Ingvi Hrafn á að skammast sín fyrir ummæli um Eyjamenn

Oft horfi ég á sjónvarpsstöðina ÍNN og hef gaman af. Þar eru margir áhugaverðir og skemmtilegir þættir. Gaman er að fylgjast með Hrafnaþingi að maður tali nú ekki um þegar Heimastjórnin mætir í þáttinn. Ef til vill er enn meira gaman fyrir okkur sem teljumst aðeins til hægri að hlusta heldur en gallharða vinstrimenn. Þessi […]
Markvörður liðsins 45 ára og elsti leikmaðurinn hálfsextugur

Lið KFS lagði KH í 3. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu með 7 mörkum gegn 3. Það sem gerði þennan leik eftirminnilegan er að markvörður KFS, Þorsteinn Gunnarsson er 45 ára gamall og þá lék Hjalti Kristjánsson, þjálfari liðsins, síðustu mínúturnar, en hann er 53 ára gamall. Ekki er vitað um neinn sem spilað hefur í […]
Best fyrir mig að byrja í sænsku deildinni

Eiður Aron Sigurbjörnsson skrifaði á dögunum undir fjögurra ára samning við sænska úrvalsdeildarliðið Örebro. Eiður hefur spilað einstaklega vel í hjarta varnar ÍBV í sumar og verður sárt saknað en hann og Rasmus Christiansen hafa myndað eitt sterkasta miðvarðarpar deildarinnar. Eiður spilaði sinn síðasta leik með ÍBV gegn Fylki en hann kom inn á í […]
Tónlistarperlan Vestmannaeyjar

Vestmannaeyingar hafa það orðspor að vera miklir tónlistarmenn. Eyjalögin eru landsfræg og ríkt tónlistarlíf er, og hefur alltaf verið, hluti af menningu Eyjamanna. Sem barn hafði ég ekki neinn sérstakan áhuga á tónlist. Tvær „þróanir“ urðu þó til þess að breyta því. Fyrsta þróunin varð þegar breska hljómsveitin Prodigy gaf út lagið Firestarter og ég […]
�?g hef tekið miklum framförum hjá ÍBV

Guðmundur Þórarinsson framlengdi í síðustu viku samningi sínum hjá ÍBV um tvö ár. Guðmundur, sem er fæddur og uppalinn á Selfossi, þykir einn af efnilegustu knattspyrnumönnum landsins og þrátt fyrir að vera aðeins 19 ára gamall, hefur hann talsverða reynslu af efstu deild. Þessi hressi miðjumaður var til í smá spjall af þessum tímamótum. (meira…)
Verður til þess að eyðileggja miðbæinn

Félag kaupsýslumanna í Vestmannaeyjum skilaði í síðustu viku inn undirskriftalistum sem lágu í nokkrum verslunum í miðbænum vegna hugmynda um verslunarhúsnæði við Löngulág. Alls skrifuðu 845 manns undir en Gréta Hólmfríður Grétarsdóttir, formaður félagsins, afhenti Gunnlaugi Grettissyni, formanni umhverfis- og skipulagsráðs Vestmannaeyja og forseta bæjarstjórnar, listann. (meira…)
Flest fyrirtæki búin að byrgja glugga

Það hefur varla farið framhjá mörgum uppþotin sem hafa verið í helstu borgum Bretlandseyja í vikunni. Verstu lætin voru í London en þar hefur ástandið róast nokkuð en um leið færst til annarra borga. Ástþór Ágústsson, Eyjamaður býr stutt frá Lewisham í London en þar voru nokkur læti í vikunni. (meira…)
Unglingar með hærri laun en í höfuðborginni

Vestmannaeyjabær greiðir ungmennum í Vinnuskólanum hærri laun en í Reykjavík, Akureyri og Skagafirði. Þannig borgar Vestmannaeyjabær um 30% hærri laun fyrir nemendur í 8. bekk en þar sem þau eru lægst, 42% hærri laun fyrir nemendur í 9. bekk og 33% hærri laun fyrir nemendu rí 10. bekk. Í tveimur síðastnefndu bekkjunum er borið saman […]
�?etta verður alveg gordjöss hjá okkur

Þann 17. september nk. verður hið árlega lundaball haldið í Höllinni. Álseyingar, sem að þessu sinni sjá um ballið, segja undirbúning ganga vel og að ballið verði glæsilegra en nokkru sinni fyrr. Þrátt fyrir veiðibann á lunda í Eyjum þá eru Álseyingar búnir að útvega lunda, svartfugl og annað nauðsynlegt góðmeti fyrir ballið þannig að […]
Staða Fasteignar að skýrast

Íslandsbanki mun yfirtaka eignir Fasteignar sem ekki tilheyra sveitarfélögunum sem standa að félginu. Leigueign Arion banka hf. í Borgarnesi kann þó að verða undanskilin við yfirtökuna. Íslandsbanki mun jafnframt yfirtaka hluta af rekstrarláni félagsins, sem nemur samtals um einum milljarði í hlutfalli við virkan eignarhlut bankans í Fasteign eftir útgöngu Álftaness og Garðabæjar úr félaginu. […]
Heimir útskrifast með UEFA Pro þjálfaragráðu

