Herjólfur vélarvana í Vestmannaeyjahöfn

Herjólfur er nú vélarvana í Vestmannaeyjahöfn og rak skipið stjórnlaust um tíma. Ekki er vitað hvað olli því að skipið missti afl en skipið rak frá bryggju við brottför og virðist hafa misst afl strax og landfestar voru leystar. Farþegaskipið rak frá bryggju en Frár VE og hafnsögubáturinn Lóðsin reyna nú að koma farþegaskipinu að […]
Heimir stýrir ekki ÍBV í næsta leik

Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, er staddur á Englandi þar sem hann er að klára nám sem gefur UEFA Pro þjálfaragráðuna. Heimir mun af þeim sökum missa af leik ÍBV og Stjörnunnar í Pepsi-deildinni á mánudag. Í fjarveru hans mun aðstoðarþjálfarinn Dragan Kazic stýra Eyjamönnum ásamt Hjalta Kristjánssyni þjálfara KFS. (meira…)
Our lives spilar á föstudagskvöldi á brekkusviði

Hljómsveitin Our lives mun trylla lýðinn aðfaranótt laugardags þar sem þeir bætast í góðan hóp hljómsveita. Því munu 3 hljómsveitir skipta með sér skemmtun næturinnar en fyrir voru Í svörtum fötum og Veðurguðirnir. Kvöldvakan á föstudag er sem hér segir: (meira…)
Af hverju að kaupa merki goslokahátíðar?

Goslokahátíð Vestmannaeyjabæjar verður haldin hátíðleg um næstu helgi með fjölbreyttri skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna. Að hátíðinni er enginn aðgangseyrir og dagskrá helgarinnar bæjarbúum og gestum að kostnaðarlausu. Goslokanefnd hefur lagt áherslu á að bjóða ávallt upp á metnaðarfulla barnadagskrá þessa helgi og verður engin undantekning gerð á þetta árið. Merki goslokahátíðar verður til sölu fyrir […]
Fyrsta tap ÍBV kom á Selfossi

Selfoss varð í gærkvöld fyrsta liðið til að vinna ÍBV í 1. deild kvenna er liðin mættust á Selfoss velli. Leiknum lauk með 3-2 sigri Selfoss en Katrín Ýr Friðgeirsdóttir skoraði öll mörk Selfoss í leiknum. ÍBV hafði komist yfir með marki frá Sóleyju Guðmundsdóttur en Selfoss svaraði með þrennu Katrínar áður en Kristín Erna […]
Fyrsta Goslokalagið heitir Heimaey

Nú hefur fyrsta Goslokalagið litið dagsins ljós en Goslokahátíðin fer fram um næstu helgi. Heimaey heitir lagið en það er Eyjapeyinn Ósvaldur Freyr Guðjónsson sem semur lag og texta. Hljómsveitin ObbÓ-Síí flytur lagið ásamt söngvaranum Þórarni Ólasyni úr Dansi á Rósum. Hægt er að hlusta á lagið hér að neðan. (meira…)
Fasteignir hækkar mest í Eyjum
Fasteignir í Vestmannaeyjum hækka um 10,4% samkvæmt nýju fasteignamati fyrir árið 2011. Vestmannaeyjar skera sig úr hvað varðar fasteignamatið því á landinu öllu lækkar fasteignamat um 8,6% að meðaltali og íbúðarhúsnæði á landinu öllu lækkar um 10%. Fasteignamat hækkar einnig í Skútustaðahreppi, 7,7%, Grýtubakkahreppi 6,5%, Höfn í Hornafirði 5,5% og í Akrahreppi, Fljótsdalshreppi og Ásahreppi […]
Gói og Halli sprella fyrir börnin

Mikilvægur hluti af stórhátíðinni Þjóðhátíð er skemmtum fyrir börnin. Í ár mun ekki vera nein breyting þar á. Dagskráin á föstudag verður birt hér í bútum næstu daga og byrjum við á barnaskemmtun. Ekki er þó búið að loka dagskránni fyrir nýjum atriðum sem gætu bæst við á næstu vikum en hér að neðan má […]
Vestmannaeyjabær óskar eftir börnum til að selja merki Goslokahátíðarinnar
Vestmannaeyjabær óskar eftir duglegum börnum til þess að selja merki Goslokahátíðarinnar 2010. Þau börn sem hafa áhuga á að selja merkin eru hvött til þess að koma í Ráðhús Vestmannaeyja, á morgun miðvikudag frá kl. 09. Jafnframt verður hægt að koma á fimmtudag. Eru Eyjamenn hvattir til að taka vel á móti sölubörnum, kaupa merki […]
Eyjamenn skjóta oftast á markið

