100 manns í Vestmannaeyjahlaupið

Nú hafa um 100 manns skráð sig í Vestmannaeyjahlaupið sem fer fram á laugardaginn. Á heimasíðu hlaupsins, www.vestmannaeyjahlaup.is segir að nokkrir hlaupahópar upp á landi hafi ákveðið að taka þátt í hlaupinu ef veðurspáin verði góð. Þeir ættu ekki að láta sig vanta því um kvöldið verður stórdansleikur með Ingó og Veðurguðunum í Höllinni. (meira…)
Glæsilegur árangur 3.flokks kvenna

Þriðji flokkur kvenna hjá ÍBV er komið í undanúrslit Íslandsmótsins í knattspyrnu. Stelpurnar unnu sinn riðil nokkuð örugglega í sumar og léku svo í liða keppni um síðustu helgi þar sem sæti í undanúrslitum var í boði en Eyjastelpur unnu Fjarðarbyggð 7:0 og BÍ/Bolungarvík 6:2. Þar með komust þær í undanúrslit sem fara fram á […]
Ekki hægt að bóka í Baldur

Ekki er hægt að panta far með Baldri til og frá Vestmannaeyjum eftir 15. september vegna þess að vetraráætlun liggur ekki fyrir. Þrátt fyrir það hefur Eimskip hvatt fólk til að panta tímanlega þar sem flutningsgeta Baldurs er minni en Herjólfs. (meira…)
Gerðu jafntefli við Stjörnuna

2. flokkur karla hjá ÍBV lék afar mikilvægan leik í gær þegar peyjarnir tóku á móti Stjörnunni en þrjú lið berjast nú um að komast upp í A-deild næsta sumar. Fram trónir á toppi B-deildar með 35 stig en fyrir leikinn í gær var Stjarnan í öðru sæti með 34 stig og ÍBV í því […]
Keyrði út af við Kinnina

Lögreglumenn í eftirliti óku fram á bifreið sem var utan vega á hvolfi á Stórhöfðavegi við Kinnina við Breiðabakka. Enginn var í bifreiðinni en lögreglan komst að því hver ökumaðurinn var og mun hann hafa sloppið mjög vel frá slysinu, aðeins með nokkrar skrámur. Hann er hins vegar grunaður um að hafa verið undir áhrifum […]
Net festist í skrúfu Herjólfs

Net festist í skrúfu Herjólfs í Vestmannaeyjahöfn í gærkvöldi svo drepa þurfti á annarri vél skipsins. Rafmagn fór af skipinu um tíma en það sigldi áfram á hálfu afli. Til öryggis óskaði skipstjóri Herjólfs eftir aðstoð frá hafnsögubátnum Lóðsinum við að leggjast að bryggju. (meira…)
Krabbameinið er hluti af okkar lífi en stjórnar því ekki

Jón Björn Marteinsson, sem dags daglega er kallaður Jónbi, hefur síðan 2006 barist við krabbamein. Hann hefur eytt sex af 28 árum ævinnar í baráttu við þennan skæða sjúkdóm og er enn að berjast. Um síðustu helgi gekk hann að eiga unnustu sína, Guðbjörgu Ragnarsdóttur, og gerði það með stæl en það fyrsta sem hann […]
Mikilvægur leikur hjá 2. flokki í dag

2. flokkur karla í knattspyrnu spilar í dag afar mikilvægan leik í toppslag B-deildar Íslandsmótsins. ÍBV hefur komið skemmtilega á óvart í sumar en liðið kom upp úr C-deild síðasta sumar og er nú að berjast um að komast upp um deild annað árið í röð og spila þá meðal þeirra bestu næsta sumar. Peyjarnir […]
�?riðja sætið í höfn

ÍBV tryggði sér í dag þriðja sætið í Pepsídeild kvenna með því að leggja Fylki að velli 2:0. Leikurinn fór fram á Hásteinsvelli við frábærar aðstæður, sól og blíða og völlurinn mjúkur og góður eftir rigningu síðustu daga. Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði fyrra mark ÍBV undir lok fyrri hálfleiks og Vesna Smiljkovic bætti við öðru […]
Tyrkjarán, eldgos og kvótafrumvarp

Bæjaryfirvöd taka sterkt til orða þegar þau líkja afleiðingum af samþykkt kvótafrumvarps Jóns Bjarnasonar vi Tyrkjaránið 1627 og eldgosið í Heimaey 1973. Menn hljóta að staldra við þegar slíkar yfirlýsingar koma frá sjávarútvegsbæ eins og Vestmannaeyjum. Í Eyjum eru sköpuð milljónir verðmæta á hverjum einasta degi,sem kemur sér vel fyrir sveitarfélagið og landið allt. (meira…)
Aðalskipulagið gerir ekki ráð fyrir hóteli á þessum stað

