ÍBV tekur á móti HK í kvöld
Eyjamenn geta unnið sinn þriðja leik í röð í Olísdeild karla
Úr leik ÍBV og Selfoss í Eyjum. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Karlalið ÍBV tekur á móti HK í fjórðu umferð Olísdeildar karla í handbolta í kvöld. Leikurinn fer fram í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja og hefst klukkan 18:00.

ÍBV hefur farið ágætlega af stað í deildinni og er í fjórða sæti með fjögur stig eftir þrjá leiki. Eyjamenn hafa unnið tvo leiki en tapað einum og geta því fylgt góðri byrjun eftir með þriðja sigrinum í röð í kvöld.

HK er hins vegar án stiga á botni deildarinnar eftir þrjár umferðir og leitar enn að sínum fyrsta sigri.

Fjórir leikir fara fram í Olísdeildinni í kvöld. Auk viðureignar ÍBV og HK mætast Stjarnan og Fram, Afturelding og Selfoss og FH og Haukar.

Handknattleiksdeild ÍBV hvetur stuðningsfólk til að fjölmenna í stúkuna og láta vel í sér heyra. Flautað verður til leiks í Íþróttamiðstöðinni klukkan 18:00.

Nýjustu fréttir

„Einsi Kaldi lokar þegar ég hef ekki metnað í eldhúsinu lengur“
Frá Heimaeyjargosinu til kostulegra sagna af Vellinum
Nýr sæstrengur en bræðslan gengur fyrir olíu
Herjólfur fellir niður ferðir
Frá Vestmannaeyjum í norska skóla 
Kyrrðarbæn í dag
Þór flutti sjúkling til Landeyjahafnar á hæsta forgangi
Setja frest á viðræður um sorpþjónustu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.