Sighvatur Jónsson er ötull fréttamaður RÚV í Eyjum. Í gær fór hann í heimsókn til Stefáns Lúðvíkssonar í Eyjablikk og ræddi við hann um útrásarverkefni fyrirtækisins í Noregi. Birtist viðtalið í Ríkisútvarpinu í gærdag. „Við googluðum hvernig ætti að reisa stálgrindarhús þegar við fengum fyrsta verkefnið okkar í Noregi,“ sagði Stefán, sem segir mikinn uppgang í sjávarútvegi á fimm hundruð manna eyju undan ströndum Noregs. Vinna þar gefi vel í aðra hönd þar sem norskar krónur verða að tvöfalt fleiri íslenskum krónum.