Herjólfsferð fellur niður vegna of mikillar ölduhæðar

Í tilkynningu frá Eimskipum, segir að ferð Herjólfs kl. 11.30 frá Eyjum og kl. 13.00 frá Landeyjahöfn falli niður vegna of mikillar ölduhæðar. Ölduhæð við Landeyjahöfn er 2,2 metrar og 2,6 metrar. Þeir farþegar sem eiga miða í þessar ferðir færast sjálfkrafa á næstu ferðir sem farnar verða klukkan 14:30 frá Vestmannaeyjum og 16:00 frá […]

Fyrsta vélin sem lenti á flugvellinum í Eyjum snýr aftur

Þann 14. ágúst 1946 lenti fyrsta flugvélin TF-KAK á flugvellinum í Vestmanneyjum klukkan 14.30. Flugmenn sem flugu vélinni voru þeir Halldór Bech og Hjalti Tómasson. Nú 65 árum síðar ætla Ottó Týnes og félagar að minnast þessa atburðar og koma á sömu vél á morgun, laugardag, 20. ágúst, klukkan 14:30. (meira…)

Inntaka (busun) nýnema

Haustið 2010 urðu talsverðar umræður um nokkur leiðinda­atvik sem tengdust nýnemum Framhaldsskólans, en áttu sér stað að kvöldlagi utan skólans, helgina fyrir skólasetningu. Þrátt fyrir að skólinn hafi lagt mikla vinnu í að gera inntöku nýnema í skólann skemmtilegri og jákvæðari en áður, hefur borið á því undanfarin ár að níðst sé á verðandi nemendum […]

Svalbrúsi sást við Heimaey

Svalbrúsi (Gavia adamsii) sást við Heimaey í morgun. Svalbrúsi er stærstur brúsanna, lítið eitt stærri en himbrimi. Þetta er í fyrsta skipti sem svalbrúsi sést við Ísland. Þeir verpa við íshafsströnd Rússlands, norður Kanada og Alaska en á veturna sjást þeir t.d. suður með Noregsströndum. Var orðið löngu tímabært að svalbrúsi fyndist við Ísland. (meira…)

Nær til 211 barna í Eyjum

Verkfall leikskólakennara er yfirvof­andi og ef samningar takast ekki fyrir mánudaginn 22. ágúst skellur á verkfall leikskólakennara og þá lokast leikskólarnir Sóli og Kirkju­gerði í Vestmannaeyjum. Þar eru samtals 211 börn þannig að verkfall­ið mun hafa víðtæk áhrif. (meira…)

Maður á ekki að fá minni laun fyrir að kenna minna fólki !

Á hverjum degi fer ég afar glöð í vinnuna mína því að mínu mati er ég svo heppin að vinna skemmtilegustu og yndislegustu vinnu í heimi. Daglega fæ ég knús, kossa, klapp á bakið, hor í öxlina, tár í peysuna, ég reima skó, renni upp úlpum, klæði í vettlinga og fæ bros í staðin sem […]

Meira undir veðurguðunum komið en skipstjórum, skipi og dýpkun

Dæluskipið Skandia sér um dýpkun á Landeyjahöfn og nú þegar líður á sumarið heyrast þær raddir að besti tími ársins sé ekki nýttur sem skyldi við dýpkun og undirbúning hafnarinnar. Sporin hræða því Landeyhöfn var lokuð vikum saman síðasta vetur og skipstjórar Herjólfs telja að frátafir verði ekki minni næsta vetur þar sem staðan á […]

Laglegur sigur hjá stelpunum

ÍBV náði í kvöld fjögurra stiga forystu á Þór/KA í baráttunni um þriðja sætið með því að leggja KR að velli í Eyjum 4:0. Lokatölur leiksins gefa þó ekki alveg rétta mynd af gangi mála því það voru KR-ingar sem voru mun sterkari í fyrri hálfleik. Það var því þvert gegn gangi leiksins þegar Kristín […]

Forseti bæjarstjórnar tekur við sem rekstrarstjóri Herjólfs

Gunnlaugur Grettisson hefur verið ráðinn í starf rekstrarstjóra Herjólfs. Gunnlaugur hefur undanfarin 10 ár starfað sem skrifstofustjóri hjá Sýslumanninum í Vestmannaeyjum auk þess sem hann er forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja. Gunnlaugur tekur við nýja starfinu þann 20. september nk. af Guðmundi Pedersen sem hefur gegnt starfi rekstrarstjóra Herjólfs frá því Eimskip tók við rekstri skipsins í […]

