Tómstundahlaðborð um helgina
Tómstundahlaðborð verður haldið í íþróttamiðstöðinni á laugardaginn

Tómstundahlaðborð verður haldið í sal Íþróttamiðstöðvarinnar laugardaginn 26. september, frá 10–12. Þar munu fjölmörg félög og samtök kynna starfsemi sína og gefa íbúum tækifæri til að kynna sér það tómstunda- og íþróttastarf sem stendur til boða í Eyjum.

Alls verða 28 félög og samtök með kynningu á viðburðinum. Þar á meðal eru ÍBV íþróttafélag, Tónlistarskóli Vestmannaeyja, Leikfélag Vestmannaeyja, kórar, lúðrasveitir og ýmis félagasamtök.

Framboðið er fjölbreytt og nær meðal annars til íþrótta, tónlistar, leiklistar, félagsstarfs og heilsueflingar. Markmiðið er að veita fólki á öllum aldri yfirsýn yfir þá möguleika sem eru í boði í bænum.

Viðburðurinn er opinn öllum

Nýjustu fréttir

Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
„Einsi Kaldi lokar þegar ég hef ekki metnað í eldhúsinu lengur“
Frá Heimaeyjargosinu til kostulegra sagna af Vellinum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.