�?ór Akureyri Shellmótsmeistari 2010

Í kvöld lauk Shellmótinu 2010 formlega með verðlaunaafhendingu í íþróttahúsinu og eins og við mátti búast var bekkurinn þétt setinn. Shellmótið í ár er eitt það allra stærsta sem haldið hefur verið, keppendur voru um 1200 talsins en mótið tókst á allan hátt mjög vel. Þór Akureyri varð Shellmótsmeistari 2010 eftir að hafa lagt Stjörnuna […]

Annar sigur KFS í röð

KFS vann í dag Afríku en liðin áttust við á höfuðborgarsvæðinu í dag, lokatölur 6:1. Þetta er annar sigurleikur Eyjamanna í röð eftir slaka byrjun á Íslandsmótinu og bendir allt til þess að KFS sé komið á beinu brautina. Hjalti Kristjánsson, þjálfari KFS var einn varamanna liðsins í dag og kom inn á, 52 ára […]

�?k á lögreglubíl í Vestmannaeyjum

Ungur piltur ók á lögreglubíl í Vestmannaeyjum í nótt þegar lögregla reyndi að stöðva för hans. Bíll ökumannsins er nokkuð skemmdur að sögn lögreglu en lögreglubíllinn skemmdist minna. Pilturinn er yngri en sautján ára og því ekki kominn með ökuréttindi. Til að bæta gráu ofan á svart reyndist hann síðan undir áhrifum áfengis og fíkniefna. […]

Tryggvi orðinn þriðji markahæstur hjá ÍBV

Tryggvi Guðmundsson er orðinn þriðji markahæsti leikmaður ÍBV í knattspyrnu frá upphafi en í gærkvöldi skaust hann fram úr Tómasi Pálssyni. Tryggvi hefur nú skorað 57 mörk fyrir félagið í deildinni frá upphafi en fyrir ofan Tryggva eru þeir Sigurlás Þorleifsson með 60 mörk og Steingrímur Jóhannesson með 72. (meira…)

Eyjamenn aftur á toppinn

Eyjamenn unnu sannfærandi sigur á Selfyssingum í kvöld þegar liðin áttust við á Hásteinsvelli. Það tók Eyjamenn ekki nema fjörtíu sekúndur sléttar að ná forystunni en það gerði refurinn Tryggvi Guðmundsson þegar hann fylgdi eftir góðri rispu Þórarins Inga Valdimarssonar. Eyjamenn höfðu algjöra yfirburði í fyrri hálfleik en tókst þrátt fyrir það ekki að bæta […]

Sannfærandi gegn ÍA

Kvennalið ÍBV var ekki í teljandi vandræðum með utandeildarlið ÍA þegar liðin mættust í 16 liða úrslitum Visabikarkeppninnar á Hásteinsvelli í dag. Lokatölur urðu 6:0 en Eyjastúlkur voru 5:0 yfir í hálfleik. Þar með er ÍBV komið í 8 liða úrslit bikarkeppninnar og jafna þar með árangurinn frá því í fyrra. Dregið verður 8 liða […]

Land-Eyjahöfn senn tilbúin

Nú styttist í að nýja ferjuhöfnin í Bakkafjöru, Land-Eyjahöfn, verði tekin í notkun en eins og fram hefur komið er fyrsta farþegaferð Eimskipa áætluð 21. júlí. Þrátt fyrir efnahagshrun, eldgos og óveður eru framkvæmdir á tímasettri áætlun og ganga þær vel. (meira…)

Að hrekkja fólk

Það er ljótt að hrekkja fólk, en það getur samt verið dálítið skemmtiegt, sérstakleg ef maður er svolítill hrekkjalómur. Tómas Sveinsson, kokkur á Hraunbúðum er duglegur að senda okkur ýmislegt fyndið. Hér er stutt myndband frá honum, með ungri og brjóstafallegri konu, sem leikur hrekkjalóm. Bara svolítið fyndið. (meira…)

�?löf Waage sýnir í Eyjabúð

Ólöf Dóra Waage opnar myndlistarsýningu í Eyjabúð næst komandi föstudag. Þar sýnir Ólöf stóran hluta mynda sem hún hefur málið undanfarin ár. Ólöf hefur búið í Vestmannaeyjum í 56 ár en hún ólst upp í Reykjavík og Eyrarbakka. Hún byrjaði að læra hjá Finni teiknikennara árið 1994 og fór svo til Steinunnar Einarsdóttur myndlistarkonu. Hefur […]

