Dýpi í Landeyjahöfn hefur minnkað
landeyjah_her_nyr
Herjólfur siglir inn Landeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már
Eftir siglingar seinnipartinn í dag hefur komið í ljós að dýpið í Landeyjahöfn hefur minnkað í kjölfar veðursins síðustu tvo daga. Af þeim sökum þarf Herjólfur að sigla eftir sjávarföllum þar til annað verður tilkynnt. Í tilkynningu frá Herjólfi ohf. segir jafnframt að siglingar til Landeyjahafnar séu nú háðar ölduhæð, öldulengd, veðri og sjávarföllum.

Siglingaáætlun – Sunnudagur 2. nóvember

Brottför frá Vestmannaeyjum

  • 09:30
  • 12:00
  • 14:30
  • 17:00
  • 19:00

Brottför frá Landeyjahöfn

  • 10:45
  • 13:15
  • 15:45
  • 18:00
  • 20:00

Herjólfur mun bíða eftir farþegum sem koma með strætó í Landeyjahöfn um kl. 18:00. Athugið: Farþegar sem áttu bókaðar ferðir kl. 07:00, 08:15, 22:00 og 23:15 eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu Herjólfs til að færa bókanir sínar. Í tilkynningunni segir jafnframt að upplýsingar um siglingar mánudagsins verði gefnar út eftir hádegi á morgun.

Nýjustu fréttir

Minnisvarði um Þór gæti fengið nýjan stað
Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Draumurinn orðinn að veruleika
Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal
Sumarlesturinn hefur aldrei farið betur af stað
Áform um þrjú ný einbýlishús við Reglubraut
Evrópusambandið, meira en tollabandalag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.