Bræður og systur munu berjast

Í könnun Capasent Gallup, sem gerð var fyrir Morgunblaðið og Ríkisútvarpið, um fylgi stjórnmálaflokkanna í Suðurkjördæmi, má lesa skemmtilega niðurstöðu. Samkvæmt könnuninni fær Sjálfstæðisflokkurinn 3 þingmenn, það þýðir að næsti maður inn af listanum er Vestmannaeyingurinn Íris Róbertsdóttir. (meira…)
Borgarahreyfingin hefur opnað á Selfossi

Borgarahreyfingin – þjóðin á þing hefur opnað kosningaskrifstofu í Suðurkjördæmi að Eyrarvegi 31 Selfossi. Í tilkynningu frá framboðinu segir að þangað séu allir velkomnir til að kynna sér stefnu og málefni Borgarahreyfingarinnar og ræða við frambjóðendur yfir rjúkandi heitum kaffibolla. (meira…)
150 manns í kaffi og á kvöldvöku hjá Frjálslyndum

Frjálslyndi flokkurinn bauð til fjölskylduhátíðar í Vestmannaeyjum á laugardaginn. Um 100 manns mættu og gæddu sér á heitum vöfflum með kaffisopanum. Um 50 manns mættu á kvöldvöku flokksins um kvöldið og vill Frjálslyndi flokkurinn koma á framfæri þakklæti til þeirra sem mættu og minna um leið á að það verður enn meira fjör næsta laugardag […]
Lýðræðishreyfingin ekki efni á kosningaskrifstofum í kjördæminu

Suðurlandið.is sendi fyrirspurn til Lýðræðis-hreyfingarinnar um kosninga-skrifstofur framboðsins í Suðurkjördæmi, en undanfarna daga hafa verið fluttar fréttir hér á vefnum um kosninga-skrifstofur stjórnmálaflokkanna í kjördæminu lesendum til upplýsinga. Í skriflegu svari frá Ástþóri Magnússyni, oddvita flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður, kemur fram að framboðið eigi enga fjármuni til að opna kosningaskrifstofur, fyrir utan aðalskrifstofu framboðsins í […]
Kobbi kútur fékk óvænta heimsókn
Lögreglan á Selfossi hefur tvívegis þurft að hafa afskipti af ungum mönnum sem hafa farið í óleyfi inn á sundlaugarsvæði sundlaugar Selfoss utan opnunartíma. Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að í öðru tilvikinu hafi tíu menn verið á laugarsvæðinu og fimm í hinu. Mennirnir verða allir kærðir fyrir hegningarlagabrot enda óleyfilegt að fara inn […]
Áfengismælingin gleymdist

Ökuferð gestkomandi manns í Vestmannaeyjum í september í fyrra endaði ekki vel. Hvorttveggja var að maðurinn tók bílinn traustataki og að auki var maðurinn undir áhrifum vímuefna enda lauk bíltúrnum með því að bíllinn rakst tvívegis utan í umferðarmerki. (meira…)
Rólegt á kolmunnamiðunum

Huginn VE er á kolmunnumiðunum við Færeyjar. Á bloggsíðu þeirra má finna þennan pistil: Nú í dag er hið besta veður sól og hiti og hafa menn notið þess að vera útivið. Það er frekar rólegt yfir miðunum þessa dagana, við eigum eftir að setja smotterí í tanka og allan fram steisinn. (meira…)
Lögreglan fann 109 kíló af fíkniefnum

Um 109 kíló af fíkniefnum voru haldlögð á Austurlandi um helgina. Um er að ræða amfetamín, marijúana, hass og e-töflur. Sex karlar hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn málsins. Í tilkynningu frá lögreglu segir að tveir hafi verið handteknir við Djúpavog og einn í grennd við Höfn. Mennirnir hafa allir verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald […]
Tvö innbrot á Selfossi óupplýst

Síðastliðna nótt var brotist inn í trésmiðju Selós á Selfossi og þaðan stolið skiptimynt. Þjófurinn spennti upp útihurð og braut sér leið inn á skrifstofu þar sem hann fann smávegis af peningum sem hann hafði á brott með sér. Í tilkynningu frá lögreglunni kemur einnig fram að aðfaranótt laugardags hafi verið brotist inn í sjúkraþjálfunina […]
Sjálfstæðsflokkurinn og Samfylkingin með mest fylgi í Suðurkjördæmi
Sjálfstæðisflokkur og Samfylkingin mælast með mest fylgi í Suðurkjördæmi samkvæmt könnun, sem Capacent Gallup hefur gert fyrir Morgunblaðið og Ríkisútvarpið. Fylgi Sjálfstæðisflokks mælist 27,7% og Samfylkingarinnar 27,2%. (meira…)
Morgunvaktin beint frá Höfn og Eyjum í morgun

