Herjólfur fer aukaferðir á morgun

Herjólfur mun sigla aukaferð frá Vestmannaeyjum klukkan 9 og til baka frá Landeyjahöfn klukkan 10:30. Einnig verður farin aukaferð klukkan 19:30 frá Vestmannaeyjum og frá Landeyjahöfn klukkan 20:45. Að sögn Eimskips tekur áður auglýst sumaráætlun Herjólfs gildi á sunnudag. Siglt verður fjórum til fimm sinnum á dag á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar. (meira…)

Síðasta ferðin frestast vegna vélarviðgerðar

Síðasta ferð Herjólfs frá Landeyjahöfn í dag, föstudaginn 13. maí verður frestað um rúma klukkustund vegna vélarviðgerðar á Herjólfi. Upphaflega átti skipið að halda úr höfn klukkan 17:15 en ferðin verður þess í stað farin 18:30. (meira…)

�?órarinn Ingi og Eiður Aron í 40 manna hópi U21-árs liðsins

Eyjapeyjarnir Þórarinn Ingi Valdimarsson og Eiður Aron Sigurbjörnsson eru báðir í leikmannahópi íslenska U-21 árs landsliðsins. Alls voru 40 leikmenn valdir í hópinn sem tilkynntur hefur verið til UEFA fyrir úrslitakeppni Evrópumótsins í Danmörku í sumar. Úr þessum hópi verða svo 23 leikmenn valdir til að fara fyrir Íslands hönd í keppnina. (meira…)

Hvað ertu með neðan mittis?

Ung og falleg kona sem var á leið heim úr verslunarferð í útlöndum spurði prestinn sem sat við hliðina á henni í vélinni hvort hann gæti mögulega gert sér greiða. Að sjálfsögðu barnið mitt sagði klerkurinn, hvað get ég gert fyrir þig? Sko, ég keypti rándýra hárþurrku í útlöndum og ég er hrædd um að […]

Hrein og falleg Heimaey.

Hin árlegi Hreinsunardagur á Heimaey verður haldinn á morgun, laugardaginn 14. maí. Eins og fyrri ár hafa fjölmörg félagasamtök og einstaklingar tilkynnt þátttöku í Hreinsunardeginum. Þessi skemmtilega hefð lifir með þátttöku þinni og að sama skapi leggst hún af fólk mætir ekki. (meira…)

Nemendasýning Myndlistaskóla Steinunnar opnar í kvöld

Nemendur í Myndlistaskóla Steinunnar opna sýningu á verkum sínum í Akóges í kvöld klukkan 20:00. Sýningin verður opin daga 13. til 15. maí frá klukkan 14 til 18. Boðið verður upp á létta hressingu við opnunina og eru allir hjartanlega velkomnir eins og segir í fréttatilkynningu sem má lesa hér að neðan. (meira…)

Andrés bakari sýnir á Hótel Selfossi

Í tilefni af bæjar- og menningarhátíðinni Vor í Árborg mun Andrés Sigmundsson bakameistari frá Vestmannaeyjum sýna vatnslitamyndir á Hótel Selfossi. Þema sýningarinnar er Ingólfsfjall og ber sýningin yfirskriftina Óður til Fjallsins. Á sýningunni verða 40 vatnslitamyndir sem allar eru af Ingólfsfjalli. Andrés bjó á Selfossi í nokkur ár eftir gos og starfaði sem bakameistari hjá […]

Eyjamenn spila á Vodafone-vellinum í Evrópukeppninni

Fyrir leik ÍBV og Vals í gærkvöldi, var gengið frá samningi við Valsmenn um að Eyjamenn muni leika heimaleiki sína í Evrópukeppninni á Vodafone-vellinum. Heimavöllur ÍBV, Hásteinsvöllur, uppfyllir ekki kröfur UEFA fyrir Evrópukeppnina og því neyðast Eyjamenn til að spila heimaleiki sína í keppninni annarsstaðar. Vodafone-völlurinn er líklega besti kosturinn enda glæsilegur völlur auk þess […]

Áfram siglt eftir sjávarföllunum

Áfram verður siglt á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar eftir flóðatöflum komandi helgi. Farnar verða þrjár ferðir á dag. Á morgun, föstudag fer Herjólfur frá Eyjum klukkan 11:00, 13:30 og 16:00 en frá Landeyjahöfn klukkan 12:15, 14:45 og 17:15. Ferðir næstu daga má sjá í töflu hér að neðan. (meira…)

Vestmannaeyjabær íhugar stjórnsýslukæru á hendur Umhverfisstofnunar

Mánudaginn 9. maí sl. sendi Umhverfisstofnun frá sér fréttatilkynningu þar sem gerð var grein fyrir þeirri ákvörðun að Sorporkustöð Vestmannaeyja skyldi beitt dagsektum frá og með 1. júni næstkomandi. Þá ákvörðun byggði stofnunin fyrst og fremst á því að ryk hefði mælst 420mg/Nm3 í mælingu sem fór fram í mars 2011 og það fullyrt að […]

Hvert, hvenær eða hvort?

