Stórsveitin SAGA í Vodafonehöllinni 4. nóvember

Aðdáendur SÖGU ættu ekki að verða fyrir vonbrigðum þar sem sveitin mun heimsækja landann í haust. Þetta eru „best of“ tónleikar hjá þeim og því þeir munu flytja öll sín bestu lög á mögnuðum tónleikum í Vodafonehöllinni föstudagskvöldið 4. nóvember. Miðasala á tónleikana hefst þann 6. júlí, eða á morgun klukkan 10:00 á www.midi.is. (meira…)
Eitt tilboð barst í rekstur skipalyftunnar en því var hafnað

Á fundi framkvæmda- og hafnarráðs Vestmannaeyjabæjar í gærdag kom fram að eitt tilboð barst í rekstur á upptökumannvirki hafnarinnar, sem senn verður tilbúið eftir tjón sem þar varð fyrir nokkrum árum. Reksturinn á upptökumannvirkinu var boðinn út á EES svæðinu og sóttu fimm aðilar útboðsgögn en eingöngu eitt tilboð barst og var það frá Skipalyftunni […]
Stelpurnar sækja Fylki heim í dag

Kvennalið ÍBV sækir Fylki heim í dag í Íslandsmótinu en leikur liðanna hefst klukkan 18:00 á Fylkisvellinum. Eyjastúlkur hafa aðeins gefið eftir í undanförnum leikjum eftir frábæra byrjun á tímabilinu en í síðustu fjórum leikjum hefur ÍBV tapað tveimur, gert eitt jafntefli en unnið einn. Síðast tapaði liðið gegn Aftureldingu í bikarnum og féll þar […]
Landeyjahöfn hugsanlega lokuð næstkomandi vetur

Í Fréttablaðinu í dag er fjallað um vandræði Landeyjahafnar og því velt upp að hugsanlega verði höfninni lokað næsta vetur. Blaðið fær reyndar enga staðfestingu á því, frekar en aðrir fjölmiðlar sem hafa fjallað um málið en Guðmundur Nikullásson, framkvæmdastjóri hjá Eimskips staðfestir í umfjölluninni að lokun hafnarinnar hafi verið rædd í samráðshópi um Landeyjahöfn. […]
Hópur fólks með uppsteyt um helgina

Ekki verður betur séð en að ákveðinn hópur fólks hafi séð lögreglunni fyrir verkefnum um helgina. Þannig hafði lögregla afskipti af manni sem réðist á annan með hafnarboltakylfu. Vinur árásarmannsins reyndi svo að bæta um betur gegn fórnarlambinu sem flúði. Ökumaður var svo hlaupinn uppi grunaður um ölvun við akstur en einstaklingar sem voru í […]
Herjólfsatvik til skoðunar

Rannsóknarnefnd sjóslysa skoðar atvik sem varð við Landeyjahöfn fyrir rúmri viku þegar Herjólfur snerist og stefndi að öðrum varnargarði hafnarinnar. Heimildamenn telja að legið hafi við stórslysi en um 300 farþegar voru um borð, flestir ungir fótboltastrákar. Þetta kom fram í fréttum RÚV. (meira…)
Eyjamenn sækja �?ór heim í undanúrslitum

Nú rétt í þessu var að ljúka drætti í undanúrslitum Valitor bikar karla. ÍBV var í pottinum en Eyjamenn fengu útileik gegn Þór frá Akureyri. Margir höfðu látið sig dreyma um undanúrslitaleik í Eyjum á fimmtudeginum fyrir Þjóðhátíð en nú er ljóst að ekkert verður af því. Leikurinn verður án efa erfiður fyrir ÍBV enda […]
Saint Patricks tapaði toppslagnum

St. Patrick’s Athletic, andstæðingar ÍBV í Evrópudeild UEFA, töpuðu í annað sinn á fjórum dögum í gærkvöld en Shamrock Rovers lagði þá að velli, 1:0, í uppgjöri efstu liðanna í írsku úrvalsdeildinni. Lið St. Patrick’s hafði ekki tapað í 14 leikjum í röð áður en það mætti ÍBV á Hlíðarenda síðasta fimmtudag, en þá tapaði […]
Sigldu með farþega í nótt

Síðasta ferð Herjólfs í gær var ekki farin fyrr en klukkan hálf þrjú í nótt. Fyrr um daginn var tveimur ferðum skipsins frestað þar sem aðstæður við Landeyjahöfn þóttu ekki nógu góðar. Fjöldi manns beið hins vegar eftir því að komast til síns heima eftir fjölmenna Goslokahátíð um helgina og myndaðist örtröð við afgreiðslu skipsins […]
Komnir í undanúrslit

Karlalið ÍBV er komið í undanúrslit í bikarkeppninni eftir 1:2 sigur á 1. deildarliði Fjölnis. Liðin áttust við í Grafarvoginum í kvöld en staðan í hálfleik var 0:0. Lokahluti leiksins var fjörugur, Bryan Hughes kom ÍBV yfir úr vítaspyrnu á 76. mínútu en heimamenn jöfnuðu aðeins fimm mínútum síðar. Það var svo varnarmaðurinn Brynjar Gauti […]
Ferðir Herjólfs kl. 17,30 frá Eyjum og 19 frá Landeyjahöfn féllu niður

