Fjölskylduhátíð í Reykjanesbæ í dag

Fjölskylduhátíð ungra sjálfstæðismanna verður haldin í Reykjanesbæ í dag klukkan 12. Hátíðin fer fram í risa hátíðartjaldi á túninu við hliðina á Valgeirsbakaríi, við Hólagötu í Njarðvík. Frambjóðendur munu grilla pylsur, nemendur úr Heiðarskóla sýna atriði úr söngleiknum Frelsi og færeyski söngvarinn Jogvan flytur nokkur lög. Boðið verður upp á andlitsmálun fyrir börnin og hoppukastali […]
Framsóknarmenn opna þrjár skrifstofur í dag

Framsóknarmenn opna kosningarskrifstofu á Hafnargötu 2 í Reykjanesbæ í dag kl. 14 og á sama tíma í gamla Essoskálanum á Hvolsvelli. Framsóknarmenn opna einnig kosningaskrifstofu á Hafnarbraut 14 á Höfn í dag, laugardag, klukkan 14. Þá verður kosningaskrifstofa Framsóknar í Hveragerði opnuð klukkan 17 á morgun, að Reykjarmörk 2. Á mánudaginn verður opnuð skrifstofa klukkan […]
Kvennakvöld Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ í kvöld

Samfylkingin heldur kvennakvöld í kosningamiðstöð flokksins að Bolafæti 1 í Reykjanesbæ í kvöld klukkan 20. Kvennakvöld Samfylkingarinnar verða einnig haldin á Selfossi og í Vestmannaeyjum næstkomandi miðvikudagksvöld klukkan 20. Frambjóðendur Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi munu halda áfram að dreifa rósum, birki og jafnaðarstefnu á Suðurnesjum í dag, en byrjað var í Reykjanesbæ í gærkvöldi. Svokallað laugardagskaffi […]
Opið hús hjá Frjálslyndum í Eyjum í dag

Opið hús verður á kosningaskrifstofu Frjálslynda flokksins, í Valhöll að Strandvegi 43a í Vestmannaeyjum, í dag klukkan 16. Boðið verður uppá kaffi og meðlæti og ef veður leyfir verður grillað. Frjálslyndir í Eyjum halda kvöldvöku í kvöld þar sem boðið verður uppá léttar veitingar og lfiandi tónlist. Frambjóðendur Frjálslyndra í Suðurkördæmi bjóða alla velkomna á […]
Árni Johnsen spilaði á Selfossi og Hvolsvelli

Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins hafa verið á ferðinni um Suðurkjördæmi í framboðsrútu undanfarna daga. Vinnustaðir hafa verið heimsóttir og stjórnmálafundir haldnir. Árni Johnsen hefur gítarinn gjarnan við höndina á ferðalögum og lék hann nokkur lög þegar frambjoðendur litu við á rakarastofu Björns og Kjartans á Selfossi. (meira…)
Sjálfstæðismenn heimsóttu Sólheima í Grímsnesi

Unnur Brá Konráðsdóttir og Drífa Hjartardóttir, frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins heimsóttu Sólheima í Grímsnesi í gær, fimmtudag. Gengu frambjóðendur um svæðið og spjölluðu við íbúa og starfsfólk um málefni líðandi stundar og verkefnin framundan. Á vef Sjálfstæðisflokksins segir að afar vel hafi verið tekið á móti þeim Unni Brá og Drífu á Sólheimum. (meira…)
Samfylkingin dreifir rósum, birki og jafnaðarstefnu

Frambjóðendur stjórnmálaflokkana taka upp á ýmsu síðustu dagana fyrir kosningar. Samfylkingarfólk í Suðurkjördæmi byrjaði í kvöld að dreifa jafnaðarstefnu sinni auk íslenskra rósa og birkis. Íbúar Reykjanesbæjar voru þeir fyrstu sem fengu þessa óvæntu gjöf með kosningaboðskap Samfylkingarinnar en frambjóðendur munu hafa þennan háttinn á um allt Suðurkjördæmi næstu daga. Kvenpeningur Reykjanesbæjar var í leiðinni […]
�?trúleg framganga rótgróinna körfuboltafélaga

Um helgina átti að fara fram síðasta fjölliðamót Íslandsmóts karla í 7. flokki körfuboltans. Mótið átti að vera í Vestmannaeyjum í síðasta mánuði en var frestað vegna forfalla liða. Nú hafa þau tekið sig saman og neita öll sem eitt að koma til Eyja og því hefur KKÍ ákveðið að leikirnir falla niður. Björn Einarsson, […]
Göngum til verka – verjum heimilin

Í vor verður kosið um á hvaða grunngildum skal byggja íslenskt samfélag. Eyða verður þeirri óvissu sem ríkir um framtíðina en það verður gert með því að tala skýrt og einbeita okkur að þeim verkefnum sem við blasa. Lækkun vaxta og endurreisn bankakerfisins eru stærstu verkefnin auk þess að tryggja þeim heimilum og fyrirtækjum, sem […]
Ofurlaunapartý á 10 ára fresti?

