Gísli Jón áfram hjá ÍBV

Eyjamenn eru farnir að safna vopnum fyrir komandi átök í vetur í handboltanum. ÍBV spilar í 1. deild en Eyjamenn ætla sér stóra hluti þar. Gísli Jón Þórisson skrifaði fyrir stuttu undir árs framlengingu á samningi sínum við félagið en Gísli Jón gekk í raðir ÍBV á miðju síðasta leiktímabili. (meira…)
�?rjátíu og fimm ár frá því Herjólfur númer tvö kom

Þann 4. júlí árið 1976 kom Herjólfur númer 2 í fyrsta skipti til heimahafnar í Vestmannaeyjum. Hann var í eigu hlutafélagsins Herjólfs hf. sem stofnað hafði verið. Hann þjónaði Eyjamönnum til ársins 1992 þegar núverandi Herjólfur kom. (meira…)
Fyrstu tunnurnar á leiðinni

Fyrstu tunnurnar í þriggja tunnu flokkunarkerfi sorps komu til Vestmannaeyja á mánudaginn. Mun Íslenska gámafélagið dreifa þeim til íbúa og er miðað við að því verði lokið í þessari viku. Þetta kom fram á fundi í framkvæmda- og hafnarráði sem leggur ríka áherslu á að Íslenska gámafélagið upplýsi bæjarbúa um seinkunina. Kerfið átti að koma […]
Vinnslustöðin greiðir rúmar 500 milljónir í arð

Í Viðskiptablaðinu er greint frá því að Vinnslustöðin hafi hagnast um 13,7 milljónir evra, eða um tæpa 2,3 milljarða króna fyrir fjármagnsliði og skatta á árinu 2010. Það er tvöfallt meiri hagnaður en árið á undan. Hagnaður eftir fjármagnsliði og skatta nam 4,4 milljónir evra, eða 735 milljónum króna. Lagt er til að greiða arð […]
Hafin verði hönnun á nýju skipi

Elliði Vignisson, bæjarstjóri segist mjög ósáttur við framgang mála í Landeyjahöfn. Hann segir að því miður líti allt út fyrir að Eyjamenn og aðrir notendur Landeyjahafnar séu í sömu sporum og í fyrravetur þó komið sé hásumar. Ástæðan er að á sunnudaginn var ferðum frestað vegna veðurs sem var langt innan þeirra marka sem upphaflega […]
Eyjamenn úr leik í Evrópukeppninni

ÍBV er úr leik í Evrópudeild UEFA eftir að hafa tapað fyrir írska liðinu Saint Patrick’s Athletic 2:0 í Dublin í kvöld. Fyrri leik liðanna lauk með 1:0 sigri ÍBV en írska liðið fer því áfram 2:1 samanlagt. Bæði mörk írska liðsins komu í fyrri hálfleik, á 24. og 36. mínútu. En þrátt fyrir að […]
Kasakstanför bíður Eyjamanna

Eyjamenn þurfa heldur betur að leggja land undir fót ef þeir slá St. Patrick’s Athletic út í 1. umferð Evrópudeildar UEFA í fótbolta í Dublin í kvöld. Nú liggur fyrir að andstæðingar þeirra í 2. umferð yrðu Shakhter Karagandy frá Kasakstan. (meira…)
Herjólfur flutti 44 þúsund farþega í júnímánuði

4. maí tókst að opna Landeyjahöfn aftur fyrir siglingum Herjólfs og hefur þeim verið haldið uppi síðan. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hafa einhverjar ferðir fallið niður eða verið seinkað vegna veðurs, viðhalds og/eða bilana á skipi. Þessi frávik eru þó mun færri heldur en ætla mætti af umfjöllun fjölmiðla. Í júní flutti […]
Vertíðarstemmning í Eyjum

Vertíðarstemmningin við humar- og makrílvinnslu í Vestmannaeyjum er á við það sem gerðist fyrir tæpum þremur áratugum segir mannaflsstjóri Vinnslustöðvarinnar, Þór Ísfeld Vilhjálmsson. Hann segir að um 150 manns hafi verið ráðnir við fiskvinnslu fyrirtækisins frá því um miðjan maí. (meira…)
Gróa Hreinsdóttir verður á orgeli Landakirkju í júlímánuði

Gróa Hreinsdóttir, kórstjóri og organisti í Hveragerði, verður organisti Landakirkju í júlí og stýrir Kór Landakirkju þennan mánuðinn. Hún mun koma um helgar til að messa á sunnudögum og við önnur tækifæri þar sem óskað er eftir orgelleik við athafnir. Ekki hefur enn verið gengið frá fastráðningu organista við Landakirkju en auglýsing um starfið í […]
Í ár hafa 30 bæst í hóp þeirra 140 fyrirtækja sem njóta þjónustu hennar

