�?tlar ESB að gleypa okkur með húð og hári?

Margir virðast óttast það að Evrópusambandið bíði þess óþreyjufullt að Ísland sæki um aðild til þess eins að geta hér ráðskast með fólkið í landinu og auðlindir þess. Ég hef áður fjallað um auðlindinar, líkt og margir fleiri í þessari kosningabaráttu svo vonandi hefur auðlindadraugurinn verið kveðinn niður. En hvað með aðra þætti mannlífsins, mun […]

Tæpar 20 milljónir til sunnlenskrar ferðaþjónustu

Iðnaðarráðuneytið hefur úthlutað eitt hundrað milljónum króna til fjörutíu ferðaþjónustuverkefna um allt land. Níu verkefnanna eru á Suðurlandi og hljóta þau samtals 19,4 milljónir króna í styrk. (meira…)

Fyrning aflaheimilda er aðför að 32.000 fjölskyldum

Vinstriflokkar í framboði til Alþingis hafa það á stefnuskrám sínum að gera aflaheimildir sjávarútvegsfyrirtækja upptækar undir yfirskrift fyrningarleiðar. Slík aðgerð kollvarpar því trausta og hagkvæma skipulagi sem ríkt hefur í sjávarútvegi um árabil og setur afkomu tugþúsunda einstaklinga um land allt í mikla óvissu. (meira…)

Tónleikar til heiðurs Creedence Clearwater Revival og John Fogerty

Höllin í Vestmannaeyjum heldur 9. maí næstkomandi heiðurstónleika Creedence Clearwater revival og John Fogerty. Sérstakt band hefur verið skipað til að flytja lög þeirra og voru fengnir nokkrir af færustu hljóðfæraleikurum landsins. Forsala á tónleikana hefst 4. maí. (meira…)

Skemmdir unnar á kosningagjörningi Eyverja

Víða um Vestmannaeyjabæ má nú sjá ferðatöskur með skilaboðunum Pökkum saman og eru töskurnar merktar annað hvort X-S eða X-V. Það eru félagar í Eyverjum, ungliðahreyfingu Sjálfstæðisflokksins sem fóru þessa óhefðbundnu leið í kosningaherferð sinni og skilaboðin eru skýr. Reyndar fengu töskurnar ekki að vera lengi í friði því einhverjir höfðu farið um í skjóli […]

Framkvæmdastjóra ÍBV sagt upp

Framkvæmdastjóra ÍBV-íþróttafélags hefur verið sagt upp störfum. Friðbjörn Ólafur Valtýsson, fráfarandi framkvæmdastjóri, segir að aðalstjórn félagsins hafi gefið honum kost á því að segja starfi sínu lausu. Það hafi hann ekki þegið og í framhaldi hafi sér verið sagt upp formlega 18. apríl síðastliðinn. Friðbjörn segir að í uppsagnarbréfinu sé ekki tilgreind nein ástæða uppsagnar. […]

Samfylking og VG bæta við sig manni

Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkur myndu fá þrjá þingmenn hvor flokkur, Vinstri græn tvo og Framsókn einn samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins og fréttastofu Stöðvar 2 í Suðurkjördæmi. (meira…)

Friðbjörn hættir sem framkvæmdastjóri ÍBV

ÍBV-íþróttafélag og Friðbjörn Ólafur Valtýsson, sem hefur verið framkvæmdastjóri félagsins síðan í ársbyrjuna 2007, hafa komist að samkomulagi um starfsflok Friðbjarnar hjá félaginu. Friðbjörn lætur af störfum um mánaðarmótin en í Fréttum er ítarlegt viðtal við hann um félagið og starfsflokin (meira…)

Göngum til verka – tryggjum atvinnu

Á laugardaginn verður kosið um framtíðina. Við Íslendingar stöndum frammi fyrir því verkefni að endurreisa efnahag landsins. Við það verkefni er þörf á hugrökku fólki sem leggur fram lausnir. Sjálfstæðisflokkurinn hefur allt frá stofnun flokksins sett atvinnumál í forgang enda er ljóst að ef atvinnulífinu gengur vel þá gengur heimilunum vel. Við Sjálfstæðismenn ætlum að […]

Alþjóðlegur meistari til liðs við Taflfélag Vestmannaeyja

Á heimasíðu Taflfélags Vestmannaeyja er sagt frá því að Nils Grandelus, sem er alþjóðlegur meistari í skák, sé genginn í raðir Taflfélagsins. Nils, sem er aðeins fimmtán ára gamall er almennt talinn vera eitt mesta skákmannsefni sem fram hefur komið í Svíþjóð en hann hefur farið hratt upp stigalista FIDE undanfarið. (meira…)

Hinir vestfirsku KNH-verktakar langt á undan áætlun

Lagning Suðurstrandarvegar hefur gengið einstaklega vel í vetur og er ísfirska verktakafyrirtækið KNH ehf. langt á undan áætlun. Ef verkaefnastaða fyrirtækisins breytist ekki mikið reikna menn jafnvel með að vegarkaflinn verði tilbúinn í september í haust. Samkvæmt útboði átti hluti vegarins að vera tilbúinn á næsta ári og verki að fullu lokið 2011 (meira…)

