Lítil skref geta haft stór áhrif á heilsuna
Thelma Rut Grímsdóttir næringarfræðingur og Tinna Tómasdóttir talmeinafræðingur fjölluðu um hvernig lítil skref geta stuðlað að betri heilsu og líðan. Mynd: Vestmannaeyjabær.

Vestmannaeyjabær og Vera lífsgæðasetur stóðu fyrir fyrirlestri um hvernig litlar breytingar í daglegu lífi geta stuðlað að betri heilsu og líðan. Greint er frá viðburðinum á vef Vestmannaeyjabæjar.

Fyrirlesturinn var haldinn í tilefni Evrópskrar íþróttaviku og bar yfirskriftina „Hvað ef eitt lítið skref gæti haft stór áhrif?“ Þar fjölluðu Thelma Rut Grímsdóttir næringarfræðingur og Tinna Tómasdóttir talmeinafræðingur um heilsu og vellíðan.

Þær ræddu meðal annars mikilvægi reglulegrar hreyfingar, fjölbreyttrar og næringarríkrar fæðu, góðs svefns og raunhæfra markmiða. Meginboðskapurinn var að breytingarnar þurfi hvorki að vera stórar né flóknar. Lítil skref sem henta hverjum og einum geti skilað árangri með tímanum.

Fyrirlesturinn var hluti af dagskrá Evrópskrar íþróttaviku, #BeActive.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.