Á vef Herjólfs segir, að slæm skilyrði hafi verið til siglinga Herjólfs í Landeyjahöfn í allan dag. „Vindur hefur farið allt upp í 22 m/s í hviðum, ölduhæð allt að 2,6 m á Bakkafjöruduflum og sjólag í hafnarkjaftinum hefur verið slæmt auk þess sem Vesturfallið(sjávarstraumurinn meðfram ströndinni) er með mesta móti. Herjólfur hefur náð því […]
Mæta Fjölni á útivelli í dag

Það er óhætt að segja að það sé skammt stórra högga á milli hjá karlaliði ÍBV. Á fimmtudaginn lagði liðið Saint Patrick’s Athletic í Evrópukeppninni og í dag mun liðið leika gegn Fjölni í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar. Þá tekur við ferðalag til Írlands fyrir seinni leikinn gegn St. Pat’s á fimmtudaginn. Strákarnir koma svo til […]
Góður útisigur hjá KFS í gær

KFS vann í gær góðan útisigur á Létti í B-riðli 3. deildar en leikurinn fór fram á gervigrasi ÍR-inga í Reykjavík. Lokatölur urðu 2:3 en í hálfleik var staðan 2:2. Gauti Þorvarðason kom KFS yfir strax á 5. mínútu en heimamenn svöruðu með tveimur mörkum. Sæþór Jóhannesson jafnaði hins vegar metin á síðustu mínútu fyrri […]
Tvær ferðir felldar niður vegna veðurs

Vegna veðurs var ekki siglt frá Vestmannaeyjum klukkan 11:30 og 13:00 í dag eins og gert var ráð fyrir samkvæmd áætlun skipsins. Fjöldi fólks er nú í Vestmannaeyjum og bíður þess að komast til síns heima en Goslokahátíðin fór fram í Eyjum um helgina. Flugsamgöngur gengu hins vegar venju samkvæmt í morgun og flaug Flugfélagið […]
ÍBV úr leik í bikarnum eftir maraþonviðureign

Það gekk ekki þrautalaust fyrir sig að fá niðurstöðu í leik ÍBV og Aftureldingar í dag í bikarkeppninni. Liðin mættust í roki og rigningu á Hásteinsvelli en eftir venjulegan leiktíma og framlengingu, varð að grípa til vítaspyrnukeppni. Þar fékk hvort lið um sig fimm spyrnur en að þeim loknum var staðan jöfn, 3:3. Því var […]
Gústi – Minningarorð um fallinn félaga

Jæja vinur, þá er þinni ferð lokið. Það er víst sama hversu mikil lífsþrá okkar er, jarðvist okkar endar, sem betur fer. Ég veit ekki hvernig blessað lífið væri, ef hér í Eyjum væru margir íbúar ríflega þúsund ára gamlir. Við hefðum samt haft gaman af því að spekúlera í því og útfæra það í […]
Mæta Aftureldingu í dag í bikarnum

Kvennalið ÍBV tekur á móti Aftureldingu í dag á Hásteinsvelli í Valitorbikarkeppninni en leikurinn hefst klukkan 16:00. Sigurvegari leiksins kemst í undanúrslit keppninnar en Fylkir, Valur og KR hafa þegar tryggt sér sæti þangað. Flestir reikna sjálfsagt með sigri ÍBV, enda liðið í þriðja sæti Pepsídeildarinnar á meðan Afturelding er í næst neðsta sætinu. Hins […]
Erill á goslokahátíðinni

Dagskrá goslokahátíðarinnar í Eyjum hófst í gær og stendur fram á sunnudag. Hápunkturinn verður í kvöld í Skvísusundi. Annars rekur hver atburðurinn annan. Veður hefði mátt vera betra, en frá því í gær hefur verið nokkuð sterk suðaustan átt með þoku og vætu og samkvæmt spá á það veður einnig að vera í dag, en […]
�?venjuleg dýr á ferli

Í lok júnímánaðar var komið með varmasmið og haftyrðil í sumarbúningi á Fiskasafnið, sem báðir höfðu fundist hér í Vestmannaeyjum. Varmasmiðurinn (Carabus nemoralis) fannst í garði við Foldahraun og er sá fyrsti sem vitað er um að hafi fundist í Vestmannaeyjum, en þeir eru tiltölulega nýlegir landnemar á Íslandi. Líklegt má telja að hann hafi […]
Ein ferð Herjólfs fellur niður vegna veðurs

Ferð Herjólfs frá Vestmannaeyjum kl. 14.30 og frá Landeyjahöfn kl. 16.00 voru felldar niður vegna veðurs. Ölduhæð á duflum við Landaeyjahöfn sýna 2,2 og 2,5 metra og vindurinn er aust-suðaustan 14. Reiknað er með að frekari ferðir falli ekki niður í dag. Á sunnudaginn 3. júlí er fyrirhuguð aukaferð Herjólfs frá Eyjum kl. 23.00. (meira…)