Þann 1.október sl. skrifaði ég ritgerð í mastersnámi mínu í mannauðsstjórnun sem fjallaði um ofurlaun. Sárafáar og nánast engar heimildir voru fáanlegar um ofurlaunaþróun og hefðir þar að lútandi á íslensku og um íslenskt atvinnulíf og varð því úr að flestar þeirra voru sóttar til Ameríku. (meira…)
Vegna fyrirhugaðra strandveiða

Steingrímur J. og Vinstri grænir eru allt í einu farnir að lofa því rétt fyrir kosningar að strandveiðar verði gefnar frjálsar, en þegar kaflinn hérna að neðan er lesinn, kemur í ljós að við Eyjamenn og aðrir sunnlendingar fáum ekkert út úr þessu. Bara svo það sé alveg á hreinu, þá hefur hingað til verið […]
50 manns í Ráðhúskaffi

Um 50 manns mættu á fund Sjálfstæðismanna í Ráðhúskaffi í Þorlákshöfn í gær. Sérstakur gestur fundarins var Bjarni Benediktsson, formaður flokksins. Sjálfstæðismenn segja fundinn hafa verið góðan og málefnalegan. Rætt var um gjaldmiðils-, atvinnu- og sjávarútvegsmál. Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi hafa heimsótt vinnustaði í Reykjanesbæ í dag. (meira…)
Kennir bæjarstjórn um fýlu frá Lýsi
Sigurbjörn Magnússon, lögmaður Lýsis í Þorlákshöfn segir að fullkominn mengunarvarnarbúnaður sé tilbúinn til uppsetningar sem myndi koma í veg fyrir að nokkur ólykt berist frá verksmiðjunni. Skipulagsfulltrúi bæjarins gagnrýndi starfssemina harðlega í hádegisfréttum útvarpsins í dag. (meira…)
Ríkisstjórnin og Helguvík – með og á móti

Það er gott að Björgvin G. Sigurðsson taki nærri sér það sem sagt er um framgang Helguvíkurmálsins á Alþingi. Því það er forseti þingsins Guðbjartur Hannesson þingmaður Samfyllkingar sem ákveður dagskrána. Hann hefur hingað til ekki tekið málið til umræðu þó enginn forseti hafi haldið eins marga og langa fundi á eins stuttum tíma og […]
Aflaverðmæti jókst um 40% í janúar á milli ára

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 6,8 milljörðum króna í janúar 2009 samanborið við 4,8 milljarða í janúar 2008. Aflaverðmæti hefur því aukist um 1,9 milljarða eða 40,3% á milli ára. Þetta kemur fram í frétt frá Hagstofu Íslands. (meira…)
Framsóknarmenn opna á Selfossi í dag

Framsóknarflokkurinn opnar kosningaskrifstofu á Eyrarvegi 15b á Selfossi klukkan 17 í dag. Á morgun klukkan 14 verður opnuð skrifstofa á Hafnargötu 2 í Reykjanesbæ og á sama tíma í gamla Essoskálanum á Hvolsvelli. Framsóknarmenn opna einnig kosningaskrifstofu á Hafnarbraut 14 á Höfn á morgun klukkan 14. (meira…)
Aðalfundur Verkstjórafélags Vestmannaeyja

Aðalfundur Verkstjórafélags Vestmannaeyja verður haldinn sunnudaginn 26. apríl klukkan 12.00 á Fjólunni. Boðið verður upp á súpu og kaffi. Dagskrá fundarins er: 1. Venjulega aðalfundarstörf, 2. Önnur mál. (meira…)
Af hverju að kjósa Sjálfstæðisflokkinn?

Það styttist óðum í kosningar og ljóst að við okkur í Sjálfstæðisflokknum blasir við brekkan brött. Við hræðumst hins vegar ekki áskorunina enda er málstaður flokksins sterkur og Sjálfstæðisflokkurinn er einn fárra flokka, sem hefur farið í endurnýjun frambjóðenda. Þó ég hafi ekki kosningarétt hef ég mikið velt fyrir mér kosningabaráttunni. (meira…)
Álver og ný atvinna á alþjóðaflugvellinum til bjargar Suðurnesjum

Í sjötta kosningamyndbandinu ræðir Suðurlandið.is við Oddnýju Guðbjörgu Harðardóttur, bæjarstjóra í Garðinum, sem er í 2. sæti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Oddný leiddi N-lista, lista nýrra tíma, til sigurs í sveitarstjórnarkosningum í Garðinum árið 2006. Þetta er hennar fyrsta framboð til alþingis og segist hún ekki hafa getað annað en svarað kallinu þegar leitað var til […]
Unnu og töpuðu fyrir San Roque

Eins og fram hefur komið hér á Eyjafréttir.is er karlalið ÍBV í knattspyrnu statt á Spáni þessa dagana við æfingar og keppni. Eyjamenn hafa leikið tvo leiki, gegn A- og B-liði San Roque. ÍBV tapaði fyrri A-liðinu 4:2 en vann svo B-liðið örugglega 6:1. Viðar Kjartansson skoraði bæði mörkin í tapleiknum og einnig tvö mörk […]