Bókunarkerfi Herjólfs er enn niðri en félagið hefur birt siglingaáætlun morgundagsins svo farþegar geti skipulagt ferðir sínar.
Siglt verður frá Vestmannaeyjum kl. 09:30, 12:00, 14:30, 17:00 og 19:30. Frá Landeyjahöfn verður siglt kl. 10:45, 13:15, 15:45, 18:15 og 20:45.
Fram kemur í tilkynningu frá Herjólfi að ekki sé hægt að bóka farartæki í ferðirnar kl. 09:30, 10:45, 17:00 og 20:45 þar sem þær hafi verið fullbókaðar áður en bókunarkerfið datt út.
Herjólfur biður farþega um að mæta tímanlega og þakkar jafnframt fyrir þolinmæði og skilning undanfarna daga meðan unnið hefur verið að því að koma kerfinu aftur í lag.
Þá bendir félagið farþegum sem hyggjast ferðast á mánudag eða þriðjudag á að aðstæður til siglinga í Landeyjahöfn séu ekki hagstæðar um þessar mundir.
„Við hvetjum farþega til að fylgjast með miðlum okkar ef gera þarf breytingar á áætlun,“ segir í tilkynningunni.
Tilkynning um siglingar á mánudag verður gefin út í síðasta lagi klukkan 06:00 á mánudagsmorgun.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.