�?tivistartími lengdur

Með hækkandi sól lengist útivistartími barna og ungliga frá 1. maí. Börn yngri en 12 ára mega vera úti til klukkan 22. Unglingar á aldrinum 13 til 16 ára mega vera úti til klukkan 24. Börn mega ekki vera á almannafæri utan fyrrgreinds tíma nema í fylgd með fullorðnum. (meira…)

Taka þátt í Evrópumóti í Legó

Tíu nemendur í 7. bekk Grunnskóla Hornafjarðar taka þátt í Evrópumótinu í Lego sem nefnist Children Climate Call. Keppnin hófst í Kaupmannahöfn gær og stendur fram á sunnudag. Hópurinn kallar sig Klakarnir og vann landskeppnina á Íslandi og þar með keppnisrétt í Danmörku. (meira…)

Stærsta handboltamót sem haldið hefur verið í Vestmanneyjum

Í dag klukkan 14.00 hófst í íþróttamiðstöðinni síðasta fjölliðamót Íslandsmótsins í 6. flokki karla í handbolta. Keppt er í A-, B- og C-liðum en ÍBV teflir fram fjórum liðum. Tæplega fimm hundruð keppendur og þjálfarar eru samankomnir í íþróttamiðstöðinni en auk þess er fjöldi foreldra sem fylgir börnunum til Eyja. Um er að ræða stærsta […]

Bara svolítið fyndið

Í tilefni 1. maí, sem ber uppá föstudag, eru hér nokkur bráðfyndin myndbönd, sem hægt er að skemmta sér yfir nokkra stund. Hvert öðru betra. (meira…)

Byggjum réttlátt þjóðfélag

Á 1. maí á síðasta ári héldum við bar­áttufund í Alþýðuhúsinu og horfð­um til framtíðar. Héldum daginn hátíðlegan með sérstakri áherslu á eldri félagsmenn okkar og þakklæti fyrir störf þeirra að uppbyggingu þjóðfélagsins. Nú ári síðar virðist allri þessari uppbyggingu hafa verið kastað á glæ í græðgi ör­fárra aðila ef ekki hreinum og klárum þjófnaði […]

Nýja sundlaugin á Höfn vinsæl

Nýja sundlaugin á Höfn í Hornafirði hefur fengið góð viðbrögð gesta. Talið er að á annað þúsund manns hafi komið í sundlaugina á vígsludeginum, sumardaginn fyrsta. Margir hafa lagt leið sína í laugina fyrstu opnunardagana og notið þeirrar afþreyingar sem í boði er. (meira…)

Áhyggjufullir svínabændur

Svínabændur hafa áhyggjur af því að ef svínaflensa greinist hér á landi þá berist hún frá mönnum í svín. Svínabúin eru þó nokkuð lokuð sem getur hjálpað þeim að koma í veg fyrir að svo fari. Yfirdýralæknir sendi í morgun öllum svínabændum bréf þar sem þeir eru hvattir til að fara yfir smitvarnir hjá sér […]

Konukvöld á Ráðhúskaffi í kvöld

Heilsudögum í Þorlákshöfn lýkur í kvöld en þeir hafa staðið yfir alla vikuna. Frítt hefur verið í sund og líkamsrækt auk þess sem íbúar Ölfuss hafa getað spilað golf endurgjaldslaust. (meira…)

Risahumrar á Höfn

Í morgun voru nokkrir risahumrar á sveimi á Höfn í Hornafirði. Þetta voru útskrifarnemendur Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu að gera sér dagamun á síðasta kennsludegi. (meira…)

�?breytt miðaverð í Dalinn

Þjóðhátíðarnefnd hefur tekið þá ákvörðun að hækka ekki miðaverð í dalinn. Ekkert verður slegið af í skemmtannahaldi enda Eyjamenn ekki þekktir fyrir annað en gera þetta almennilega eða bara sleppa því. Miðaverðið er því 10.900 kr í forsölu en 12.900 við innganginn. (meira…)

