Bátsferðin mín – gosnóttina 1973

Byggðasafn Vestmannaeyja safnar frásögnum ykkar. Goslokahelgina hefst söfnun á frásögnum ykkar um bátsferðina frá Vestmannaeyjum gosnóttina 1973. Í hvaða bát varstu? Á hvaða aldri varstu? Hverjir voru samferða þér? Hvernig var upplifunin? Hvað fór í gegnum huga þinn? Þessi söfnun frásagna heldur áfram eftir goslokahelgi og mun taka nokkurn tíma. (meira…)

James Hurst snýr aftur til ÍBV

Bakvörðurinn knái James Hurst mun snúa aftur til ÍBV og spila með liðinu út ágústmánuð. Þetta staðfesti Trausti Hjaltason, framkvæmdastjóri fyrir stundu en Hurst hefur verið einn allra sterkasti leikmaður sumarsins á Íslandi og vakið verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína. Það var enska 1. deildarliðið Portsmouth sem hafði frumkvæðið að því að Hurst sneri aftur […]

Samið um frágang á bílastæðum og göngustígum í Land-Eyjahöfn

Nú líður óðum að þeim mikilvæga áfanga í samgöngumálum Vestmannaeyinga, þegar Landeyjahöfn verður tekin í notkun miðvikudaginn 21. júlí n.k.. Í morgun var undirritaður samningur um frágang lóðar en hann felur m.a. í sér malbikun bílastæða og göngustíga. (meira…)

Surtseyjarstofa opnuð með viðhöfn í Eyjum í dag

Surtseyjarstofa var opnuð Vestmannaeyjum síðdegis í dag og kom það í hlut Svandísar Svavarsdóttur, umhverfisráðherra. Surtseyjarstofa er gestastofa fyrir friðlandið Surtsey sem árið 2008 komst á heimsminjaskrá UNESCO. (meira…)

KFS og �?gir á morgun kl. 10.30

Leik KFS og Ægis frá Þorlákshöfn hefur verið frestað til morguns, laugardag. Verður leikurinn kl. 10.30 á Týsvelli. – Til stóð að Ægismenn kæmu siglandi frá Land-Eyjahöfn, er ekki viðrar til siglinga lítilla báta úr höfninni, og því komast þeir ekki til leiks. (meira…)

Gómaði hasshaus í blokk

Í gærkvöldi gerði lögreglan í Vestmannaeyjum húsleit í íbúð í fjölbýlishúsi í bænum. Við leit í íbúðinni fundust um 55 grömm af marihúana og nokkur grömm af hassi. Húsráðandi var handtekinn og færður í fangageymslu þar sem hann gisti s.l. nótt. Hann viðurkenndi að eiga efnin og sagði þau til eigin nota en neitaði að […]

Hvetur Eyjamenn til að skreyta nærumhverfi sitt með litum goslokahátíðarinnar

Um leið og goslokanefnd óskar Eyjamönnum og gestum góðrar skemmtunar um helgina viljum við hvetja Eyjamenn til að skreyta nærumhverfi sitt með litum goslokahátíðarinnar, þ.e svörtum, gulum, rauðum og appelsínugulum. Slíkar skreytingar settu skemmtilegan svip á bæinn í fyrra og er það von okkar að svo verði einnig í ár. (meira…)

Lundaveiðitímabilið stytt

Bæjarstjórn Vestmannaeyja ákvað á fundi sínum í gær að stytta lundaveiðitímabilið úr 55 dögum, eins og lundaveiðitímabilið er í venjulegu árferði, í aðeins 5 daga. Tímabil þar sem lundaveiði verður leyfð stendur frá 24. júlí til 28. júlí, að báðum dögum meðtöldum. Þetta er gert í ljósi váglegrar stöðu lundastofnsins. „Þrátt fyrir að einsýnt sé […]

Hiti í júnímánuði yfir meðallagi

Samkvæmt yfirliti Veðurstofunnar var meðalhiti í Vestmannaeyjum í júnímánuði 9,6 gráður á Celsíus. Er það 1,6 gráðum hærra hitastig en í meðalári. Hitastigið í júní í Eyjum, er það þriðja hæsta frá því mælingar hófust á Stórhöfða árið 1877. (meira…)

�?akklátur fjölskyldunni að treysta mér fyrir að gera þessa mynd

Á morgun, laugardag verður myndin Breki sýnd í Bæjarleikhúsinu ásamt sjónvarpsmyndinni Á sjó. Breki er stuttmynd og lokaverkefni Haraldar Ara Karlssonar sem útskrifaðist sem leikari og kvikmyndagerðarmaður frá Kvikmyndaskóla Íslands í vor. Myndin fjallar um það þegar Haraldur Ari missir föður sinn, aðeins fimm ára gamall. (meira…)

