Dýpkuðu 32 þúsund rúmmetra við Landeyjahöfn
Dýpi í hafnarmynninu er nú um sjö til átta metrar, en gæti minnkað hratt í óveðri næstu daga.
Dæluskipið Sebastiano Caboto liggur nú í Vestmannaeyjahöfn. Samningur um dýpkun Landeyjahafnar tók gildi 15. september. Mynd: Halldór B. Halldórsson.

Sanddæluskipið Sebastiano Caboto fjarlægði um 32 þúsund rúmmetra af efni úr hafnarmynni Landeyjahafnar og framan við hafnargarðana dagana 26.–28. september. Skipið er á vegum dýpkunarfyrirtækisins Jan De Nul. Þetta kemur fram í svari G. Péturs Matthíassonar, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar, við fyrirspurn Eyjafrétta.

Að auki voru nokkur þúsund rúmmetrar af efni blásnir af grynningum með því að dæla sjó í gegnum framrör skipsins.

Að sögn G. Péturs er dýpi í hafnarmynninu gott þessa stundina, eða um sjö til átta metrar. Hann bendir þó á að leiðinlegt veður sé í vændum á miðvikudag og fimmtudag og að dýpið geti því minnkað hratt.

Mögulega gefast gluggar til frekari dýpkunar um komandi helgi, að sögn G. Péturs.

Nýjustu fréttir

Ítalía mun alltaf eiga sérstakan stað í hjartanu
Vestmannaeyjabær óskar eftir niðurstöðum úr PISA
Sæðisprufan hans Sigurgeirs vakti mikla kátínu
Ólöf Ragnarsdóttir, fréttakona á RÚV 
Hekla bætti eigið met og varð efst kvenna
Vilja taka upp daggjald í Frístund
Vikan í Eyjum: Ólögmætar uppsagnir, óveður og góðgerð í fullri Höll
Bleik messa í Landakirkju
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.