Land & synir, Sóldögg og Maus mæta á �?jóðhátíð

Enn bætist við þá listamenn sem koma fram á �?jóðhátíð Vestmannaeyja 2015. Nú bætast þrjár gamalkunnar sveitir í dagskrána Land & synir, Sóldögg og Maus. “nostalgían verður tekin alla leið með þessum frábæru listamönnum.” segir í tilkynningu �?jóðhátíðarnefndar. Fyrir í dagskránni má finna hljómsveitirnar FM Belfast, AmabAdamA, Páll �?skar, Ný Dönsk og Júníus Meyvant. Sem […]

Með unnin leik í höndunum

Afturelding lagði ÍBV í framlengdum leik 27-25 eftir að ÍBV var með sigurinn í hendi sér. ÍBV skoraði fyrsta mark leiksins en svo kom góður kafli Aft­ur­eld­ingar og þeir komust í 7:1 og virt­ist eiga auðveld­an sig­ur vís­an en Eyja­menn voru ekki sammála. �?eir gengu jafnt og þétt á forskot heimamanna og í hálfleik var […]

ÍBV sigraði �?ór

ÍBV sigraði �?ór 3:1 á Stadi­um Campoamor á Spáni í dag en Gauti �?or­varðar­son gerði tvö mörk fyr­ir Eyja­menn. Bæði lið eru í æf­inga­ferð á Spáni og und­ir­búa sig þar fyr­ir kom­andi átök í ís­lenska bolt­an­um í sum­ar. Fram­herj­inn öfl­ugi, Jó­hann Helgi Hann­es­son, kom �?ór yfir með marki á 15. mín­útu leiks­ins en hann stangaði […]

Byrjað að dýpka um leið og veður leyfir – óhagstæð spá næstu daga

Enn hefur ekki tekist að opna Landeyjahöfn og eru heimamenn orðnir langþreyttir á ástandinu. Sigurður Áss Grétarsson hjá Vegagerðinni segir að verktakinn sé klár með dýpkunarskip og áhafnir og verði farið af stað um leið og færi gefst. Jóhann Garðar Jóhannson hjá Björgun tekur í sama streng og segir að um leið og veður leyfir […]

Afturelding – ÍBV í beinni útsendingu

SportTv mun sýna leik Aftureldingar og ÍBV í kvöld klukkan 19:30. Ríkissjónvarpið sýnir ekkert frá 8-liða úrslitum í úrslitakeppninni hvorki í karla né kvennaflokki. Gleðjast því margir handboltaunnendur við þessar fréttir. (meira…)

Fast­eigna­verð í Eyj­um hækkað um 70%

Fast­eigna­verð í Vest­manna­eyj­um hef­ur hækkað um 70% síðan fjár­mála­kerfið féll hér á landi í lok árs 2008. Á sama tíma hef­ur verðið hækkað um 15-16,5% á Akra­nesi og Ak­ur­eyri, en lækkað um 5,4-6,5% í Reykja­nes­bæ og í Árborg. �?etta kem­ur fram í Hag­sjá Lands­bank­ans, en þar er sagt að mik­il teng­ing við sjáv­ar­út­veg og sterkt […]

Nóg um að vera í handboltanum í dag

Meistaraflokkar karla og kvenna leika báðir í úrslitakeppninni í dag og hefjast leikirnir á sama tíma klukkan 19:30. Meistaraflokkur karla hefur titilvörn sína í Mosfellsbænum í kvöld þar sem þeir mæta Aftureldingu í 8-liða úrslitum. Leikurinn hefst klukkan 19:30. Í vetur hafa liðin mæst fjórum sinnum, þrisvar í Olísdeildinni og einu sinni í Coca-cola bikarnum. […]

Sirkus Íslands á Goslokahátíð

Í fyrra sáu 22.000 manns sýningar Sirkus Íslands víðs vegar um landið í sirkustjaldinu Jöklu. Jökla sló met á sínum tíma í hópfjármögnun á Íslandi, og safnaði íslenskt sirkusáhugafólk fyrir henni. Sú söfnun gekk svo vel að nú söfnum við aftur fyrir sirkusinn, í þetta sinn fyrir tilfallandi kostnaði, græjum og sirkusdóti til að koma […]

Leik Aftureldingar og ÍBV frestað

Leik Aftureldingar og ÍBV í 8-liða úrslitum hefur verið frestað vegna veðurs. Leikurinn átti að fara fram í Mosfellsbænum í kvöld en mun fara fram annað kvöld á sama tíma klukkan 19:30. (meira…)

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.