Dæmdir í skilorðsbundið fangelsi og sviptur réttindum
Landhelgisgæslan beindi skipinu til Vestmannaeyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Skipstjóri fraktskipsins Longdawn, Eduard Dektyarev, hefur verið dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi. Stýrimaðurinn Alexander Vasilyev hefur verið dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi. Skipið átti í árekstri við strandveiðibátinn Höddu 52 sl. maí.

Þetta segir í dómi frá Héraðsdómi Reykjaness sem var kveðinn upp fyrir helgi. Ákærðu komu fyrir dóm við þingfestingu máls og játuðu sök.

Áreksturinn varð til þess að bátnum hvolfdi og maraði hálfur á kafi. Skipstjóri annars strandveiðibáts kom skipstjóra Höddu, sem svamlaði um í köldum sjónum, til bjargar. Eftir áreksturinn lagðist flutningaskipið að bryggju í Vestmannaeyjum.

Undir áhrifum við áreksturinn

Alexander hafði upplýst Eduard um áreksturinn og talið sig hafa séð bátinn sökkva. Þrátt fyrir það gaf skipstjórinn stýrimanninum fyrirmæli um að halda för flutningaskipsins áfram.

Með því að skilja skipstjóra Höddu eftir í sjónum stofnuðu þeir ákærðu „lífi hans og heilsu í augljósan háska á ófyrirleitinn hátt“, eins og fram kemur í niðurstöðu dómsins.

Eduard hafði verið undir áhrifum áfengis og ávana- og fíkniefna við stjórn skipsins og þannig óhæfur til að sinna skipstjórn með fullnægjandi hætti. Honum hefur verið sviptur skipstjórnarréttindum og rétti til að gegna stýrimannstöðu í þrjá mánuði.

Nýjustu fréttir

Skiptu 3.000 tonnum af makríl fyrir 1.400 tonn af þorski
Draumurinn um bikarúrslit hjá ÍBV úti – Tap gegn Þrótti R. á útivelli
Eyjamenn vilja geta keypt Laxey-lax
Vestmannaeyskt námsefni nú fáanlegt til útláns
Hraunbúðarmálið: Segja að tryggja verði réttaröryggi sjúkraliða
Leikskrá knattspyrnudeildar ÍBV komin út
Bærinn vissi ekki af úttektinni á Hraunbúðum
Lottóappið heldur áfram að gleðja landsmenn!
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.