Eyjarnar landa í Neskaupstað í dag
Eyjarnar 20250826 081915
Landað úr Vestmannaey VE. Á bakvið hana er Bergey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Þrír ísfisktogarar, Birtingur NK, Bergey VE og Vestmannaey VE, landa í Neskaupstað í dag. Það er óvenjulegt að þrír togarar komi til löndunar þar sama dag, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar. Jafnframt er síld landað af fullum krafti og því mikið um að vera á bryggjunni.

Löndun úr Birtingi hófst klukkan sjö í morgun. Skipið er með rúmlega 80 tonn, mestmegnis þorsk og karfa.

Í kjölfarið verður landað úr Eyjaskipunum Bergey og Vestmannaey, sem bæði koma úr stuttum veiðiferðum. Vestmannaey landaði síðast á mánudag. Arnar Richardsson, rekstrarstjóri skipanna, segir á vef Síldarvinnslunnar að Bergey sé með rúmlega 60 tonn og Vestmannaey rúmlega 30 tonn. Uppistaða aflans hjá báðum skipum er þorskur og ýsa.

Vegna brælu er búist við að skipin haldi ekki aftur til veiða fyrr en á laugardag.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.