Lögreglan fann 109 kíló af fíkniefnum

Um 109 kíló af fíkniefnum voru haldlögð á Austurlandi um helgina. Um er að ræða amfetamín, marijúana, hass og e-töflur. Sex karlar hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn málsins. Í tilkynningu frá lögreglu segir að tveir hafi verið handteknir við Djúpavog og einn í grennd við Höfn. Mennirnir hafa allir verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 11. maí. Þrír til viðbótar voru handteknir í 40 feta seglskútu, SIRTAKI, djúpt suðaustur af landinu. Fimm mannanna eru íslenskir en sá sjötti er hollenskur.

Nýjustu fréttir

Krónan frystir verð á 647 vörum út árið
Fjölbreytt listsköpun í Gallerý Skúrnum  
Vindhviður í 46 metra á sekúndu á Stórhöfða
ÍBV tekur á móti HK í kvöld
Andri og Arnór í eldlínunni í Svíþjóð
Herjólfur hefur siglt 200 ferðir til Þorlákshafnar á árinu
Milena í lokahóp U17 fyrir undankeppni EM
Ellefu tonna hol af blálöngu hjá Breka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.