Enn er Landeyjahöfn aðeins draumsýn. Engin ferð þangað í rúma 4 mánuði í vetur. Að vísu siglir Herjólfur þangað þessa dagana. En hvenær dags skipið fer ræðst af sjávarföllum, síðasta ferð Herjólfs frá Landeyjahöfn í dag er kl. 15.30. Fleiri ferðir verða ekki farnar þennan daginn. Dýpkunarskipið Skandia liggur biluð í Vestmannaeyjahöfn og hefur svo […]

Magnað sigurmark hjá �?órarni

Það má segja að Eyjamenn hafi ekki verið beint í hátíðarskapi þegar Valsmenn fögnuðu 100 ára afmæli félagsins með heljar mikilli veislu í dag. Hápunkturinn átti svo að vera leikurinn gegn ÍBV en eins og gefur að skilja var völlurinn troðfullur af áhorfendum. Eyjamenn léku manni færri rúman hálfan leikinn og allt leit út fyrir […]

Hughes efnilegur í íslenskunni

Nýjasti leikmaður ÍBV, enski miðjumaðurinn reyndi Bryan Hughes mætti á sína fyrstu æfingu í gær. Í dag mætir ÍBV Val á útivelli og er fastlega búist við því að Hughes verði í leikmannahópnum fyrir leikinn. Blaðamaður Eyjafrétta hitti á Hughes og ræddi aðeins við hann um komuna til Eyja. Enski miðjumaðurinn fékk líka ókeypis kennslu […]

Leikurinn í beinni í Hallarlundi

Eyjamenn mæta Val í kvöld á Vodafone velli þeirra en Valsarar fagna í dag 100 ára afmæli félagsins og verður blásið til heljarmikillar veislu á félagssvæði Valsara í dag. Það má því búast við fjöri á vellinum í kvöld en Eyjamenn ætla að hita upp á staðnum Spot fyrir leik. Þeir sem ekki komast til […]

�?g fyrir hönd hundruða Eyjamanna skora hér á ykkur forvígismenn Samfylkingar og Vinstri grænna

Í síðustu viku birtist í blaðinu Fréttum og hér á eyjafrettum, opið bréf frá Sigurjóni Aðalsteinssyni. Þar óskar hann svara frá forsætisráðherra og sjávarútvegsráðherra varðandi breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Þá skoraði Sigurjón á þau að heimsækja Vestmannaeyjar og ræða þessi máli við heimamenn. Og nú bætir Sigurjón um betur og skorar á félög Vinstri grænna og […]

�?lvaður veittist að fjármálaráðherra

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra gerði sér ferð til Vestmannaeyja um helgina til að taka þátt í árlegu blaki öldunga. Á lokahófi mótsins, sem haldið var á laugardagskvöld, lenti Steingrímur í orðaskaki við ölvaðan gest. Heimildarmaður DV, sem var á staðnum, segir að maðurinn hafi fengið sér of mikið neðan í því og „ónáðað“ ráðherrann, eins […]

Ljót árás á Pál Scheving

Smáfuglarnir undrast árásir lélegri fjölmiðla á Pál Scheving, formann þjóðhátíðarnefndar í Vestmannaeyjum. Slappir blaðamenn sem lítið hafa um að fjalla þessa dagana hafa sleppt sér í skrifum um Pál og athugasemdir hans við þá staðreynd að nauðganir sé uppblásnar í fjölmiðlum. Markmiðið er að sverta mannorð Páls í nafni pólitískrar rétthugsunar. Getur verið að Páll […]

Skóladagur í Barnaskóla í dag

Í dag, miðvikudaginn 11. maí verður skóladagur Barnaskólans haldinn frá klukkan 17:00 til 20:00. Dagurinn hefst með tónleikum skólalúðrasveitar Vestmannaeyja og Rangæinga í Safnaðarheimilinu klukkan 17:00 og sýning í skólanum opnar á sama tíma. (meira…)

�??�?fum tvisvar í viku�??

„Ég fékk eiginlega nett sjokk þegar fréttirnar bárust af því að við myndum mæta Eyjamönnum. Síðan kom næsta áfall þegar við gerðum okkur grein fyrir öllu umstanginu sem fylgir svona bikarleik. En þetta verður fyrst og fremst stórskemmtilegt fyrir okkur og mikil upplifun að mæta liði eins og ÍBV,“ sagði Guðjón Paul Erlendsson, þjálfari utandeildaliðsins […]

Eyjamenn sækja toppliðið heim

Eyjamenn sækja í kvöld topplið Vals heim að Hlíðarenda. Valsmenn hafa farið vel af stað í sumar, hafa unnið tvo fyrstu leiki sína og eru á toppi deildarinnar með fullt hús stiga. ÍBV er hins vegar 5. til 9. sæti með þrjú stig eins og Þór, Grindavík, Fylkir og FH. Ian Jeffs er meiddur og […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.