Krónan frystir verð á 647 vörum út árið
Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar. Mynd/aðsend.

Krónan hefur ákveðið að frysta verð á 647 vörum frá og með deginum í dag, 24. september, til ársloka. Verðfrystingin miðast við almennt söluverð varanna 23. september og nær meðal annars til matvæla og heimilisvara.

Samkvæmt tilkynningu frá Krónunni eru vörurnar seldar undir merkjunum Krónan, Krónan Lífrænt, Krónan Ódýrt, First Price, Grön Balance og Gestus. Þar á meðal eru kjúklingabringur, hakk, brauð, kartöflur, pasta, haframjöl og kaffi. Frystingin nær einnig til salernispappírs, þvottaefna, hreinlætisvara og gæludýrafóðurs.

Krónan segir að verð þessara vara muni ekki hækka til og með 31. desember, þótt kostnaður fyrirtækisins aukist. Verði svigrúm til verðlækkana á tímabilinu muni þær hins vegar skila sér til viðskiptavina. Vörurnar verða merktar „Fryst verð“ á rafrænum hillumiðum í verslunum.

„Við viljum gefa viðskiptavinum vissu um að verð þessara vara hækki ekki út árið. Ef kostnaður okkar hækkar á tímabilinu tökum við þá hækkun á okkur, og ef forsendur skapast til verðlækkana munum við skila þeim áfram til viðskiptavina,“ segir Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar.

Krónan frysti einnig verð á vörum árið 2022. Þá náði aðgerðin til 240 vara, samkvæmt tilkynningu fyrirtækisins.

Nýjustu fréttir

Níu útgefendur fá styrki til fjölmiðlunar í héraði
Óveðrið í myndum
Uppvakningafaraldur skellur á Íslandi í nýju hlaðvarpi úr Eyjum
Þakplata farin að losna – hviður náðu 51 m/s á Stórhöfða
Skólahaldi seinkað til klukkan 9 vegna veðurs
Uppfært: Veðurofsi í Eyjum – 50 m/s hviður á Stórhöfða
Ræða stöðu ferðaþjónustunnar við þingmenn Suðurkjördæmis
Val á endurskoðanda aftur til bæjarráðs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.