Kominn tími á stærri verslun

Eymundsson flutti í nýja og glæsilega verslun í húsnæði í Drífanda á horni Strandvegar og Bárustígs á laugardag. Húsnæðið er mun stærra en verslunin var í áður og auk þess að vera ritfanga- og bókaverslun er þar umboð Símans og þar er upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn. Eymundsson er líka með kaffi á boðstólum frá Te & […]
�?akkar skattgreiðendum fyrir ómetanlegar stundir og fjárhagsstuðning

Móðir dauðvona drengs þakkar íslensku velferðarkerfi fyrir að standa við bakið á sér eftir að ungur sonur hennar greindist með ólæknandi sjúkdóm. Hún segir fjárhagslegan stuðning hafa gert það að verkum að hún hafi fengið dýrmætar stundir með syninum sem aldrei verði teknar frá sér. Í grein sem Guðrún Guðmundsdóttir skrifar í Morgunblaðið í dag […]
Makríl- og síldveiðar að hefjast

Makrílveiðar eru um það bil að hefjast og flest skip og útgerðir, sem hyggja á veiðar, um það bil að byrja eða í startholunum. Huginn VE er á síld og makrílveiðum og var nýkominn á miðin við Þórsbanka á miðvikudagsmorgun. „Þetta er í það fyrsta, þeir tóku eitt hal og það er ekkert að gerast […]
Hestapestin ekki skæð í Eyjum
Hestapest hefur verið að gera hrossabændum erfitt fyrir um land allt. Pestin varð m.a. til þess að fresta varð Landsmóti hestamanna. Afleiðingarnar eru umtalsverðar enda hafa fjölmargir atvinnu af hrossarækt og sölu hrossa. Eftir því sem næst verður komist, hefur hestapestin ekki herjað á hross í Eyjum í sumar. Gunnar Árnason, hrossabóndi í Lukku, segir […]
Páll og Elliði fengu flestar útstrikanir
Að vera í fararbroddi í pólitík setur fólk gjarna í þá stöðu að eignast óvildarmenn. Andúð sína á stjórnmálamönnum er hægt að sýna á margvíslegan hátt. Ein leiðin er að gera það í kosningum, t.d. með því að strika yfir nafn viðkomandi á kjörseðlinum. Ekki var það gert í stórum stíl í Eyjum við síðustu […]
Fjórar ferðir í höfn
„Ég hef fulla trú á að ráðherra muni á næstunni koma til móts við kröfu Eyjamanna um lágmark fjórar ferðir á dag allan ársins hring í Landeyjahöfn, miðað við ákveðnar upplýsingar sem ég hef,“ sagði Árni Johnsen, alþingismaður, í samtali við Fréttir. (meira…)
Fjölmennara Pæjumót en í fyrra
Um helgina er haldið hið árlega Pæjumót TM og ÍBV en þar spilar 5. flokkur kvenna. Mótinu hefur vaxið fiskur um hrygg og er mótið fjölmennara en fyrir ári síðan. Mótið hefst á fimmtudagsmorgun en lýkur um miðjan dag á laugardag. Sú nýbreytni að ljúka mótunum á laugardegi hefur mælst vel fyrir hjá gestum Pæju- […]
Leitað að hæfileikaríkum krökkum í Eyjum í byrjun júlí

Þær Sigga Beinteins og María Björk, söngkonur og Söngvaborgarhöfundar, eru komnar af stað með söngvakeppnina Röddin, fyrir 12 til 16 ára. Keppnin fer þannig fram að þær stöllur munu ferðast hringinn í kringum landið, finna hæfileikaríka krakka og 18. september fer svo fram lokakeppni í Reykjavík. Keppnin verður í Höllinni í Vestmannaeyjum þann 3. og […]
�?dýrasta eldsneytið í Eyjum
Það eru sjálfsagt margir sem reka upp stór augu þegar þeir lesa fyrirsögnina við þessa frétt enda hefur bensínverð í Vestmannaeyjum til þessa verið við efri mörk en þau neðri. En annað hefur komið á daginn því nú er lægsta bensínverðið á landinu í Eyjum. Orkan býður bensínlítrann nú á 186 krónur en ÓB á […]
Hraðakstur og Pæjumót

Undanfarið hafa mótorhjól og bílar verið að stunda hraðakstur upp Strembugötu. Síðast í gærkvöldi var lögreglan að elta mótorhjól á miklum hraða upp Strembugötuna en málið er þeir stinga lögregluna af. Þetta er búið að vera mjög slæmt undanfarin kvöld. Ungir ökumenn á hraðskreiðum bílum stunda sömu iðju, jafnvel samhliða í kappakstri á ofsahraða. Nú […]
Síðasta ball fyrir sumarfrí

