Lögreglan á Hvolsvelli óskar upplýsinga um fíkniefni

Lögreglan á Hvolsvelli segir að fíkniefni skapi mjög alvarlegt ástand í þjóðfélaginu og að neytendur séu sífellt að verða yngri. Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að ætlunin sé að fylgjast betur með fíkniefnamálum á næstunni og að reynt verði að ná til þeirra sem selja, framleiða og neyta fíkniefna. Þeir sem hafa einhverjar upplýsingar […]

Lögregluaðgerð vegna fíkniefnasmygls á Höfn í Hornafirði

Umfangsmiklar aðgerðir lögreglu hafa staðið yfir síðustu dægrin á Suðausturlandi. Samkvæmt heimildum fréttastofu RÚV er um að ræða eina stærstu tilraun til fíkniefnasmygls sem upp hefur komist hér á landi. Á vef Ríkisútvarpsins kemur fram að lögregla muni hafa handtekið tvo eða þrjá karlmenn á Djúpavogi í gær en þeir komu þangað fyrir nokkrum dögum […]

Samfylkingin opnar í Hveragerði

Fjölmenni var á fundi með Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra og formanni Samfylkingarinnar, á Hótel Selfossi í dag. Eftir fundinn héldu frambjóðendur flokksins í Suðurkjördæmi til Hveragerðis þar sem þeir ganga nú í hvert hús ásamt stuðningsmönnum með íslenskar rósir, birki og jafnaðarstefnuna. Hvergerðingum er boðið á opnun kosningaskrifstofu Samfylkingarinnar að Reykjamörk 1 klukkan 18 í dag. […]

Ljósin slökkt í gróðurhúsunum

Það eru grafalvarleg tíðindi að ríkistjórn Vinstri-Grænna og Samfylkingar hyggst ekkert gera til að koma í veg fyrir fimmföldun á flutningsverði raforku. Breyting sem ákveðin var í desember af Einari Kr. þáverandi landbúnaðarráðherra en tók gildi 1. apríl síðastliðinn. Núverandi ríkisstjórn segist ekkert geta gert til að laga þá röngu ákvörðun. (meira…)

KFS lagði Sindra á Selfossvelli

Í gær áttust við KFS og Sindri frá Hornafirði í Lengjubikarnum en liðin léku á gervigrasvellinum á Selfossi. Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Anton Bjarnason KFS yfir á 47. mínútu en Sindramenn jöfnuðu aðeins fimm mínútum síðar. Anton hafði hins vegar ekki sagt sitt síðasta og skoraði sigurmarkið á 72. mínútu. Lokatölur því 2:1 fyrir […]

Hermann orðaður við Wolves

Hermann Hreiðarsson er í enskum fjölmiðlum í dag orðaður við Wolves sem í gær vann sér sæti í ensku úrvalsdeildinni. Samningur Hermanns við Portsmouth rennur út í sumar og segir í frétt í News of the World að ólíklegt er að honum verði boðinn nýr samningur. (meira…)

Opnun kosningaskrifstofu Framsóknarflokksins frestað til 16.00

Framsóknarflokkurinn opnar kosningaskrifstofu að Heiðarvegi 6 á morgun, sunnudag kl. 16:00. Vegna veðurs og ófærðar verður opnunarveislan færð af Stakkagerðistúni á Heiðarveginn og hefst kl. 16:00 í stað 12:00. Þar verður grillað og boðið upp á gos, kaffi og meðlæti. Frambjóðendur verða á staðnum til að ræða það sem brennur á Eyjamönnum. (meira…)

Fyrningarleið er ekki sáttaleið

Suðurlandið.is kynnir fyrir kjósendum Suðurkjördæmis Sigurð Inga Jóhannsson, nýjan oddvita Framsóknarflokksins, í áttunda kosningamyndbandinu. Hann leiðir flokkinn í kjördæminu í stað Guðna Ágústssonar sem sagði af sér þingmennsku og formennsku í Framsóknarflokknum í haust. Sigurður Ingi segist hafa orðið framsóknarmaður á námsárum í Danmörku. Hann segir Íslendinga eiga öflugan matvælaiðnað, bæði landbúnað og sjávarútveg, sem […]

Bjarni Ben í Eyjum og �?orgerður Katrín á Selfossi

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, verður ásamt frambjóðendum flokksins í Suðurkjördæmi á opnun stjórnmálafundi í Vestmannaeyjum í kvöld klukkan 20. Fundurinn fer fram í Ásgarði, húsnæði flokksins í Eyjum. Á sama tíma fer fram opinn stjórnmálafundur á Hótel Selfossi með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, varaformanni sjáfstæðismanna. (meira…)

Framsóknarhátíð í Eyjum

Framsóknarmenn hafa opnað fimm kosningaskrifstofur um helgina og tvær verða opnaðar á mánudag. Seinkun hefur orðið á opnun skrifstofunnar í Vestmannaeyjum vegna ófærðar og verður hún opnuð klukkan 16 í dag að Heiðarvegi 6. Allir eru velkomnir í grillveislu framsóknarmanna í Eyjum. Oddviti Framsóknar í Suðurkjördæmi verður á opnum stjórnmálafundi í Skála í Myrkholti í […]

