Umhverfisstofnun segir að niðurstaða mælinganna á díoxíni í jarðvegi sé sú að efnið sé í öllum tilvikum undir þeim mörkum sem kalli á takmarkanir á nýtingu, hreinsun jarðvegs eða geta skapað hættu fyrir almenning og lífríki. Almenningur þurfi ekki að hafa áhyggjur af því að rækta í jarðvegi, tína ber eða nýta aðrar náttúruafurðir.