Danski Pétur skal hann heita!
Byggðasafnið væri ekki til nema fyrir velvilja bæjarbúa sem eru duglegir að koma með gamla muni til varðveislu og hjálpa þannig til við að viðhalda sögunni. Oft er það einmitt sagan sem fylgir hlutunum sem gæðir þá lífi og gerir jafnvel hluti sem í fyrstu virðast lítils virði að ómetanlegum fjársjóði. Helga Hallbergsdóttir, forstöðumaður tók við gjöf á dögunum sem við fyrstu sýn virðist ekki ýkja merkilegur, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Reipi, brotin flaska og gerviblóm. Sagan á bakvið gjöfina flæðir hana hins vegar lífi en flöskustúturinn var notaður við nafnagift Danska Péturs VE-423 árið 1971. Flöskustúturinn er nú til sýnis í glerskáp í afgreiðslu Sagnheima en söguna með gjöfinni má sjá hér að neðan.
Gjöfinni fylgdi eftirfarandi greinagerð Guðbjargar Októvíu Andersen:
Emil Marten Andersen (f. 31.07.1917, d. 17.03. 1995) skipstjóri og útgerðarmaður lét smíða fyrir sig skip á Akranesi hjá Skipasmíðastöð �?orgeirs og Ellerts hf. árin 1970 til 1971. �?ann 20. febrúar 1971 gaf eiginkona Emils, �?órdís Jóelsdóttir (f. 15.02. 1916, d. 17.07. 1996), skipinu nafnið Danski Pétur. Nafnið var gælunafn föður Emils, Hans Peter Andersen, sem jafnan var kallaður Danski Pétur í Vestmannaeyjum.
Danski Pétur VE-423, skipaskráningarnúmer 1146 var tuttugasta og þriðja nýsmíði skipasmíðastöðvarinnar og var skipið 103 tonn að stærð og kom til Vestmannaeyja 10. mars 1971. Skipið var lengst af í eigu Emils Andersen og útgerðarfélags hans og gerði hann skipið út þar til hann lést. �?tgerðarfélag Emils, Immanúel ehf., var sameinað Vinnslustöð Vestmannaeyja hf. af erfingjum Emils 1997 og komst skipið þá í eigu VSV hf. sem gerði það út um árabil.
Meðfylgjandi er flöskustútur af kampavínsflösku sem notaður var við nafnagiftina 1971 og var vel varðveittur af þeim hjónum Dísu og Malla og er hann nú færður Byggðasafni Vestmannaeyja til varðveislu.

Nýjustu fréttir

Eyjarnar landa í Þorlákshöfn
Snælduvitlaust veður í Vestmannaeyjum
Bókin um ESB – Hvað er í pakkanum? 
Íþróttamiðstöðinni lokað vegna veðurs
Úrslitakvöld Vöruhúsdeildarinnar á laugardaginn
Hagnaður Ísfélagsins 2,8 milljarðar króna
Heimir mætir með Írland í umspilsleik í kvöld
Minning: Einar Birgir Sigurjónsson
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.