Lokaball sumarsins mun fara fram þann 19. júní í Höllinni en þá er Sumarstúlkukeppnin og mikið um dýrðir. Í Svörtum Fötum munu leika fyrir dansi og hefst dansleikurinn kl 23:30 og standur til 03. Höllin mun svo fara í pásu fram til 11. september 2010 þannig að nú er um að gera að mæta á […]
Á þríhjóli fyrir fullorðna

Þegar sól hækkar á lofti og hitastigið fylgir með, fjölgar þeim sem njóta náttúrunnar og veðurblíðunnar. Fólk ber sig misjafnlega að, margir fara út að hjóla, ganga, hlaupa eða jafnvel liggja bara út í guðsgrænni náttúrunni. Valgerður Óskarsdóttur langaði að fara út að hjóla en það hefur hún ekki getað síðan hún lenti í mjög […]
Fréttir verða á sínum tíma
Á morgun, miðvikudag er hefðbundinn útgáfudagur Frétta. Blaðinu verður að venju dreift seinnipartinn dags. Að þessu sinni eru sumarstúlkurnar 2010 kynntar til leiks, 13 að tölu, allar hver annarri fallegri og glæsilegri. Sumarstúlkukeppnin fer fram í Höllinni laugardaginn 19. júní n.k. (meira…)
Eiður hjá ÍBV út 2013

Varnarmaðurinn bráðefnilegi, Eiður Aron Sigurbjörnsson, skrifaði í dag undir framlengingu á samningi sínum hjá úrvalsdeildarliði ÍBV. Samningurinn gildir nú út tímabilið 2013 en þrátt fyrir að vera aðeins tvítugur, þá hefur Eiður verið fastamaður í ÍBV liðinu síðustu tvö tímabil. Eiður hefur leikið 29 leiki fyrir ÍBV í Íslandsmóti og bikarkeppni og skorað í þeim […]
Gunnar Geir vann höggleik og Kristgeir Orri í punktakeppni

Golfmót Sparisjóðs Vestmannaeyja og VÍS fór fram um sl. helgi. Þrátt fyrir nokkurn vind og að mikið væri um að vera á bryggjunni, mættu um 40 manns í mótið. Veglegir vinningar voru í boði fyrir sigurvegara í höggleik og í punktakeppni. Þá voru nándarverðlaun og einnig fengu allir teiggjöf um leið og þeir hófu leik. […]
Vilja smábátabryggju í Landeyjahöfn

Þingmenn Suðurkjördæmis þrýsta á samgönguráðherra að leggja til fjármagn vegna smábátabryggju í Landeyjahöfn. Verkefnisstjóri hjá Suðurverki segir mikla umferð smábáta vera um höfnina nú þegar. Stefnt er að því að hefja áætlunarsiglingar um Landeyjahöfn 21. júlí næstkomandi. Þingmenn Suðurkjördæmis hafa átt fundi með Kristjáni L. Möller samgönguráðherra vegna fjármagns til að útbúa smábátabryggju. Bent er […]
Miklar framkvæmdir í Herjólfsdal

Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir í Herjólfsdal í vor. ÍBV íþróttafélag er að byggja steinsteypta geymslu, ásamt salernum og aðstöðu fyrir skemmtikrafta á þjóðhátíð. Húsið verður síðan notað sem undirstaða undir Brekkusviðið. Þá hefur Vestmannaeyjabær staðið fyrir ýmsum framkvæmdum. Fyrst má telja að sléttuð og tyrft hefur verið 1500 fm. tjaldstæðisflöt við Herjólfsbæ og settir […]
Amfetamín fannst á víðavangi
Þrjú fíkniefnamál komu upp í vikunni. Þann 1. júní síðastliðinn var maður á fimmtugsaldir stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Í framhaldi var gerð húsleit í húsakynnum í eigu mannsins og fundust þar lítilsháttar af kannabisefnum. Þá fundust 5 grömm af amfetamíni á víðavangi 2. júní en efnið var í svokölluðum […]
Hlupu á sprellanum hjá Ráðhúsinu
Samkvæmt lögreglu fór skemmtanahald Sjómannadagshelgarinnar ágætlega fram og lítið um útköll um helgina. Þó var lögregla köllu út í nótt að Ráðhúströð en tilkynnt var um fjóra nakta karlmenn sem voru á hlaupum við Ráðhús Vestmannaeyja. Lögreglan náði tali af þeim þar sem þeir voru komnir í húsaskjól og gáfu þá skýringu að þeir hafi […]
Eyjastúlkur duttu í lukkupottinn
Segja má að Eyjastúlkur hafi dottið í lukkupottinn nú rétt í þessu þegar dregið var í 16 liða úrslitum Visabikars kvenna. Þegar sex lið voru enn eftir í pottinum var ÍBV eitt þeirra og stórliðin tvö Breiðablik og Valur einnig. ÍBV hafði þó heppnina með sér, stórliðin mætast en andstæðingur ÍBV verður ÍA en Skagastúlkur […]