Góð ferð austur hjá stelpunum

Kvennlið ÍBV gerði góða ferð austur á land um og yfir Þjóðhátíðardaginn 17. júní. Daginn fyrir Þjóðhátíðardaginn léku stelprnar gegn Hetti á Egilsstöðum og unnu stórsigur, 1:6. 17. júní léku þær svo gegn Fjarðabyggð/Leikni og fór leikurinn fram á Eskifirði. Þann leik unnu stelpurnar 1:4 en ÍBV trónir sem fyrr á toppi B-riðils með fullt […]
Fjölbreytt dagskrá á �?jóðhátíðardaginn
Eins og venja er, verður Þjóðhátíðardeginum fagnað í Vestmannaeyjum eins og víðast hvar annarsstaðar á landinu. Dagskrá 17. júní hátíðahaldanna má sjá hér að neðan en gengið verður fylktu liði frá Íþróttamiðstöðinni klukkan 13.30 og niður á Stakkó, þar sem hátíðahöldin fara fram. Þar verða fjölmörg skemmtiatriði í boði fyrir unga sem aldna og ekki […]
Fyrsta ferðin 21. júlí

Gert er ráð fyrir að ferjusiglingar í Landeyjahöfn hefjist 21. júlí og nú er allt kapp lagt á að ljúka framkvæmdum við höfnina. Suðurverk hf. hefur séð um hafnargerðina og þar á bæ hafa menn fulla trú á að höfnin verði klár á tilsettum tíma. Björgun ehf. sér um dýpkun hafnarinnar og henni verður lokið […]
Ekkert bólar á sjúkraflugvél
Mikil óánægja er í Vestmannaeyjum með að ekki er sjúkraflugvél staðsett í Eyjum. Í neyðartilvikum er send flugvél frá Akureyri. það hefur þegar gerst nokkrum sinnum. Fréttir ræddu við bæjarfulltrúana Páleyju Borgþórsdóttur, Sjálfstæðisflokki og Pál Scheving, Vestmannaeyjlista og eru þau sammála um að ástandið sé óviðunandi. (meira…)
�?rjú félög hafa áhuga á Hermanni Hreiðarssyni

Enn er óvíst hvar varnarjaxlinn Hermann Hreiðarsson mun leika á næsta tímabili en þrjú félög hafa sýnt honum áhuga. Samningur Hermanns við Portsmouth er að renna út og félagið vill halda honum. Að auki hefur eitt enskt félag og eitt annað félag utan Englands áhuga á Hermanni en þetta staðfesti Ólafur Garðarsson umboðsmaður hans við […]
Varúðarmerkingar við Sprönguna
Setja þarf upp merkingar við Sprönguna í Vestmannaeyjum til að vara fólk við hættum sem geta falist í því að spranga. Þetta er mat Adolfs Þórsson formanns Björgunarfélags Vestmannaeyja eftir að stúlka fótbrotnaði á svæðinu um síðustu helgi. Adolf segir að vegna þess að svæðið sé opið og hver sem er geti komið og sprangað […]
Um 600 gestir í mat fyrstu helgina

900 Grill er nýr veitingastaður í hjarta bæjarins sem var opnaður á föstudag. Hólmgeir Austfjörð og Jóhanna Inga Jónsdóttir eiga og reka staðinn sem er á Vestmannabraut 23 þar sem skóverslun Axel Ó. var lengst af til húsa. Húsnæðið er bjart og stílhreint og matseðilinn fjölbreyttur og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. […]
Enn verðstríð á eldsneytismarkaði á Suðurlandi

Enn ríkir verðstríð á eldsneytismarkaði á Suðurlandi. Munar nú 17 krónum á lítranum af bensíni, hvort hann er keyptur af Orkunni eða Skeljungi en bæði félögin eru í sömu eigu. Á höfuðborgarsvæðinu munar tólf krónum á verði á bensínlítranum þar sem hann er ódýrastur og þar sem hann er dýrastur. Hjá Orkunni á Suðurlandi kostar […]
Tóku loftskammbyssu af 15 ára drengjum
Lögreglan í Vestmannaeyjum lagði hald á loftskammbyssu í vikunni en nokkrir 15 ára drengir voru að leika sér að skjóta úr byssunni. Lögregla áréttar að skotvopnaleyfi þarf til að eiga og skjóta úr loftskammbyssu þar sem sömu reglur gilda um slík vopn, sem og önnur skottvopn. Annars var vikan með rólegra móti, ein stúlka féll […]
Kvennahlaupið 19. júní
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ verður haldið í tuttugasta og fyrsta sinn, laugardaginn 19. júní. Í ár er yfirskrift hlaupsins “ Konur eru konum bestar” og er unnið í samstarfi við Kvenfélagasamband Íslands sem fagnar 80 ára afmæli sínu á árinu. Um þúsundir kvenna á öllum aldri starfa í undir merkjum Kvenfélagasambandsins og vinna eftir markmið þess […]
Fjöldi með Flugfélag Íslands
Flugfélagi Íslands þá voru bókanir mjög góðar enda styttist óðfluga í hátíðina. Á fimmtudag eru settar 3 vélar og voru örfá sæti laus. Föstudaginn 30. júlí eru settar á áætlun 7 vélar, þar af var uppselt í 3. Á laugardag og sunnudag eru 2 vélar settar á og laust í báðar. Mánudaginn 2. ágúst þá […]
Margrét jafnaði á síðustu stundu
Margrét Lára Viðarsdóttir tryggði Kristianstad eitt stig í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær þegar hún skoraði úr vítaspyrnu á síðustu andartökum leiksins við Sunnanå. Heimaliðið komst yfir í leiknum en stelpurnar hennar Elísabetar Gunnarsdóttur þjálfara, gáfust ekki upp og fengu víti þegar ein mínúta var komin fram yfir venjulegan leiktíma og úr spyrnunni skoraði […]
Eyjamenn á toppinn

Eyjamenn lögðu Fylki að velli í kaflaskiptum leik á Hásteinsvellinum í dag. Fyrri hálfleikur var einn rólegasti hálfleikur sem boðið hefur verið upp á í Íslandsmótinu í sumar en fyrsta marktilraunin kom á 20. mínútu og fyrsta hornspyrnan mínútu fyrr. Liðunum tókst ekki að skora í fyrri hálfleik enda voru marktækifærin fá en leikurinn breyttist […]
Eyjamenn eiga möguleika á að komast á toppinn

Karlalið ÍBV tekur í dag á móti Fylki í fyrsta og eina leik dagsins í 7. umferð Íslandsmótsins. Staðan í deildinni er þannig að með sigri getur ÍBV komist á topp deildarinnar í fyrsta skipti í nokkuð mörg ár en eftir því sem næst verður komist, komst ÍBV síðast í toppsætið 2003. Þetta er jafnframt […]
Breiðablik Pæjumótsmeistari 2010

Pæjumóti ÍBV og TM lauk í dag þegar úrslitaleikir fóru fram á Hásteinsvellinum. Breiðablik var afar sigursælt á mótinu, varð Pæjumótsmeistari í A-, B- og C-liðum og í þriðja sæti í D-liðum. Þar varð Valur hins vegar meistari en sigurliðin má sjá hér að neðan. Mótið í heild sinni tókst afar vel upp en hægt […]
Kærumálið í róðrakeppninni í skoðun hjá lögfræðingi

Eins og greint var frá á Eyjafréttum.is í gær hefur Skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi kært Sjómannafélagið Jötunn vegna meints siðleysi í kappróðri á Sjómannadaginn í Vestmannaeyjum. Forsvarsmenn Jötuns hafa brugðist við kærunni og eru lögmenn félagsins að yfirfara hana en kærunni verður svarað næstkomandi mánudag. „Vegna mikils lögfræðikostnaðar sjáum við okkur ekki fært að hafa […]
Eyverjar skora á Ragnheiði Elínu

Eyverjar, félag ungra Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum, skora á Ragnheiði Elínu Árnadóttur oddvita Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi að bjóða sig fram til varaformanns Sjálfstæðisflokksins á komandi landsfundi. Eyverjar telja mikilvægt að forysta Sjálfstæðisflokksins endurspegli þann fjölbreytileika sem einkennir flokkinn. (meira…)
Í tilefni HM í knattspyrnu

Í gærkvöldi var HM í knattspyrnu sett í Jóhannesarborg í Suður Afríku. Vist er að knattspyrnuáhugafólk lætur þessa veislu ekki fram sér fara. Í tilefni þessarar knattspyrnuveislu er hér nokkur brot úr lýsingum íslenskra íþróttafréttamanna á knattspyrnuleikjum. 2010-06-11 17:31:00 (meira…)
Siðleysi í kappróðri

Skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi, Vestmannaeyjum leggur fram kæru á hendur Sjómannafélaginu Jötni vegna róðrarkeppni milli félaganna laugardaginn 5. júní sl. Sl. 18 ár hefur Skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi borið sigur úr býtum í árlegri róðrarkeppni milli Verðandi og Jötuns. Í gær (laugardag) gerðust þau tíðindi að Sjómannafélagið Jötunn lagði Verðandimenn í róðrarkeppninni. Í liði Verðandimanna […]
Frábært veður, frábærar stelpur og frábært mót

Nú er annar mótsdagur af þremur á Pæjumótinu hafinn og óhætt að segja að veðurguðirnir séu stelpunum hliðhollir. Sólin skín og veðrið er einstaklega gott þessa stundina sem gerir mót sem þetta enn betra. Í gær var veður líka mjög gott, smá hitabeltisskúr um miðjan dag en stelpurnar létu það auðvitað ekkert stöðva sig og […]