Eyjablikk í útrás í Noregi

Sighvatur Jónsson er ötull fréttamaður RÚV í Eyjum. Í gær fór hann í heimsókn til Stefáns Lúðvíkssonar í Eyjablikk og ræddi við hann um útrásarverkefni fyrirtækisins í Noregi. Birtist viðtalið í Ríkisútvarpinu í gærdag. „Við googluðum hvernig ætti að reisa stálgrindarhús þegar við fengum fyrsta verkefnið okkar í Noregi,“ sagði Stefán, sem segir mikinn uppgang […]
ÍBV-stelpur með fullt hús stiga eftir stórsigur á ÍR
Meistaraflokkur ÍBV kvenna er á fljúgandi siglingu í 1. deildinni. Í gær unnu þær ÍR-stelpur 6-0 hér í Eyjum. Að loknum 6 leikjum hefur ÍBV unnið alla sína leiki, fengið 18 stig, skorað 38 mörk og fengið á sig 2 mörk. Selfossstelpur er í 2. sæti með 15 stig eftir 5 leiki og ÍR í […]
Makrílveiðar ganga vel
„Nú er makríllinn að fitna og hentar betur til manneldis. Þegar hann er orðinn of feitur verður vinnsla erfiðari og þá fer hann í bræðsluna,“ segir Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum. (meira…)
Bílar og ökumenn í aðalhlutverki
Það var frekar rólegt hjá lögreglu í vikunni sem leið og fór skemmtanahald helgarinnar ágætlega fram. Aðfaranótt 20. júní sl. var lögreglu tilkynnt um að ölvaður maður hafi slegið í vélarhlíf bifreiðar sem stóð fyrir utan skemmtistaðinn Höllina. Ekki reyndist unnt að tala manninn til og endaði hann í fangageymslu lögreglu þar sem hann fékk […]
Stofnfjáreigendur í Sparisjóði Vestmannaeyja tapa 72 prósentum af stofnfé sínu
Í kvöld verður stofnfjáreigendafundur hjá Sparisjóði Vestmannaeyja. Sparisjóðurinn eins og flest önnur fjármálafyrirtæki fór illa út úr hruninu. Rétt fyrir hrun var stofnfé í Sparisjóðnum aukið verulega og þeir sem áttu fyrir stofnfé höfðu forkaupsrétt að aukningunni. Eftir því sem heimildir eyjafretta segja, keyptu allir þáverandi stofnfjáreigendur hámarkshlut og var kaupverðið 5 milljónir króna. Samkvæmt […]
Sigri stolið á KR vellinum

Eyjamenn sóttu ekki gull í greipar KR-inga, þegar þeir heimsóttu þá í Frostaskjólið í kvöld. Þeir höfðu þó alla möguleika til þess. Þess í stað skoruðu KR-ingar sigurmarkið á 89. mínútu leiksins. Tíðindamaður eyjafretta sem staddur var á leiknum, segir að Vestmannaeyingarnir hafi verið klaufar að taka ekki öll 3 stigin með sér heim. Til […]
Hefur alið lundapysju í eitt ár

Átján ára Eyjamaður hefur alið lundapysju sem hann fann í fyrra. Pysjan, sem er kölluð Angie, fer í vist á fiskasafni bæjarins þegar fjölskyldan fer í sumarfrí. Andri Þór Gylfason fann lundapysjuna á rúntinum í Vestmannaeyjum á pysjutímanum fyrir tæpu ári. Hann hefur gefið henni nafnið Angie. (meira…)
KFS sigraði Vængi Júpiters 7-1

KFS og Vængir Júpiters léku á Helgafellsvelli í dag. Vængir Júpiters mættu bara 10, en komust í 0:1 með marki Michaels Berndsen eftir 35 mín. Sæþór Jóhannesson jafnaði rétt fyrir hlé og í seinni hálfleik rigndi inn mörkunum, enda Vængirnir sprungnir og voru aðeins 9 síðustu 20 mín. Markmaður þeirra bjargaði þeim frá stærra tapi. […]
Elín Sólborg valin Sumarstúlka Vestmannaeyja 2010

Elín Sólborg Eyjólfsdóttir var í gærkvöldi valin Sumarstúlka Vestmannaeyja árið 2010. Fór keppnin fram í Höllinni og var þetta í 24. skiptið sem þessi keppni fer fram. Þá var Sveinbjörg Ósk Hauksdóttir valin Sportstúlkan, Helga Sigríður Hartmannsdóttir var valin Ljósmyndafyrirsætan, Agnes Guðjónsdóttir var Bjartasta brosið og Sigurbjörg Jóna Vilhjálmsdóttir var valin Vinsælasta stúlkan. (meira…)
Leðurblaka tók sér far með Arnarfellinu