Barnaheill í Vestmannaeyjum verður Barnahagur, Vestmannaeyjum

Að gefnu tilefni vilja umsjónarmenn með styrktarsjóðnum Barnaheill í Vestmannaeyjum koma því á framfæri að heiti sjóðsins hefur verið breytt í Barnahagur, Vestmannaeyjum. Það er gert til að fyrirbyggja að fólk rugli þeim litla sjóði sjálfboðaliða saman við landssamtökin Barnaheill á Íslandi – Save the Children. (meira…)

Einsi kaldi býður vestmannaeyskt hlaðborð á goslokum

Einsi kaldi og hans fólk tekur goslokin með trukki og dýfu, sem þeirra er háttur. Á föstudagskvöldið 2. júlí, fyrir stórtónleika sem verða í Höllinni það kvöld, verður boðið uppá hlaðborð hjá Einsa kalda og er þema kvöldsins, MATARKISTAN VESTMANNAEYJAR. Nær allt hráefnið, s.s. skötuselur, saltfiskur, smokkfiskur og svartfugl verður sótt í nánasta umhverfi Eyjanna. […]

1200 peyjar á Shellmótinu í Eyjum

Shellmótið er hafið og stendur fram á laugardag þegar úrslitaleikirnir fara fram og lokahátíðin. Leikirnir byrjuðu í morgun en setningin verður í kvöld. (meira…)

Mikil vinna í öllum frystihúsunum í Eyjum

FRÉTTIR sem koma út í dag, greina frá því að Godthaab í Nöf ætli að frysta makríl og mikill undirbúningur í gangi fyrir vinnsluna. „Við erum að klára að græja húsið hjá okkur og höfum fjárfest í vélum og pökkunar- og frystikerfi,“ sagði Daði Pálsson hjá Godthaab. „Vélar og pökkunarkerfi nýtist við vinnslu á gulllaxi […]

Selfyssingar ætla að yfirtaka Eyjuna fögru á föstudaginn

ÍBV leikur sinn 9. leik í efstu deildinni, á föstudaginn kl. 20.00 og verður leikið á Hásteinsvelli. Á heimasíðu Selfossliðsins er að finna skemmtilegan pistil um íþróttasamskipti þessar tveggja vinabæja, Vestmannaeyja og Selfoss. Og þegar að er gáð, hafa samskiptin verið meiri en marga grunar. (meira…)

Kvennalið ÍBV á ný í efstu deild

Á sameiginlegum fundi leikmanna kvennaliðs ÍBV í handbolta og handknattleiksráðs var ákveðið að sækja um þátttöku í efstu deild á ný. – ÍBV hefur leikið í 2. deild undanfarin þrjú ár, en sú deild er eins og utandeild og lið vinna sig ekki upp um deild. Handknattleiksráð telur að nú sé kominn tími til að […]

Stofnfé Sparisjóðs Vestmannaeyja aukið í 1004 milljónir króna

Á fundi stofnfjáreigenda í Sparisjóði Vestmannaeyja á mánudagskvöld, var samþykkt að auka stofnfé sjóðsins í 1004 milljónir króna, með tilkomu Seðlabankans, Vinnslustöðvarinnar, Vestmannaeyjabæjar og Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja. Jafnframt var samþykkt að lækka eldra stofnfé um 72%. Seðlabankinn er í dag stærsti stofnfjáreigandi Sparisjóðs Vestmannaeyja með 55%. (meira…)

Fyrning aflaheimilda verður ekki í haust

Endanlega er úti um áætlanir ríkisstjórnarinnar um að hægt verði að hefja innköllun og endurráðstöfun aflaheimilda næsta haust. Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, tilkynnti á ríkisstjórnarfundi í gær að við úthlutun aflaheimilda fyrir næsta fiskveiðiár, sem hefst 1. september, verði byggt á núgildandi lögum. (meira…)

Ný skótíska að ryðja sér til rúms?

Eyjafrettir rákust á splunkunýjan skótískuvef, sem þótti athyglisverður. Þar eru allskyns skór í hávegum og útlit þeirra og lögun afar sérstök. Hvort það hæfir öllum skal hinsvegar ósagt látið. En frumlegir eru þeir. Allavega gaman að skoða myndirnar. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.