Morgunblaðið heldur úti skemmtilegri tölfræði um Pepsídeild karla sem blaðið birtir vikulega á meðan Íslandsmótinu stendur. Í tölfræðinni kemur m.a. fram að Eyjamenn skjóta oftast á markið. Þá er af sem áður var að fæstir mættu á leiki ÍBV, því samkvæmt samantekt Morgunblaðsins þá er ÍBV í 9. sæti yfir mestu aðsókn, fyrir ofan Stjörnuna, […]
Fjölbreytt dagskrá Goslokahátíðarinnar
Hin árlega Goslokahátíð fer fram í Vestmannaeyjum dagana 1.-4. júlí en á hátíðinni minnast Eyjamenn lokum eldgossins 1973. Dagskráin í ár er fjölbreytt en meðal annars má finna þar rokktónleika Dúndurfrétta, listsýningar, handverksmarkaði, matarveislur, Eyjatónleika, gönguferðir og frumsýningu á kvikmynd. Dagskrá Goslokahátíðarinnar má sjá hér að neðan. (meira…)
Mikið fjör á Herminator Invitational

Á laugardaginn fór fram góðgerðargolfmótið Herminator Invitational en það er Eyjapeyinn Hermann Hreiðarsson, landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, sem stendur fyrir mótinu. Fjölmörg þekkt andlit tóku þátt í mótinu, margir núverandi og fyrrverandi íþróttastjörnur en margir klæddu sig upp í búninga og tóku búningakeppni mótsins alvarlega. Mótið var þó á léttu nótunum en megintilgangur þess er að […]
Enn finnast fíkniefni á farþegum Herjólfs
Það var í nógu að snúast hjá lögreglu í vikunni sem leið enda töluverður fjöldi fólks í bænum í tengslum við Shellmót ÍBV. Hins vegar fór mótið ágætlega fram og þurfti lögreglan lítið að hafa afskipti af gestum mótsins. Ein eignaspjöll voru tilkynnt til lögreglu í vikunni en um var að ræða skemmdir á byggingakrana […]
ÍBV fékk heimaleik gegn úrvalsdeildarliði Hauka

Eyjastúlkur duttu í lukkupottinn í 8-liða úrslitum Visabikarkeppninnar en dregið var nú í hádeginum á höfuðstöðvum KSÍ. ÍBV, sem er eina 1. deildarliðið sem enn er í keppninni, fékk heimaleik gegn Haukum en Haukar eru í næst neðsta sæti úrvalsdeildarinnar og möguleikar ÍBV líklega mestir gegn Hafnafjarðarliðunum tveimur, Haukum og FH sem bæði voru í […]
Röddin aflýsir áheyrnaprufum í Eyjum

Ekkert verður úr áheyrnarprufum söngkeppninnar Raddarinnar í Vestmannaeyjum en í fréttatilkynningu frá forsvarsmönnum keppninnar kemur fram að lítil þátttaka í Eyjum hafi orðið til þess að prufunum hafi verið aflýst. „Okkur þykir miður að geta ekki komið, en því miður hafa alltof fáir skráð sig,“ segir í fréttatilkynningu frá þeim Siggu Beinteins og Maríu Björk […]
Í brekkunni á Suðurland FM 96,3

„Við ætlum að hita upp fyrir verslunarmannahelgina og þá helst Þjóðhátíð í Eyjum eins og við gerðum í fyrra,“ segir Bersveinn Theodórsson, oft kallaður Bessi. Hann og Vignir Egill Vigfússon fara í loftið með þáttinn Í brekkunni á Suðurland FM 96,3 mánudaginn 26. júlí og verður þátturinn að mestu sendur beint út frá Vestmannaeyjum. (meira…)
Dúndurfréttir með Led Zeppelin tónleika í Höllinni
Dúndurfréttir verða á fimmtudagskvöldið 1. júlí í Höllinni Vestmannaeyjum. Um er að ræða 40 ára afmælistónleika til heiðurs þessari mögnuðu sveit. Þetta verða blóðnasir og algjör geggjun. Húsið opnar kl. 21.00 og tónleikarnir hefjast kl. 21.30. (meira…)
Goggi býður í Blíðukró
Goslokahátíðin er um næstu helgi og að venju verður opið hús í Blíðukró á laugardagskvöldið. Eins og áður þá fá allir sem vilja að fara upp og taka lagið og eða fara með gamanmál. Nú þegar liggur fyrir að hljómsveitin Afrek muni taka lagið, einnig ætlar vinur minn Grétar Mar að reyna að mæta og […]
Bó mætir líka á �?jóðhátíð

Nú berast ótt og títt fréttir af skemmtikröftum sem munu skemmta Eyjamönnum og gestum þeirra á Þjóðhátíðinni 2010. Nú síðast bárust fréttir þess efnis að búið væri að semja við Björgvin Halldórsson um að koma fram á Brekkusviðinu á föstudagskvöldinu. Björgvin mun syngja á klukkutíma tónleikum fyrir hina stórfenglegu brennu á Fjósakletti. (meira…)
Sólin frá Sandgerði á �?jóðhátíð

Hljómsveitin Sólin frá Sandgerði mætir til Eyja þessa Þjóðhátíð og spilar á kvöldvöku föstudagskvöldsins. Fleiri góðir gestir mæta á kvöldvöku föstudagsins og má þar nefna sem dæmi Dólgana og Davíð og Stefán. (meira…)