Markaðsstofa Suðurlands hefur nú verði starfrækt í tvö ár og unnið ötullega að því að styrkja hlutdeild fyrirtækja á Suðurlandi í ferðamannastraumnum og þjónustu við ferðamenn. Síðastliðinn vetur var tekin upp sú nýbreytni að bjóða ferðakaupendum í kynnisferðir um svæðið. Davíð Samúelsson framkvæmdastjóri Markaðsstofunnar er ekki í vafa um að kynning af þessu tagi skili […]
Ekki vantraust á Eimskip

Elliði Vignisson, bæjarstjóri, staðfesti í samtali við Fréttir að Vestmannaeyjabær sé að leita að skipi sem getur þjónustað Vestmannaeyjar um Landeyjahöfn, ef til þess kemur að Herjólfur verði látinn sigla til Þorlákshafnar næsta vetur. Leitin er á frumstigi en nokkur skip hafa komið upp á borðið. „Við ákváðum að kanna þessa leið þegar fyrir lá […]
Ítarleg umfjöllun um golfvöllinn í Eyjum í Golfing World

Aðstandendur fréttaþáttarins Golfing World komu hingað til lands á dögunum og tóku upp ítarlega kynningu á Golfvelli Vestmannaeyja. Golfing World eru vandaðir fréttaþættir sem fjalla um allt það helsta sem er að gerast í golfinu og eru þessar golfvallakynningar meðal fastra liða í þáttunum. Golfvellirnir sem fjallað hefur verið um spanna öll heimshorn og því […]
Díoxín hvergi yfir hættumörkum

Umhverfisstofnun segir að niðurstaða mælinganna á díoxíni í jarðvegi sé sú að efnið sé í öllum tilvikum undir þeim mörkum sem kalli á takmarkanir á nýtingu, hreinsun jarðvegs eða geta skapað hættu fyrir almenning og lífríki. Almenningur þurfi ekki að hafa áhyggjur af því að rækta í jarðvegi, tína ber eða nýta aðrar náttúruafurðir. (meira…)
�?ryggi farþega, áhafnar og skips er ofar öllum sérhagsmunum, pólitík, deilum og dægurþrasi

Eimskipafélag Íslands vill koma eftirfarandi yfirlýsingu á framfæri við fjölmiðla. Frá 21. júlí á síðasta ári hefur Herjólfur siglt á milli Eyja og Landeyjahafnar. Þessar siglingar gengu vel yfir sumarmánuðina en frá september fram í janúar fór dýpið, vindur og sjólag að valda erfiðleikum í siglingum milli Landeyjahafnar og Eyja. Siglingastofnun reyndist ekki unnt að […]
Hermann skrifar undir hjá Portsmouth

Hemann Hreiðarsson hefur samþykkt að gera nýjan eins árs samning við enska 1. deildarliðið Portsmouth og er búist við því að hann skrifi undir samninginn á föstudaginn þegar hann mætir til æfinga að loknu sumarfríi. (meira…)
Skammist ykkar!

Elliði Vignisson, bæjarstjóri er ekki mjög ánægður með skrif blaðamanna á Fréttablaðinu. Elliði skrifar stutta grein á Fésbókarsíðu sína þar sem hann fjallar um leiðara blaðsins sem Bergsteinn Sigurðsson skrifar og birtist á Vísi.is undir fyrirsögninni Uppáhaldssynir og olnbogabörn. Þar segir Bergsteinn m.a. að Elliði hefði hrósað Eyjunum fyrir afreksmanninn Hermann Hreiðarsson en að hann […]
Meiri vinna í Eyjum gerir okkur erfitt fyrir

Á www.fotbolti.net er reglulega tekið hús á félögum í neðri deildinni. Í dag situr þjálfari KFS, heimilislæknirinn Hjalti Kristjánsson fyrir svörum en hann hefur þjálfað KFS svo lengi sem elstu menn muna. Hjalti segir m.a. að meiri vinna í Eyjum geri félaginu erfitt fyrir. Spjallið við þann þjálfara sem hefur setið hvað lengst í starfi […]
ÍBV í mikilli lægð

Svo virðist sem kvennalið ÍBV sé komið ákveðna lægð. Liðið hefur aðeins unnið einn leik af síðustu fjórum í deildinni, gert eitt jafntefli en tapað tveimur. Hugsanlega eru kröfurnar orðnar meiri eftir magnaða byrjun á tímabilinu en það er ljóst að ÍBV á að geta mun betur en það hefur sýnt í síðustu leikjum, sérstaklega […]
Stórsveitin SAGA í Vodafonehöllinni 4. nóvember

Aðdáendur SÖGU ættu ekki að verða fyrir vonbrigðum þar sem sveitin mun heimsækja landann í haust. Þetta eru „best of“ tónleikar hjá þeim og því þeir munu flytja öll sín bestu lög á mögnuðum tónleikum í Vodafonehöllinni föstudagskvöldið 4. nóvember. Miðasala á tónleikana hefst þann 6. júlí, eða á morgun klukkan 10:00 á www.midi.is. (meira…)