Vestmannaeyjar verður gestasveitafélag á Sólseturshátíðinni í Garðinum um næstu helgi.

Helgina 24. – 26. júní heldur sveitafélagið Garður sína árlegu sólseturshátíð. Að þessu sinni bauð Ásmundur Friðriksson bæjarstjóri Vestmannaeyjum að vera gestasveitafélag. Vestmannaeyjabær kemur að flutningi á tónlistarfólki, en valinn hópur tónlistarmanna frá Eyjum ætlar að troða upp í Garðinum. Stærsti hluti þess tónlistarfólks, sem troðið hefur upp á Eyjakvöldunum á kaffi Kró sl. vetur […]
ÍBV fær írskan mótherja í Evrópukeppninni í knattspyrnu

Í morgun var dregið í forkeppni 1. umferðar Evrópukeppni UEFA. Mótherjar ÍBV verður írska knattspyrnuliðið Saint Patrick’s Athletic frá Dublin. Fyrri leikur ÍBV og Saint Patrick’s verður á Vodafone vellinum að Hlíðarenda fimmtudaginn 30. júní og sá síðari í Dublin á Írlandi fimmtudaginn 7. júlí. (meira…)
En hvað svo?

Herjólfur siglir nú til Landeyjahafnar, og þvílík breyting fyrir Vestmannaeyjar. Það er alveg ljóst að þessi ferðamáti er það sem fólk vill og vonar geti haldið áfram. Og þau voru fyrirheitin þegar ákveðið var að byggja þessa höfn. Í síðustu viku flutti Herjólfur 8 þúsund farþega milli lands og Eyja sem segir allt sem segja […]
Makríllinn að koma

Jæja nú er makríllinn að gefa sig til. Fréttir eru af góðri veiði í Grindavíkurdýpi. Þórunn Sveinsdóttir fór til veiða í gær og er að landa 50 tonnum af makríl. Þeir eru með 1440 troll í láni frá Huginn og það virðist vera að virka hjá Viðari og félögum. Trollararnir fengu ýsuskot í vikunni fyrir […]
ÍBV konur áfram í bikarnum

ÍBV sigraði Völsung frá Húsavík í dag í Valitor bikarkeppninni, 4-0. Leikið var á Hásteinsvelli. ÍBV var miklu sterkari og sigur þeirra síst of stór. Berglind Björk Þorvaldsdóttir skoraði 2 mörk, Hlíf Hauksdóttir skoraði eitt mark og það sama gerði Danka Padovac. (meira…)
Baseball kennsla á Stakkó í dag

Um þessa helgi minnist hvítasunnusöfnuðirinn í Eyjum þess, að liðin eru 90 ár frá stofnun safnaðarins hér í Eyjum. Í gær var söfnuðurinn með þétta dagskrá af þessu tilefni og eftir hádegið í dag verður baseball kennsla á Stakkó fyrir alla sem áhuga hafa. Kennarinn heitir Royal Rangers. (meira…)
�?mar á Fréttum í 25 ár

Það var á vordögum árið 1986 að blaðamaður á Fréttum lét af störfum eins og gengur. Vandlátur þáverandi ritstjóri Frétta vildi ekki auglýsa eftir nýjum blaðamanni, heldur kanna markaðinn sjálfur. „Honum var meðal annars bent á að kokkurinn á Vestmannaey VE 54 væri að hugsa um að koma í land en vantaði vinnu. Hann væri […]
Dagskrá 17. júní

Dagskrá 17. júní hátíðarhaldanna í Eyjum er með nokkuð hefðbundu sniði. Kl. 09.00 Fánar dregnir að húni í bænum. Kl. 10.30 Hraunbúðir Fjallkonan – Gíslína Dögg Bjarkadóttir flytur hátíðarljóð. Tónlistaratriði – Karlakórinn Stuðlar. Kl. 15.00 Lúðrasveit Vestmannaeyja leikur fyrir vistmenn og hátíðagesti. Kl. 13.20 Safnast saman við Íþróttamiðstöðina fyrir skrúðgöngu. Kl. 13.30 Gengið frá Íþróttamiðstöðinni […]
Lundi og lundaveiði

Í gær ákvað Umhverfis- og skipulagsráð á fundi sýnum að heimila ekki lundaveiði í Vestmannaeyjum fyrir árið 2011. Þetta var erfið ákvörðun og þó ekki. Ákvörðunin var erfið fyrir þær sakir að lundinn og lundaveiðin er samgróin sögu og menningu Eyjanna. Ákvörðununi var auðveld þar sem engum dylst að ástand stofnsins hér hefur verið mjög […]
Enn heldur ÍBV hreinu

