Börnin tekin tali: „Ég er búinn að gleyma hvað á að gera á goslokum”

Nafn og aldur: Þórhildur Helga. 9 að verða 10 ára.

Fjölskylda: Foreldrar eru Esther og Guðgeir, systkinin Bergur og Katla og hundurinn Ylfa Fönn.

Hvað gerðist 23. janúar árið 1973? Það kom eldgos á Heimaey.

Hefur þú farið upp á Eldfell? Já, ég hef farið nokkrum sinnum á Eldfellið.

Hvað ætlar þú að gera á goslokunum? Fara á skemmtanirnar og fara á myndlistasýninguna hjá ömmu Jóný.

Hvað langar þig að vera þegar þú ert orðin stór? Mig langar að verða kennari þegar ég verð stór.

Hvað ætlaru að gera í sumar? Fótboltaæfingar, stuttmyndanámskeið og fótboltamót.

Nafn og aldur: Jóel og 9 ára.

Fjölskylda: Mamma heitir Lára, pabbi heitir Huginn og systkini mín heita Hlín, Birta, Máni, Ísak og Oreó.

Hvað gerðist 23. janúar árið 1973? Eldgos.

Hefur þú farið upp á Eldfell? Já.

Hvað ætlar þú að gera á goslokunum? Ég veit það ekki alveg, ég er búinn að gleyma hvað á að gera á goslokum.

Hvað langar þig að vera þegar þú ert orðin stór? Fótboltamaður.

Hvað ætlaru að gera í sumar? Æfa mig í fótbolta, leika mér og hafa gaman.

Nafn og aldur: Sara Kristey Gústafsdóttir, ég verð 8 ára gömul í ágúst.

Fjölskylda: Mamma mín heitir Silja Rós og pabbi minn Gústaf. Eldri bróðir minn heitir Guðjón Elí og yngri systir mín María Steiney og svo á ég kött sem heitir Oreo.

Hvað gerðist 23. janúar árið 1973? Það kom eldgos í Vestmannaeyjum.

Hefur þú farið upp á Eldfell? Já og líka í Eldheima.

Hvað ætlar þú að gera á goslokunum? Ég er mjög spennt að fá að prófa að mála vegg, mér finnst gaman að teikna og mála. Svo ætla ég að vera með fjölskyldunni minni og hafa gaman.

Hvað langar þig að vera þegar þú ert orðin stór? Ég ætla að vera listakona, kannski bakari og að hjálpa til í Villikattakotinu.

Hvað ætlaru að gera í sumar? Ég ætla að fara á Símamótið, fara til Akureyrar og svo til Svíþjóðar með allri fjölskyldunni minni að heimsækja frændur mínar, frænkur og hundinn Bellu og líka að kaupa flott dót. Heima ætla ég að vera í kósý með Oreo kisunni minni.

Nafn og aldur: Sunna Karen Birkisdóttir, 7 ára.

Fjölskylda: Mamma heitir Lísa og pabbi heitir Birkir. Svo á ég tvö systkini sem heita Selma Dís og Ásgeir Ingi Haukdal.

Hvað gerðist 23. janúar árið 1973? Eldgos.

Hefur þú farið upp á Eldfell? Já, nokkrum sinnum.

Hvað ætlar þú að gera á goslokunum? Skoða goshúsið þar sem húsið er í rúst og hafa gaman.

Hvað langar þig að vera þegar þú ert orðin stór? Fótboltastjarna og hundaþjálfari.

Hvað ætlaru að gera í sumar? Leika mér úti, tína blóm, fara á fótboltamót og fara í útilegu.

Nýjustu fréttir

ÍBV stelpurnar unnu Tindastól í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins
Gleðilegan kjördag kæru Vestmannaeyingar!
Við gefum loforð og efnum það
Lokahóf handboltans fór fram í gærkvöldi
Lengi lifi lýðræði á Íslandi!
Veljum reynsluna
Kjósum með framtíðina í huga
Kona fer í framboð
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.