Karlaliði ÍBV urðu ekki á nein mistök í leiknum gegn neðsta liði 1. deildar Íslandsmótsins í handbolta, Fjölni þegar liðin áttust við í Eyjum í dag. ÍBV hafði betur, lokatölur urðu 28:18 en staðan í hálfleik var 14:8. Magnús Stefánsson var atkvæðamestur í liði ÍBV en hann skoraði 7 mörk. Þá átti Einar Gauti Ólafsson mjög góða innkomu en hann skoraði fjögur mörk á síðustu tíu mínútum leiksins. Einar Gauti hefur verið frá allt tímabilið vegna meiðsla og ánægjulegt að fá hann inn í leikmannahópinn fyrir lokaátökin.