ÍBV hélt hreinu í fimmta leiknum í röð í Pepsídeild kvenna en í kvöld sóttu Eyjastúlkur KR heim í vesturbæinn. Fyrir leikinn hafði ÍBV unnið alla leiki sína og ekki fengið á sig mark en skorað fjórtán. Markatalan breyttist ekkert hjá ÍBV eftir leikinn, liðin skildu jöfn 0:0 en ÍBV mistókst þar með í fyrsta […]
Lundaveiði bönnuð í Vestmannaeyjum

Bannað verður að veiða lunda í Vestmannaeyjum í sumar. Þetta var ákveðið á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Vestmannaeyja nú síðdegis. Við Vestmannaeyjar er stærsti lundastofn landsins. Talið er að ríflega 900.000 pör hafi orpið þar í fyrra. Vegna fæðuskorts komust hins vegar færri ungar á legg þá en nokkru sinni áður. (meira…)
Aldrei meiri óvissa

Litla kvótafrumvarpið var samþykkt á Alþingi á laugardaginn en þá höfðu verið gerðar á því umtalsverðar breytingar en þær nægðu ekki til að sátt næðist. Stóra frumvarpið var lagt til hliðar og verður tekið upp í haust. Verði það samþykkt er um algjöra uppstokkun á fiskveiðistjórnunarkerfinu að ræða. Sátt var um að fara hina svokölluðu […]
Stelpurnar sækja KR heim

Glæsileg byrjun kvennaliðs ÍBV í Íslandsmótinu hefur vakið verðskuldaða athygli en eftir fjórar umferðir er ÍBV með fullt hús stig, búið að skora fjórtán mörk en ekki fengið eitt einasta mark á sig. Liðið byrjaði á tveimur 5:0 sigrum gegn Þór/KA fyrir norðan og Þrótti heima. Svo kom 2:0 sigur gegn Breiðabliki og Þrótti. Nú […]
Lundaflug í Heimakletti

Töluvert af lunda sást í Heimakletti í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. Vísindamenn hafa áhyggjur af því að lundavarp misfarist algjörlega í ár en fuglinn virðist ekki vera farinn að verpa tæpum mánuði eftir hefðbundinn varptíma. (meira…)
ÍBV gæti mætt Eiði Smára og félögum í Fulham

Næstkomandi mánudag verður dregið í fyrstu tvær umferðir forkeppni Evrópudeildarinnar en ÍBV og KR taka þátt í fyrstu umferðinni og FH kemur inn í annarri umferð. ÍBV er í neðri styrkleikaflokki þegar dregið verður í 1. umferðina en KR er í efri styrkleikaflokki. Íslensku liðin geta þó ekki mæst en Eyjamenn gætu hins vegar dregist […]
Megn bensínlykt í Eyjum

Megn bensínlykt gaus óvænt upp úr ræsum við Vestmannabraut í Vetmannaeyjum í gærkvöldi og kallaði lögregla slökkvilið á vettvang af ótta við eldhættu. Lyktina lagði inn í íbúðarhús víða við götuna. Bensínstöð er við Faxastíg í grenndinni og voru starfsmenn hennar ræstir út til að yfirfara allan búnað, en þar reyndist allt í lagi og […]
Slösuðust í Vestmannaeyjum

Flytja þurfti slasaðan ökumann bifhjóls með sjúkraflugi frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur í kvöld. Ökumaður bifhjólsins fipaðist þegar reiðhjóli var beygt í veg fyrir hann með þeim afleiðingum að maðurinn féll af bifhjólinu og fótbrotnaði. (meira…)
Sjómannadagurinn tekinn eignarnámi

Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga fyrir Sjómannadeginum. Í Vestmannaeyjum var hann einn skemmtilegasti hátíðardagur ársins og við peyjarnir sem áttum sjómenn sem feður og ættingja vorum svo sannarlega stoltir að tengjast þeim og þar með Sjómannadeginum. Sérstaklega fann maður það sterkt á þessum degi. Þegar ég síðar gerði sjómennskuna að ævistarfi mínu, gerði […]
15 ára tekinn með fíkniefni

Tvö fíkniefnamál komu upp hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum um helgina en lagt var hald á um sex til 8 grömm af maríjúana. Í öðru tilvikun var um að ræða karlmann á þrítugsaldri en í hinu tilvikinu var um að ræða ungan mann á sextánda ári. Báðir hafa þeir komið áður við sögu lögreglunnar vegna fíkniefnamála. […]
Björgunarmenn fluttu fólk án leyfis

Um þriggja klukkustunda seinkun varð á fyrstu ferð Herjólfs í morgun vegna bilana. Eitthvað hefur verið um að fólk hafi verið flutt með smábátum til Landeyjahafnar en ferðaþjónustufyrirtækjum er bannað að sigla um höfnina vegna laga um lögskráningu áhafna. (meira…)