Sammála um að vera ósammála

Háværar raddir hafa verið uppi um það að Vinstri græn og Samfylking muni eiga erfitt með að komast að niðurstöðu í Evrópumálum hljóti flokkarnir umboð til að mynda ríkisstjórn eftir komandi Alþingiskosningar. Einhverra hluta vegna virðast Sjálfstæðismenn hafa hve mestar áhyggjur af þessu og benda réttilega á að flokkarnir tveir, VG og Samfylking, eru á […]

Nýjum skóla á Stokkseyri frestað

Bæjaryfirvöld í Árborg hafa ákveðið að fresta því í nokkra mánuði að taka í notkun nýjan grunnskóla á Stokkseyri sem er í smíðum. „Samkvæmt verkáætlun við upphaf byggingaframkvæmda við skólann á Stokkeyri var gert ráð fyrir að afhending byggingar yrði í júlí 2009. Vegna aðstæðna í kjölfar efnahagskreppunnar sem skall á í haust hefur afhendingu […]

Ekki gleyma birtunni og ljósinu

Fjöldi fólks mætti á hamingjunámskeið hjá séra Þórhalli Heimissyni í safnaðarheimili Landakirkju Vestmannaeyja í gærkvöld. Í kjölfar bankahrunsins í haust fór séra Þórhallur af stað með námskeiðið 10 leiðir til lífshamingju. Markmiðið er að hjálpa fólki að breyta því sem það getur breytt til að finna lífshamingjuna á tímum sem hafa verið mörgum erfiðir. Námskeiðið […]

Smyglarar lentir á Selfossi

Ríkisútvarpið greinir frá því að flugvél Flugmálastjórnar hafi lenti á Selfossi rétt fyrir klukkan hálf sex í dag með þrjá meinta smyglara sem náðust á skútu í gærkvöld. Mennirnir verða fluttir á Litla-hraun. Þeir voru í morgun úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 12. maí. (meira…)

Af hverju vill Samfylkingin aðildarviðræður við ESB?

Samfylkingin vill fara í aðildarviðræður við ESB og leggja niðurstöður þeirra í dóm kjósenda. Ástæðan er einföld – ef við förum í aðildarviðræður vitum við hvað við fáum og hvað það mun hugsanlega kosta okkur að vera aðilar að ESB. Úr þessu fáum við aldrei skorið nema með því að fara í aðildarviðræður. (meira…)

Sjálfstæðisflokkurinn með 53.7% fylgi í Vestmannaeyjum og 68% Vestmannaeyinga segjast andvígir ríkisstjórninni

Margt má lesa út úr nýgerðri skoðanakönnun Capasent Gallup í Suðurkjördæmi sem gerð var fyrir Morgunblaðið og Ríkisútvarpið. Sérstök könnun var m.a. á fylgi flokkanna eftir byggðarlögum. Könnunin var bæði net- og símakönnun. Heildarúrtakið var 800 manns og svarhlutfallið 61% eða um 490 manns. Í könnuninni sem gerð var í Vestmannaeyjum sögðust 32% styðja ríkisstjórnina […]

Fuglaskoðunarferðamennska á Suðurlandi

Útflutningsráð heldur kynningu um möguleika í ferðamennsku í tengslum við fuglaskoðun klukkan 13 á Hótel Selfossi í dag. Útflutningsráð hefur undanfarin ár unnið að því að byggja upp fuglaskoðunarferðamennsku sem víðast á Íslandi. Unnið er að undirbúningi stofnunar Fuglaskoðunarsamtaka Íslands. Stefnt er að stofnun samtakanna í maí. (meira…)

10 leiðir til lífshamingju

Þriðjudaginn 21. apríl kl. 20.00 verður sr. Þórhallur Heimisson með erindi í safnaðarheimili Landakirkju um lífsgleði og samskipti. Erindið, sem ber heitið „10 leiðir til lífshamingju“, byggir á svipuðum hugmyndum og vinsæl hjónanámskeið sr. Þórhalls. Ekkert þátttökugjald er á námskeiðið sem er í boði Kjalarnessprófastsdæmis og opið öllum. Að loknu erindi sr. Þórhalls verða umræður. […]

Fundur hjá Skógræktarfélaginu í kvöld

Skógræktarfélag Vestmannaeyja boðar til aðalfundar þriðjudaginn 21.apríl n.k. k: 20 í Arnardrangi við Hilmisgötu. Dagskrá : Venjuleg aðalfundarstörf. María Stefánsdóttir verkefnastjóri atvinnuátaks Skógræktarfélags Íslands mætir á fundinn og gerir grein fyrir atvinnuátaki í skógrækt. Önnur mál. Kaffi og kleinur í boði stjórnar. Allir velkomnir. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.