sigur og komast á gott skrið svo sjálfstraustið eflist í liðinu,“ segir Hermann Hreiðarsson á vef Coventry en Hermann lék sinn fyrsta leik með liðinu um nýliðna helgi þegar það hafði betur á móti Middlesbrough, 3:1, á heimavelli.