ÍBV tapaði naumlega gegn HK í æsispennandi leik

Karlalið ÍBV í handbolta tók á móti HK í 4. umferð Olís deildar karla í Vestmannaeyjum í kvöld. Leiknum lauk með eins marks sigri gestanna, 34-35, í æsispennandi leik. Jafnræði var með liðunum á upphafsmínútum leiksins og var staðan jöfn, 7-7, eftir tæpar tíu mínútur. HK náði þá undirtökunum og náði þriggja marka forskoti, 9-12, […]

Landsnet telur afhendingaröryggi í Eyjum mjög gott

Landsnet segir færanlegar varaaflsvélar hafa verið fluttar frá Vestmannaeyjum þar sem þeirra sé meiri þörf í byggðarlögum sem búi við minna afhendingaröryggi. Þrjár raforkutengingar séu nú til Eyja og engin ein bilun á landi myndi gera Vestmannaeyjar straumlausar. Bæjarráð Vestmannaeyja mótmælti á dögunum brottflutningi varaaflsvéla Landsnets frá Eyjum. Vélarnar voru fluttar á brott í lok […]

Tómstundahlaðborð um helgina

Tómstundahlaðborð verður haldið í sal Íþróttamiðstöðvarinnar laugardaginn 26. september, frá 10–12. Þar munu fjölmörg félög og samtök kynna starfsemi sína og gefa íbúum tækifæri til að kynna sér það tómstunda- og íþróttastarf sem stendur til boða í Eyjum. Alls verða 28 félög og samtök með kynningu á viðburðinum. Þar á meðal eru ÍBV íþróttafélag, Tónlistarskóli […]

Lítil skref geta haft stór áhrif á heilsuna

Vestmannaeyjabær og Vera lífsgæðasetur stóðu fyrir fyrirlestri um hvernig litlar breytingar í daglegu lífi geta stuðlað að betri heilsu og líðan. Greint er frá viðburðinum á vef Vestmannaeyjabæjar. Fyrirlesturinn var haldinn í tilefni Evrópskrar íþróttaviku og bar yfirskriftina „Hvað ef eitt lítið skref gæti haft stór áhrif?“ Þar fjölluðu Thelma Rut Grímsdóttir næringarfræðingur og Tinna […]

Eyjarnar landa í Neskaupstað í dag

Eyjarnar 20250826 081915

Þrír ísfisktogarar, Birtingur NK, Bergey VE og Vestmannaey VE, landa í Neskaupstað í dag. Það er óvenjulegt að þrír togarar komi til löndunar þar sama dag, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar. Jafnframt er síld landað af fullum krafti og því mikið um að vera á bryggjunni. Löndun úr Birtingi hófst klukkan sjö […]

Krónan frystir verð á 647 vörum út árið

Krónan hefur ákveðið að frysta verð á 647 vörum frá og með deginum í dag, 24. september, til ársloka. Verðfrystingin miðast við almennt söluverð varanna 23. september og nær meðal annars til matvæla og heimilisvara. Samkvæmt tilkynningu frá Krónunni eru vörurnar seldar undir merkjunum Krónan, Krónan Lífrænt, Krónan Ódýrt, First Price, Grön Balance og Gestus. […]

Fjölbreytt listsköpun í Gallerý Skúrnum  

Ellefu listakonur koma saman í Gallerý Skúrnum þar sem þær sýna og selja verk sín. Þar kennir ýmissa grasa enda vinna þær með ólík efni og skapa fjölbreytt verk, allt frá kortum og skartgripum til prjónavöru, skrautmuna og málverka.  Skúrinn sem staðsettur er á Vestmannabraut 38 opnaði árið 2019 eftir að Jóný ákvað að láta […]

Vindhviður í 46 metra á sekúndu á Stórhöfða

Austanveðrið hefur magnast hratt í Vestmannaeyjum í morgun. Klukkan átta mældist vindur 36 metrar á sekúndu á Stórhöfða og hviður fóru í 46 metra á sekúndu, samkvæmt veðurathugunum Veðurstofu Íslands. Til samanburðar mældist vindur 22 metrar á sekúndu á Stórhöfða klukkan fjögur í nótt. Í Vestmannaeyjabæ var vindur 18 metrar á sekúndu klukkan átta og […]

ÍBV tekur á móti HK í kvöld

Karlalið ÍBV tekur á móti HK í fjórðu umferð Olísdeildar karla í handbolta í kvöld. Leikurinn fer fram í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja og hefst klukkan 18:00. ÍBV hefur farið ágætlega af stað í deildinni og er í fjórða sæti með fjögur stig eftir þrjá leiki. Eyjamenn hafa unnið tvo leiki en tapað einum og geta því […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.