Fyrr í sumar bættist enn í hóp íslenskra þjálfara sem hlotið hafa UEFA Pro þjálfaragráðu frá erlendu knattspyrnusambandi þegar Eyjapeyjinn Heimir Hallgrímsson lauk námi sínu hjá enska knattspyrnusambandinu. Heimir er fimmti Íslendingurinn sem útskrifast með UEFA Pro þjálfaragráðu frá Enska knattspyrnusambandinu. Hinir eru Guðjón Þórðarson, Sigurður Ragnar Eyjólfsson, Willum Þór Þórsson og Þorvaldur Örlygsson. (meira…)
Komið í veg fyrir að Eyjamenn geti veitt annarsstaðar

Georg Eiður Arnarson, lundaveiðimaður skrifar harðorða grein á bloggsíðu sinni þar sem segir vísindamanninn dr. Erp Snæ Hansen vinna gegn lundaveiðimönnum í Eyjum. Georg segist hafa fengið það staðfest að Erpur reyni að hindra það að lundaveiðimenn frá Eyjum fái að veiða lunda annarsstaðar á landinu. Auk þess segir Georg að ákvörðunin um algjört lundaveiðibann […]
En fáum við þá Herjólf þegar Baldur þarf að fara slipp

Þegar Herjólfur fer í slipp í byrjun september, mun Breiðafjarðarferjan Baldur leysa hann af og halda uppi siglingum milli lands og Eyja. Margir Vestfirðingar eru hinsvegar ekki mjög ánægðir með að missa Baldur eins og sjá má á þessu greinarkorni sem birtist á vefnum bb.is. Segja þeir furðulegt að leggja eigi ferðaþjónustu á suðurfjörðum Vestfjarða […]
Fíflalús gerir íbúum lífið leitt

Fíflalús er nú áberandi í húsgörðum í Eyjum og gerir garðeigendum og íbúunum lífið leitt. Á vef Náttúrufræðistofu Íslands kemur fram að fíflalús sé nýlegur landnemi á Íslandi. Elstu sýni eru frá síðsumrinu 2007 en hún var þó farin að láta á sér bera einhverjum sumrum fyrr. (meira…)
Ekki að búa til einkaskóla

Jón Pétursson, framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs Vestmannaeyjabæjar, sagði ákvörðun um útboð á Sóla vera pólitíska ákvörðun sem tekin hafi verið í bæjarstjórn og fræðslu- og menningarráði falið að vinna að framgangi málsins. (meira…)
Hverfur lundinn?

Dr. Erpur Snær Hansen segir í viðtali Morgunblaðsins í dag að allt stefni í að lundastofninn hverfi algjörlega í Vestmannaeyjum ef þróun stofnsins haldi áfram eins og verið hefur en Erpur segir að tuttugu ár séu eftir að hlýindaskeiðinu sem nú er á Íslandi. Lundavarp hefur að miklu leyti misfarist í Eyjum undanfarin sumur en […]
Hinn grunaði áður dæmdur fyrir nauðgun

Hálfþrítugur karlmaður sem situr í gæsluvarðhaldi, grunaður um að hafa nauðgað ungri konu á Þjóðhátíðarsvæðinu í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina síðustu, hefur hlotið dóm fyrir að nauðga ungri stúlku á tjaldsvæði. (meira…)
Erfiður útileikur hjá ÍBV í kvöld

Kvennalið ÍBV mætir Þrótti á Valbjarnarvellinum í Laugardal í kvöld í 13. umferð Pepsídeildar kvenna. Þróttur er í mikilli fallhættu, liðið er í næst neðsta sæti, fjórum stigum frá öruggu sæti og berst nú fyrir lífi sínu í efstu deild. ÍBV, sem fyrripart sumars var í toppbaráttunni, hefur fært sig aðeins neðar og er nú […]
Stórtónleikar með helstu og bestu lögum úr sögu Leikfélags Vestmannaeyja

Jórunn Lilja Jónasdóttir og Birkir Thór Högnason, í samvinnu við Leikfélag Vestmannaeyja, Höllina og Godthaab í Nöf, munu þann 24. september næstkomandi standa fyrir stórtónleikum í Höllinni. Þar munu verða flutt öll helstu og bestu lög úr sögu Leikfélags Vestmannaeyja. Margir leik- og söngvarar koma fram á tónleikunum en lagt er áherslu á að lög […]
Gunnar Heiðar keppir við Ronaldo og Nani

Eyjamaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði um helgina stórglæsilegt mark gegn sínu gamla félagi Halmstad þegar lið hans Norrköping tapaði 5:4. Gunnar kom Nörrköping yfir 1:2 í byrjun seinni hálfleiks þegar hannn klippti boltann á lofti fyrir utan teig og skaut honum í fallegum boga í fjærstöngina og inn, algjörlega óverjandi. Myndband af markinu má sjá […]