Morgunvakt Rásar 1 var send út frá Höfn í Hornafirði og Vestmannaeyjum í morgun í tengslum við kosningaumfjöllun Ríkisútvarpsins í Suðurkjördæmi. Síðdegisútvarpið sendir út frá Reykjanesbæ og Vestmannaeyjum frá klukkan 16 til 18 í dag. Hápunktur umfjöllunarinnar er borgarafundur á Hótel Selfossi klukkan 19:35 í kvöld sem verður sendur út samtímis í Sjónvarpinu og á Rás 2. Fréttinni fylgir tengill á útsending Morgunvaktarinnar í morgun.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst