Nýtt uppsjávarskip Ísfélagsins, Heimaey VE 1 verður afhent félaginu í lok marsmánaðar. Skipið hefur verið í smíðum hjá skipasmíðastöðinni ASMAR í Chile. Í samtali við Fiskifréttir, segir Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri Ísfélagsins að engar ákvarðarnir hafi verið teknar með rekstur skipsins eða framtíð og tengist það óvissunni vegna þeirra breytinga sem boðaðar hafa verið á fiskveiðistjórnunarkerfinu.