Herrakvöld Síldarútvegsnefndar ÍBV verður haldið á morgun

Annað kvöld heldur Síld­ar­útvegsnefnd ÍBV herrakvöld í Týsheimilinu þar sem boðið verður upp á mikla veislu í mat og drykk og öflugri skemmti­atriðum en menn eiga að venjast, m.a.s. í Vestmannaeyjum. Glæsilegir vinningar eru í boði og haldið verður uppboð á verk­um helstu listamanna nútímans. Þá mun Heimir þjálfari kynna ÍBV-liðið og ræðumaður kvölds­ins er […]

�?ll kynbótahross kvikmynduð

Fyrirtækið Ben Media í Hveragerði áætlar að kvikmynda öll kynbótahross á sýningum sem haldnar verða í Reykjavík, Hafnarfirði og á Hellu. Fyrirtækið var stofnað um mitt ár 2008 og hefur frá þeim tíma boðið upp á þá þjónustu að kvikmynda kynbótahross fyrir eigendur. Á þriðja hundrað hross hafa verið mynduð. (meira…)

Pylsuvagninn á Selfossi þrefaldaður

Það er engin kreppa hjá Ingunni Guðmundsdóttur og starfsfólki hennar í Pylsuvagninum á Selfossi því nú er verið að stækka vagninn um 52 fermetra, úr 28 í 80. Þriðjudaginn 9. júní verður þessi vinsæla stoppistöð við Ölfusárbrúna 25 ára og verður haldið upp á afmælið laugardaginn 13. júní. (meira…)

Ekið á tvö hross í Árnessýslu

Jeppa var ekið á tvö hross á Skeiðavegi í Árnessýslu á ellefta tímanum í gærkvöldi með þeim afleiðingum að annað hrossið drapst samstundis en hitt meiddist talsvert. Ökumann jeppans sakaði ekki, en bíllinn stórskemmdist og þurfti að fjarlægja hann með kranabíl. (meira…)

Trippasýning í nýju reiðhöllinni á Flúðum

Hin árlega trippasýning Hrossaræktarfélags Hrunamanna sem haldin var á dögunum var fyrsta sýningin í nýju reiðhöllinni á Flúðum. Sýnd voru 36 veturgömul tryppi, 7 ungfolar og tveir stóðhestar sem verða til útleigu hjá Hrossaræktarfélaginu í sumar. (meira…)

Auðlindirnar verða ekki frá okkur teknar

Sú saga gengur fjöllum hærra að auðlindir landsins verði frá okkur teknar ef við göngum í ESB. Þessi fullyrðing er algerlega úr lausu loftin gripin og styðst ekki við nokkur rök. (meira…)

Segir ásakanir Árna út í hött

Kjartan Ólafsson, sem var í fimmta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins segir flokksfélaga sinn, Árna Johnsen, fara með fleipur þegar hann segir að unnið hafi verið gegn sér úr Árborgarsvæðinu. Árni segir m.a. að frambjóðendur í Árborg hafi unnið að því að fá fólk til að strika sig út af lista í kosningunum og má leiða […]

Lífsgæði við mótun byggðar

Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar, er annar tveggja ráðstefnustjóra á ráðstefnu Skipulagsstofnunar um mótun byggðar. Ráðstefnan hefst í VeisluTurninum í Kópavogi í fyrramálið klukkan hálfníu. Á ráðstefnunni er lögð sérstök áhersla á lífsgæði við mótun byggðar. (meira…)

Vonlaust að samherjar skipuleggi útstrikanir

Í Fréttum sem koma út í kvöld er rætt við frambjóðendur úr Eyjum í Alþingiskosningunum um síðustu helgi. Árni Johnsen, sem fékk 17% útstrikanir, segir vonlaust þegar samherjar hans í Sjálfstæðisflokki Suðurkjördæmis séu að skipuleggja útstrikanir sér til höfuðs. Hann vill breyta útstrikunarreglum og segir Sjálfstæðismenn í Árborg hafa unnið óheiðarlega. (meira…)

�?Flestir í fjölskyldunni vöknuðu�?

Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar, segist hafa vaknað við jarðskjálftann við Skálafell á Hellisheiði í nótt. „Ég vaknaði við það að hörku kippur kom og var það eins og högg frekar en langur skjálfti, segir Aldís við Suðurlandið.is. “ (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.