Vinstri græn funda um landbúnaðarmál

Vinstri græn efna til funda í dag um landbúnaðarmál á þremur stöðum. Fyrsti fundurinn með Steingrími J. Sigfússyni, Þorsteini Bergssyni og Arndísi Soffíu Sigurðardóttur hefst að Breiðamýri klukkan 11. Sá næsti verður að Laugaborg klukkan 16 og sá síðasti að Rimum í Svarfaðardal klukkan 20. (meira…)

Forsætisráðherra á opnum fundi á Selfossi

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra verður heiðursgestur á opnum stjórnmálafundi Samfylkingarinnar á Hótel Selfossi klukkan 11 í dag. Fundarstjóri verður Björgvin G. Sigurðsson, oddviti flokksins í Suðurkjördæmi. Samfylkingarfólk heldur áfram að dreifa íslenskum rósum og birki um kjördæmið í dag. Gengið verður í hús í Hveragerði í dag en Samfylkingin opnar kosningaskrifstofu þar að Reykjamörk 1 klukkan […]

300 manns á fjölskylduhátíð í Reykjanesbæ

Um 300 manns mættu á fjölskylduhátíð ungra sjálfstæðismana í Reykjanesbæ í gær. Slegið var upp stóru tjaldi á túninu við hliðina á Valgeirsbakaríi við Hólagötu í Njarðvík. Frambjóðendur grilluðu pylsur, nemendur úr Heiðarskóla sýndu atriði úr söngleiknum Frelsi, færeyski söngvarinn Jogvan flutti nokkur lög og vestmannaeyski trúbadorinn Jarl mætti á svæðið. Fleiri myndir fylgja fréttinni. […]

Samband garðyrkjubænda segir enga þjóðarsátt

Samband garðyrkjubænda ákvað á aðalfundi á föstudag að skrifa ekki undir samning við landbúnaðarráðherra um niðurskurð á greiðslum til bænda. Skrifað var undir við samtök sauðfjár- og kúabænda í dag um að stuðningur við bændur verði skertur um 800 milljónir frá síðasta ári. Garðyrkjubændur vilja fyrst fá afdráttarlausa yfirlýsingu um að hætt verði við fjórðungs […]

Samið við bændur um niðurskurð

Landbúnaðarráðherra hefur samið við Bændasamtök Íslands um hvernig niðurskurði á greiðslum til bænda verður háttað. Stuðningur við bændur minnkar um 800 milljónir samkvæmt fjárlögum 2009. Þrátt fyrir niðurskurðinn fá bændurnir tæpan níu og hálfan milljarð frá ríkinu á þessu ári. Réttaróvissa ríkti um skerðingarnar og því var nauðsynlegt að semja við bændur. Steingrímur J. Sigfússon, […]

Fyrningarkerfið er galin hugmynd

Suðurlandið.is ræðir við Árna Johnsen alþingismann í sjöunda kosningamyndbandinu. Árni sóttist eftir fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi en hlaut 2. sætið og Ragnheiður Elín Árnadóttir er nýr oddviti sjálfstæðismanna í kjördæminu. Árni segir að á áratuga stjórnmálaferli hafi hann aldrei áður orðið var við eins mikla ókyrrð og óvissu í þjóðfélaginu. Þetta speglist […]

Jafntefli í átta marka leik

Kvennalið ÍBV lék í gærkvöldi gegn GRV í B-deild Lengjubikars kvenna. Leikurinn fór fram í Kórnum í Kópavogi en áður en yfir lauk höfðu átta mörk verið skoruð og lokatölur 4:4. Þórhildur Ólafsdóttir, leikmaður ÍBV heldur áfram að raða inn mörkunum en hún skoraði þrjú af fjórum mörkum Eyjastúlkna. (meira…)

Flugslysaæfingar í Keflavík og á �?órshöfn

Rúmlega 300 manns taka þátt í flugslysaæfingum á flugvöllunum í Keflavík og á Þórshöfn í dag. Í tilkynningu frá Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra segir að í Keflavík fari fram æfing á viðbrögðum samkvæmt neyðaráætlun vegna flugverndar. Æfingin er almannavarnaæfing þar sem allir viðbragðsþættir eru prófaðir fyrstu klukkustundir eftir flugslys. Líkt er eftir sprengjuhótun um borð í flugvél […]

Heiða í Unun spilaði hjá VG á Hellu

Vinstri græn opnuðu kosningaskrifstofu í Brennu á Hellu í gærkvöldi. Um 40 manns mættu og hlýddu á efstu frambjóðendur listans. Auk þeirra ávarpaði Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, oddviti flokksins í Kraganum, samkomuna. Ragnheiður Eiríksdóttir, betur þekkt sem Heiða í Unun, flutti nokkur lög, en hún er í 13. sæti á lista Vinstri grænna í Suðurkjördæmi. Skemmtilegar […]

150 ára saga mormóna á Íslandi og í Utah

Fred E. Woods, prófessor við Religious Studies Center við Brigham Young háskólann í Utah í Bandaríkjunum, heldur fyrirlestur á Bókasafni Vestmannaeyja í dag klukkan 14. Hann fjallar um bók sína Eldur á ís sem segir 150 ára sögu mormóna á Íslandi og í Utah. Fjallað er sérstaklega um tengsl trúskiptinga í Spanish Fork í Utah […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.