Breytingar hjá Húsasmiðjunni og Blómaval í Vestmannaeyjum
Aukið úrval og nýjar áherslur
Guðrún Tinna Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Húsasmiðjunnar.

Húsasmiðjan og Blómaval í Vestmannaeyjum gera nú breytingar á versluninni sem miða að því að einfalda rekstur og bæta þjónustu við viðskiptavini í byggingavörum. Þessar breytingar fela í sér að afskorin blóm og pottaplöntur verða ekki lengur hluti af vöruúrvali verslunarinnar.

Áfram mikið úrval fyrir heimilið og garðinn

„Við munum áfram bjóða úrval af ræktunarvöru, sumarblómum og garðvörum – og jólavörurnar verða auðvitað á sínum stað þegar þar að kemur. Á sama tíma verður lögð rík áhersla á að stækka úrval í árstíðabundnum vörum eins og grillum og vera áfram sterk í vörum fyrir garðinn og ræktun. Við munum því formlega hætta rekstri Blómavals á staðnum en áfram vera í nánu samstarfi við Blómaverkstæði Blómavals í Skútuvogi með allar sérpantanir,” segir Guðrún Tinna Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Húsasmiðjunnar.

Blómaverkstæðið í Reykjavík sér um sérpantanir

Allar sérpantanir s.s. skreytingar fyrir viðburði, kistuskreytingar og útfararskreytingar verða framvegis unnar hjá Blómaverkstæði Blómavals í Skútuvogi í Reykjavík. Núverandi deildarstjóri Blómavals í Vestmannaeyjum, mun áfram stýra þessum hluta þjónustunnar fyrir hönd Húsasmiðjunnar og tryggja hnökralaus samskipti við verkstæðið.

Aukið úrval af rafmagnsverkfærum og byggingavöru

Samfara þessum breytingum verður einnig lögð aukin áhersla á að efla vöruúrval í rafmagnsverkfærum og annarri byggingavöru í Vestmannaeyjum, sem styður við þá sýn að þjónusta við heimili og byggingaverktaka verði fjölbreyttari og öflugri en áður.

Áskorun á litlum markaði

„Á undanförnum árum hafa matvöruverslanir og aðrir aðilar í auknu mæli boðið upp á afskorin blóm og sams konar vörur og Blómaval. Á litlum markaði eins og hér í Eyjum skapar þetta skiljanlega áskorun fyrir rekstur sérhæfðrar blómaverslunar sem byggir á ferskleika og fagmennsku í blómaskreytingum. Slíkur rekstur hentar betur á stærri markaðssvæðum þar sem eftirspurnin er meiri og stöðugri. Í ljósi þessa höfum við ákveðið að færa áhersluna í verslun okkar yfir á kjarnavörur Húsasmiðjunnar og vörur tengdar garðrækt og garðinum og á sama tíma tryggja viðskiptavinum okkar gott og faglegt samstarf við blómaverkstæði okkar í Blómavali í Skútuvogi. Við hlökkum til að bjóða viðskiptavinum okkar í Vestmannaeyjum upp á endurbætta og markvissari verslunarupplifun,” segir Guðrún Tinna Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Húsasmiðjunnar

Nýjustu fréttir

Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.