Austanveðrið hefur magnast hratt í Vestmannaeyjum í morgun. Klukkan átta mældist vindur 36 metrar á sekúndu á Stórhöfða og hviður fóru í 46 metra á sekúndu, samkvæmt veðurathugunum Veðurstofu Íslands.
Til samanburðar mældist vindur 22 metrar á sekúndu á Stórhöfða klukkan fjögur í nótt. Í Vestmannaeyjabæ var vindur 18 metrar á sekúndu klukkan átta og mesta hviða 29 metrar á sekúndu. Munurinn á stöðvunum sýnir hversu miklu hvassara er á Stórhöfða en í bænum.
Eyjafréttum hafa borist ábendingar um að lausamunir, meðal annars trampólín, hafi farið af stað í veðrinu. Fólk er hvatt til að huga að munum utandyra og sýna aðgát á ferðum sínum.
Gul veðurviðvörun er í gildi fyrir Suðurland. Veðurstofan segir að austanstormur, jafnvel rok, gangi yfir sunnanvert landið fram að hádegi. Hún hvetur fólk til að tryggja lausamuni utandyra og fara varlega í umferðinni. Spáð er að talsvert dragi úr vindi eftir hádegi.
Þessu tengt:
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun fyrir Suðurland frá klukkan 07.00 til 13.00 á morgun, fimmtudaginn 24. september. Spáð er austan 18–25 metrum á sekúndu og staðbundnum vindhviðum yfir 35 metrum á sekúndu, meðal annars í Vestmannaeyjum og undir Eyjafjöllum. Fólk er hvatt til að huga að lausamunum og varað er við varasömu ferðaveðri. […]