Fjöldi fólks hefur skoðað lifandi leðurblöku á Fiska- og náttúrugripasafni Vestmannaeyja sem skipverjar á flutningaskipi færðu safninu í gær. Heimkynni leðurblökunnar eru í Kanada og norðurhluta Bandaríkjanna. (meira…)
Færri ferðamenn til Eyja í sumar

Ferðamenn sem höfðu pantað ferðir til Vestmannaeyja flugleiðina ofan af Bakka vita ekki að flug þaðan liggur niðri vegna rekstarstöðvunar Flugfélags Vestmannaeyja. Eigendur ferðaþjónustu í Eyjum segja þetta koma illa við sig, í sumum tilfellum hefur fólk verið sótt í Landeyjahöfn. (meira…)
3 Eyjapeyjar útskrifast frá Keili

Þann 16. júní útskrifuðust 174 nemendur frá Keili, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs. Í hópnum voru 3 Eyjapeyjar: þeir Leó Snær Sveinsson af Háskólabrú, Hjörleifur Hreiðar Steinarsson sem flugumferðastjóri og Guðjón Kristinn Ólafsson sem ÍAK einkaþjálfari. Leó Snær hélt útskriftaræðu fyrir hönd nemenda á Háskólabrú og nefndi að eftir að hafa flutt á Reykjanesskagann hefði […]
Jötunn – Vitum að það er sárt að tapa

Eftir að lögfræðingar Jötuns hafa yfirfarið kæru Verðandi og vísað henni til föðurhúsanna vill Jötunn Sjómannafélag taka eftirfarandi fram: Það er sárt að tapa SS Verðandi kærir Sjómannafélagið Jötun fyrir að tefla fram ólöglegu liði í kappróðri á Sjómannadaginn. Tilurð kærunnar er að lið Jötuns lagði lið Verðandi í harðri keppni í kappróðri. Það er […]
Latabæjarskemmtunin verður kl. 16.00

Latabæjarfólkið þurfti að fara í Herjólf þar sem ekkert er flugið. Vegna þessa þá byrjar skemmtunin kl 16:00 í dag húsið opnar kl 15:30 (meira…)
Makrílveiðar ganga þokkalega
Nokkur gangur er kominn í makríl- og síldveiðar. Hjá Ísfélaginu hefur Júpíter landað þrisvar, samtals um 600 tonn af makríl sem unnin eru til manneldis. „Þá eigum við von á Þorsteini með 160 tonn en þeir eru að fá makríl sex til sjö tíma austur af Eyjum,“ sagði Páll Scheving, þegar rætt var við hann […]
Lady Gaga mun svífa yfir vötnunum

Sumarstúlkukeppni Vestmannaeyja fer fram í Höllinni á laugardag. Þrettán stúlkur á aldrinum 18 og 19 ára taka þátt í keppninni sem fer nú fram í 24. sinn. Hjördís Elsa Guðlaugsdóttir, framkvæmdastjóri Sumarstúlkukeppninnar, sagði að stelpurnar kæmu fjórum sinnum fram um kvöldið. (meira…)
Vel verður vandað til Goslokahátíðarinnar
Fyrstu helgina í júlí höldum við Eyjamenn upp á goslokin og líkt og undanfarin ár verður vegleg goslokahátíð haldin. Vestmannaeyjabær leggur mikinn metnað í að hátíðin verði sem vönduðust og miklu hefur verið kostað til. “Efni og andi í byggingarlist” – sýning á verkum Högnu Sigurðardóttur arkitekts, “Vísur úr vísnabókinni” fjölskyldutónleikar Gunnars Þórðarsonar og félaga, […]
Fréttir gefa út sérstakt blað vegna þessara tímamóta
Seinnipartinn í júlí í sumar, verður nýja höfnin í Landeyjum tekin í notkun og Herjólfur fer því sigla þangað. Væntanlega verður mikið um dýrðir þegar þessi samgöngubót Vestmannaeyja verður tekin í notkun. Fréttir ætla ekki að láta sitt eftir liggja og munu gefa út sérstakt aukablað tileinkað Land-Eyjahöfn. (meira…)
17. júní hátíðahöldin vel heppnuð í Eyjum

Hátíðahöldin á Þjóðhátíðardaginn, 17. júní fóru vel fram í Vestmannaeyjum í gær enda veður milt og gott. Ágætis aðsókn var á hátíðarhöldin, meiri en oft áður og dagskráin var fjölbreytt og skemmtileg. Gengið var fylktu liði frá íþróttamiðstöðinni og niður á Stakkagerðistún þar sem hin eiginlegu hátíðahöld fóru fram. (meira…)
Hlakka til að skreppa í sunnudagsbíltúr til Eyja

Strandaglópur ehf. rekur afgreiðslu Herjólfs í Landeyjahöfn en Sigmar Jónsson er eigandi og framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Sigmar hefur í nokkur ár starfað við Bakkaflugvöll en færir sig nú um set og kemur til með að hafa umsjón með afgreiðslu skipsins, farþegaaðstöðu og svæðinu í kring. (meira…)