Morgunvakt Rásar 1 var send út frá Höfn í Hornafirði og Vestmannaeyjum í morgun í tengslum við kosningaumfjöllun Ríkisútvarpsins í Suðurkjördæmi. Síðdegisútvarpið sendir út frá Reykjanesbæ og Vestmannaeyjum frá klukkan 16 til 18 í dag. Hápunktur umfjöllunarinnar er borgarafundur á Hótel Selfossi klukkan 19:35 í kvöld sem verður sendur út samtímis í Sjónvarpinu og á […]
�?verjandi samningur um Helguvík

Fulltrúar Vinstri-grænna í þremur nefndum Alþingis hafa lýst andstöðu sinni við frumvarp um fjárfestingarsamning um álver í Helguvík og greiddu því atkvæði gegn frumvarpinu enda séu á því miklir annmarkar. (meira…)
Skútunni náð suðaustur af landinu

Varðskipið Týr stöðvaði um klukkan 22:30 í gærkvöld för seglskútu djúpt úti af suðausturlandi. Talið er að miklu af fíkniefnum hafi verið smyglað til landsins í henni. Skútan var komin út úr íslenskri lögsögu og sigldi í átt til Færeyja. Á vef Ríkisútvarpsins kemur fram að sérsveitarmenn hafi farið frá varðskipinu og handtekið þar þrjá […]
Framsóknarmenn opnuðu í Eyjum og Hveragerði

Fjölmenni var við opnun kosningaskrifstofu Framsóknarflokksins við Heiðarveg í Vestmannaeyjum í gær. Boðið var upp á grillaðar pylsur, kaffi og meðlæti. Framsóknarmenn opnuðu einnig kosningaskrifstofu í Hveragerði í gær. Í dag verða opnaðar skrifstofur klukkan 19 í Framsóknarhúsinu í Grindavík og klukkan 20 á Hótel Vík í Vík í Mýrdal. Þá verður kosningaskrifstofa framsóknarmanna í […]
Málverkasýning í Hrunamannahreppi

Agnar R. Róbertsson bóndi á Jaðri í Hrunamannahreppi sýnir málverk sín í versluninni Strax á Flúðum. Alls eru 12 myndir eftir Agnar á sýningunni. Allar eru þær olíumyndir af hestum. Á vef Hrunamannahrepps fludir.is kemur fram að þetta brennandi áhugamál hafi kviknað í æsku og hefur Agnar teiknað og málað frá barnsaldri. Árið 2001 flutti […]
Borgarafundur R�?V á Hótel Selfossi í kvöld

Í dag verður kosningaumfjöllun Ríkisútvarpsins um Suðurkjördæmi. Morgunvakt Rásar 1, sem hefst upp úr klukkan hálf sjö, verður send út frá Höfn í Hornafirði með viðkomu í Vestmannaeyjum. Síðdegisútvarp Rásar 2 klukkan 16 í dag verður í beinni útsendingu frá Reykjanesbæ. Hápunktur umfjöllunarinnar er borgarafundur á Hótel Selfossi klukkan 19:35 í kvöld sem verður sendur […]
Silfur Egils og heilsugæslan í Eyjum

Það var margt forvitnilegt í Silfri Egils í dag og kannski ótrúlegast að heyra enn einu sinni Sverrir Hermannsson gefa lýsingu á öllu því, sem átti sér stað á bak við luktar dyr hjá Sjálfstæðisflokknum. Ég segi bara enn einu sinni: þetta kemur ekki á óvart. Það sem hins vegar kemur mér verulega á óvart […]
Fundi með Bjarna frestað

Fyrirhuguðum fundi með formanni Sjálfstæðisflokksins sem halda átti í Vestmannaeyjum í kvöld, hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Ekki hefur verið flugfært til Eyja í dag og því hefur formaðurinn ekki komist til Eyja. Ekki er vitað hvenær eða hvort hægt verði að finna nýja tímasetningu á fundinum. (meira…)
Tugum kíló af fíkniefnum smyglað með skútu

Skútu, sem talin er að hafi verið notuð til að smygla tugum kílóa af fíkniefnum til landsins, er nú leitað. Í tilkynningu frá lögreglu segir að Landhelgisgæslan standi nú fyrir umfangsmiklum aðgerðum við leitina þar sem notaðar eru þyrlur, flugvél og varðskip. Um borð í varðskipinu eru sérsveitarmenn frá embætti ríkislögreglustjóra. Þrír menn voru handteknir […]
Nýliðun í landbúnaði og sjávarútvegi

Á þessum tíma í sögu lands og þjóðar er mikilvægt að hugað sé að nýliðun í grunnatvinnuvegum þjóðarinnar, landbúnaði og sjávarútvegi. Þessir atvinnuvegir hafa sýnt sig að vera sú burðarstoð sem við byggjum lífsskilyrði okkar á. Það er í þessum greinum sem við höfum þekkingu sem byggir á aldargömlum hefðum. Og það er á þeim […]