Stelpurnar taka á móti KR í kvöld

ÍBV tekur á móti KR í Pepsídeild kvenna á Hásteinsvellinum í kvöld en leikur liðanna hefst klukkan 18:00. ÍBV er í þriðja sæti deildarinnar en getur með sigri aukið forskot sitt á Þór/KA, sem er í fjórða sæti í fjögur stig en nú munar aðeins einu stigi á liðunum tveimur. KR má hins vegar muna […]

Aðalmeðferð í kynferðisbrotamáli hefst í dag

Aðalmeðferð í máli manns á fimmtugsaldri hefst í dag við Héraðsdóm Suðurlands en maðurinn er ákærður fyrir kynferðisbrot gegn stúlkubarni. Athæfið átti sér stað um nokkurra mánaða skeið á árunum 2009 og 2010 en meðal þess sem fannst í fórum mannsins voru ljósmyndir og myndbönd sem hann hafði tekið upp af sér og barninu. Frá […]

�?rjár úr ÍBV í liði 13. umferðarinnar

Þrír leikmenn kvennaliðs ÍBV eru í liði 13. umferðarinnar sem knattspyrnuvefurinn Fótbolti.net birti í morgun. Þetta eru þær Julie Nelson, Svava Tara Ólafsdóttir og Kristín Erna Sigurlásdóttir en ÍBV vann stórsigur á Þrótti á útivelli í síðasta leik 0:5 en Kristín Erna skoraði einmitt tvö mörk í leiknum. (meira…)

Sumaráætlun Herjólfs framlengist til 4. september

Sumaráætlun Herjólfs sem gilda átti til 15. ágúst hefur verið framlengd til 4. september, eða þar til skipið fer í slipp til Danmerkur. Þá mun ms. Baldur taka við siglingum í Landeyjahöfn og er einnig fyrirhugað að hann sigli 5 ferðir á dag í Landeyjahöfn. Hinsvegar kann tímaáætlun eitthvað að raskast þar sem Baldur gengur […]

Stefán ráðinn skólastjóri Tónlistarskólans

Bæjarráð Vestmannaeyja samþykkti tillögu framkvæmdastjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs um að ráða Stefán Sigurjónsson sem skólastjóra Tónlistarskóla Vestmannaeyja. Alls sóttu átta aðilar um stöðuna en sex umsóknir voru gildar, tvær bárust of seint. Enginn af umsækjendunum sex sem voru með gildar umsóknir uppfylltu að öllu leyti hæfniskröfur sem óskað var eftir. Stefán hefur starfað við Tónlistarskólann […]

Kelvin kvaddi með marki

Eyjamenn unnu í kvöld afar mikilvægan sigur á Íslandsmeisturum Breiðabliks þegar liðin mættust á Kópavogsvellinum. Lokatölur urðu 1:2 fyrir ÍBV en staðan í hálfleik var 1:1. Kelvin Mellor spilaði í kvöld sinn síðasta leik fyrir ÍBV en hann hefur verið í láni hjá ÍBV frá enska félaginu Crewe en hann heldur af landi brott í […]

Alpasvölungur í Ystakletti

Alpasvölungur sást í Ystakletti í Vestmannaeyjum í síðustu viku en þetta er fjórði fuglinn af þessari tegund sem finnst hér á landi. Þetta kemur fram á vefnum fuglar.is sem birtir fréttir um sjaldgæfa fugla sem heimsækja Ísland. Þar má lesa um að tígulþerna hafi sést í Flóa og rósastari í Öræfum. Þá hefur stútsgoði sést […]

Færður á sjúkrahús eftir líkamsárás

Síðasta vika var með þeim rólegri hjá lögreglunni í Vestmanneyjum. Mikill fjöldi ferðamanna var þó í Eyjum í þessari viku og ýmsar uppákomur í bænum um sl. helgi. Skemmtanahald fór þó vel fram og þurfti lögreglan í einstaka tilfellum að aðstoða fólk vegna ölvunarástands. Þá þurfti lögreglan að hafa tal að fólki vegna hávaða í […]

�?löglegir íbúar í Vestmannaeyjum �?? gerum betur

Eitt af því sem mér var innrætt í bernsku var að vera góð við dýr og aðra sem ekki höfðu eigin getu eða tungumál til að koma koma réttindum sínum á framfæri. Hún Lóa litla sem er fiðrildatík hefur verið í minni eigu á þriðja ár. Ég er hennar talsmaður og lít á það sem […]

Mæta Breiðabliki í kvöld

Karlalið ÍBV mætir Breiðabliki í kvöld klukkan 19:15 á Kópavogsvellinum. Leikurinn átti upphaflega að fara fram klukkan 18:00 en honum var seinkað þar sem leikurinn verður í beinni útsendingu Stöðvar 2 Sport. Hægt verður að fylgjast með útsendingunni í Hallarlundi en húsið opnar 18:30. Sem fyrr verður Kári Fúsa á kantinum, tilbúinn að skjótast með […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.