ÍBV tapaði naumlega gegn HK í æsispennandi leik
Úr leiknum í kvöld. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Karlalið ÍBV í handbolta tók á móti HK í 4. umferð Olís deildar karla í Vestmannaeyjum í kvöld. Leiknum lauk með eins marks sigri gestanna, 34-35, í æsispennandi leik.

Jafnræði var með liðunum á upphafsmínútum leiksins og var staðan jöfn, 7-7, eftir tæpar tíu mínútur. HK náði þá undirtökunum og náði þriggja marka forskoti, 9-12, þegar stundarfjórðungur var liðinn. Eyjamenn komu til baka og jöfnuðu metin í 18-18 þegar skammt var eftir af fyrri hálfleik. HK svaraði með góðum kafla undir lok hálfleiksins og fór með tveggja marka forskot, 19-21, inn í hálfleik.

Úrslitin réðust á lokasekúndunni

Eyjamenn jöfnuðu metin í upphafi síðari hálfleiks og liðin skiptust svo á að leiða. Staðan var jöfn, 28-28, þegar stundarfjórðungur var til leiksloka og enn allt í járnum, 33-33, þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir. HK menn náðu eins marks forystu, 33-34, þegar lítið var eftir en ÍBV jafnaði þegar nokkrar sekúndur voru til leiksloka. HK menn brunuðu þá upp í sókn og skoruðu sigurmarkið á lokasekúndunni. Niðurstaðan því 34-35 tap hjá ÍBV á heimavelli.

Daníel Þór Ingason var markahæstur í liði ÍBV með sjö mörk en Trúgvi Hávardsson, hjá HK, var markahæstur í leiknum með tíu mörk. 

ÍBV situr í 4. sæti deildarinnar með fjögur stig eftir fjóra leiki, en HK náði í sín fyrstu tvö stig með sigrinum og situr í 9. sæti.

Mörk ÍBV: Daníel Þór Ingason 7 mörk, Kristófer Ísak Bárðarson 6, Dagur Arnarsson 5, Magnús Dagur Jónatansson 4, Sigtryggur Daði Rúnarsson 4, Sveinn José Rivera 3, Andri Magnússon 1, Anton Frans Sigurðsson 1, Atli Steinn Arnarson 1, Haukur Leó Magnússon 1, Jason Stefánsson 1.

Nýjustu fréttir

Er verið að leggja landsbyggðarskatt á okkur?
Borkjarnar á fyrirhuguðu dýpi Eyjaganga betri en vænst var
Vilja vernda einstakt lífríki sunnan Íslands
Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna
Brottför seinni ferðar flýtt vegna versnandi veðurs
Níu útgefendur fá styrki til fjölmiðlunar í héraði
Óveðrið í myndum
Uppvakningafaraldur skellur á Íslandi í nýju hlaðvarpi úr Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.