Mikil umfjöllun um Landeyjarhöfn að undanförnu í Eyjamiðlum, en mig langar að byrja á að þakka Gísla Jónassyni og Sigmund Jóhannessyni fyrir þeirra framlög í síðustu Fréttum. Gísli er reyndar með sömu grein eða svipaða og hann hefur skrifað frá því löngu áður en framkvæmdir við Landeyjarhöfn hófust, en Gísli, eins og svo margir þessir svo kölluðu úrtölumenn, hafa einfaldlega bara haft rétt fyrir sér í einu og öllu.