Eins og greint var frá í Fréttum í síðustu viku, sótti Þröstur Johnsen, eigandi hótels Eyjar við Bárustíg, eftir að leyfi til byggingar á öðru hóteli í malargryfjunni við Hástein. Umhverfis- og skipulagsráð tók umsóknina fyrir á fundi sínum sl. miðvikudag. (meira…)
Fallið frá deiliskipulagstillögum fyrir Löngulág

Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í fyrradag, var samþykkt að falla frá deiliskipulagstillögum varðandi uppbyggingu í Löngulág. Tillögurnar hafa fengið misjafna dóma hjá bæjarbúum og m.a. hafa kaupmannasamtökin mótmælt þeim ásamt 845 bæjarbúum sem skrifuðu undir mótmælaskjal. (meira…)
Herjólfur siglir ekki meira í dag

Vegna veðurs og ölduhæðar verður ekki sigldar fleiri ferðir í dag, fimmtudag 1. september. Gert er ráð fyrir að siglingar í fyrramálið hefjist samkvæmt áætlun, en farþegar eru beðnir um að fylgjast með tilkynningum í fyrramálið. (meira…)
Leiðbeiningar fyrir rafvespur

Umferðarstofa hefur nú sent út leiðbeiningar vegna rafvespa en þeim hefur fjölgað mikið í Vestmannaeyjum undanfarið. Meðal annars kemur fram að ef rafknúin vespa kemst hraðar en 25 km./klst, þá þurfi að skrá ökutækið, tryggja það og auk þess þurfi sérstök ökuréttindi til að aka því. Þá eiga hjólin ekki að vera á götum, heldur […]
Næsta ferð Herjólfs fellur niður

Vegna veðurs og ölduhæðar á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar falla ferðir Herjólfs klukkan 11:30 frá Eyjum og 13:00 frá Landeyjahöfn niður. Þá falla einnig niður ferðir klukkan 14:30 frá Eyjum og 16:00 frá Landeyjahöfn niður. Athuga verður með útlit fyrir næstu ferðir klukkan 16:30 og uppfærð siglingaáætlun birt hér á heimasíðu Herjólfs. (meira…)
Makrílævintýrinu að ljúka

Makrílveiðum er senn að ljúka bæði hjá skipum Ísfélags og Vinnslustöðvarinnar enda eru þau búin að ná þeim veiðiheimildum í makríl sem félögin ráða yfir. Huginn VE er sömuleiðis um það bil að ljúka veiðum en hann var með 10.000 tonna veiðiheimildir í makríl. Skip Vinnslustöðvarinnar hafa sótt rúm 14.500 tonn og skip Ísfélagsins 16.700 […]
James Hurst til Blackpool

James Hurst fyrrverandi leikmaður ÍBV er genginn til liðs við enska Championship deildar liðið Blackpool á láni. Hurst hefur verið á mála hjá WBA síðan hann fór frá ÍBV fyrir ári síðan en félagið hefur nú afráðið að lána hann út tímabilið sem er nýhafið á Englandi. Hann er 19 ára gamall hægri bakvörður sem […]
Furða sig á fjölda ungra lunda

Lundaveiðimenn í Vestmannaeyjum furða sig á fjölda ungra lunda við Eyjar nú í ljósi fullyrðinga fræðimanna um litla sem enga nýliðun stofnsins undanfarin ár. Til stendur að aldursgreina lunda af nýlegum ljósmyndum. (meira…)
Tryggvi og Finnur í banni gegn �?ór

Þeir Tryggvi Guðmundsson og Finnur Ólafsson verða í leikbanni í næsta leik ÍBV, sem verður reyndar ekki fyrr en 11. september vegna landsleikjavikunnar sem nú er að hefjast. Báðir fengu þeir sitt fjórða spjald í leiknum gegn KR og taka því út leikbannið þegar Þór frá Akureyri kemur í heimsókn. (meira…)
Kjötsúpuhátíð og Heilsuvika í Rangárþingi eystra

Hin árlega Kjötsúpuhátíð Rangárþings eystra fer fram núna um helgina 2.-4. september á Hvolsvelli. Hátíðin er aðeins fyrr á ferðinni í ár en áður hefur verið og góð leið til að byrja haustið. Hátíðin sem áður hefur verið eingöngu með dagskrá á laugardegi er óðum að færa sig yfir á föstudag, með súpukvöldi, brennu og […]