Fimleikafélagið Rán selur Goslokaveifur

Nú styttist í að hátíðahöldin á Goslokahátíðinni hefjist en dagskrá hátíðarinnar er glæsileg og ættu flestir að finna eitthvað við sitt hæfi. Eyjamenn hafa tekið upp á því að skreyta húsin sín í kjölfarið og munu iðkendur í Fimleikafélaginu Rán ganga í hús og selja Goslokaveifur, sem hægt er að hengja upp utandyra. (meira…)

Greiddu 18% arð í evrum

Aðalfundur Vinnslustöðvar­innar samþykkti á aðalfundi að skrá hlutafé félagsins í evrum og að í kjölfarið yrði greiddur út 18% arður í evrum. Á árinu 2008 nýtti félagið sér heimild í lögum til að breyta reikningsskilum sínum úr ís­lenskum krónum í evrur. Stjórn og stjórnendur segja að reynslan sýni að sú ákvörðun hafi verið hárrétt, því […]

Tunglfiskur barst Fiska- og Náttúrugripasafninu í Eyjum

Fiska- og Náttúrugripasafni Vestmannaeyja barst í dag Tunglfiskur. Áhöfnin á Kap VE dró fiskinn úr hafinu um það bil 60 sjómílur út af Reykjanesi en Kap var þar við Makrílveiðar. Reynt verður að stoppa fiskinn upp en fyrir er á safninu eitt eintak. Tunglfiskur er þyngsti beinfiskur jarðar og getur orðið yfir tvö tonn að […]

Safn um byggð sem fór undir hraun

Um goslokahelgina verður opnað nýtt kaffihús í miðbæ Vestmanna­eyja, Vinaminni-kaffihús. Vina­minni verður staðsett í Baldurs­haga og það er Arnór bakari sem rekur kaffihúsið. Samhliða opnuninni, verður opnuð ný bakarísverslun við hlið kaffihússins. Helga Jónsdóttir, sem á og rekur Arnór bakara ásamt manni sínum, Arnóri Hermannssyni, bakarameist­ara, sagði í samtali við Fréttir að kaffihúsið væri tengt […]

Flugfélagið Ernir hefur áætlunarflug til Eyja

Frá og með 4. ágúst næstkomandi tekur Flugfélagið Ernir við áætlunarflugi til Vestmannaeyja en félagið hyggst fljúga tvær ferðir á dag, alla daga vikunnar. Forráðamenn félagsins gera ráð fyrir að ferþegastreymi í áætlunarflugum félagsins tvöfaldist en síðastliðin fjögur ár hefur Flugfélagið Ernir flogið til Hafnar í Hornafirði, Sauðárkróks, Bíldudals og Gjögurs. (meira…)

Afar ánægjuleg þróun

„Fasteignamat ríkisins, FMR, á­kvarð­ar fast­eignamat allra eigna í landinu en matið á að vera sem næst mark­aðsvirði eigna. Í Vest­mannaeyjum var fast­eigna­verð af­skap­lega lágt um margra ára skeið, síðustu árin hefur það farið hækk­andi og nálgast nú bygginga­verð þrátt fyrir að hafa ekki náð því enn,“ sagði Páley Borgþórsdóttir, formaður bæjarráðs þegar hún var beðin […]

Haffi Haff mætir í partíið

Söngvarinn og Wipe-out sigurvegarinn að nafni Haffi Haff mun mæta á Þjóðhátíðina 2010. Hann ætlar að merkja hátíðina með sínu handbragði enda taka allir eftir þessum litríka listamanni hvar sem hann fer. Mun ástarpensillinn syngja á kvöldvökunni á laugardagskvöld en kvöldvakan hefst kl 20.30 og stendur til 0:00 líkt og áður. Hér að neðan má […]

Led Zeppelin tónleikum frestað

Vegna óviðráðanlegra orsaka hjá hljómsveitinni Dúndurfréttum, hefur verið ákveðið að fresta Led Zeppelin tónleikunum sem fyrirhugaðir voru í kvöld. Sveitin setti sig í samband við forráðamenn Hallarinnar í morgun og tilkynntu frestunina. Það verður hins vegar nóg um að vera í Höllinni annað kvöld, Eyjatónleikar og matarveisla Einsa Kalda, Úrval úr matarkistu Eyjanna. (meira…)

�?að þarf nýjan Herjólf milli lands og Eyja

Herjólfur er kominn til ára sinna og því miður eru bilanir alltof tíðar. Það er alveg á hreinu að það þarf nýtt skip í siglingar milli lands og Eyja. Verði Herjólfur vélarvana fyrir utan Landeyjahöfn gæti það örugglega skapað mikið hættuástand. Það er ekkert grín að vera með 300-400 farþega og eiga á hættu að […]

Herjólfur lagður af stað

Farþegaskipið Herjólfur lagði af stað í síðari áætlunarferð sína nú fyrir skömmu en skipið varð vélarvana við brottför fyrr í dag. Eftir að búið var að binda skipið við bryggju, fór kafari niður að skrúfu og stýri skipsins til að kanna hugsanlegar skemmdir. Þær reyndust engar og hélt skipið úr höfn tæpum tveimur klukkustundum á […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.